Viðræðum lokið hjá WOW air og Icelandair - Fundað með stjórnvöldum

Til­kynn­ingar er að vænta um nið­ur­stöðu í við­ræðum milli WOW air og Icelandair um mögu­lega sam­ein­ingu félag­anna.

Viðræðum for­svars­manna Icelandair og WOW air, um mögu­lega sam­ein­ingu eða kaup fyrr­nefnda félags­ins á því síð­ar­nefnda, á grund­velli þess að um fyr­ir­tæki á fallandi fæti sé að ræða, er lokið.

For­svars­menn félag­anna funda nú með stjórn­völd, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, þar sem farið er yfir nið­ur­stöð­una í við­ræð­unum og næstu skref.

Til­kynn­ingar er að vænta síðar í dag, um nið­ur­stöð­una.

Eins og greint hefur verið frá, þá er staða WOW air fall­völt og hefur verið mán­uðum saman. Viðræður félags­ins, sem Skúli Mogensen á og stýrir, við banda­ríska félagið Indigo Partners skil­uðu ekki árangri. Í fram­hald­inu var til­kynnt - með til­kynn­ingu Icelandair til kaup­hallar - um að WOW air og Icelandair myndu ræða saman um mögu­lega sam­ein­ingu eða kaup Icelandair á WOW air.

Stjórn­völd sendu einnig frá sér til­kynn­ingu, þar sem Icelandair sagði að við­ræð­urnar færu fram í sam­ráði við stjórn­völd.

Mikið er í húfi fyrir íslenskan efna­hag, enda hefur WOW air verið í lyk­il­hlut­verki við upp­gang í ferða­þjón­ustu á und­an­förnum árum.

Úlfar Stein­dórs­son, for­maður stjórnar Icelandair, varð­ist frétta af við­ræð­unum þegar Kjarninn náði af honum tali, en stað­festi að nú ættu sér stað við­ræður við stjórn­völd.

Icelandair hefur gengið í gegnum erf­iðan rekstr­ar­tíma að und­an­förnu, en félagið tap­aði 6,8 millj-örðum króna á síð­asta árs­fjórð­ungi árs­ins 2018. Nýlega fékk félagið 80 millj­ónir Banda­ríkja­dala að láni, um 10 millj­arða króna, til að end­ur­fjár­magna skuldir og styrkja rekstr­ar­grunn félags­ins.

Þá hafa vanda­mál Boeing - vegna banns við notkun á 737 Max 8 vélum félags­ins - sett strik í reikn­ing­inn, en félagið þurfti að taka þrjár vélar úr notkun vegna þessa.

Eigið fé félags­ins var hins vegar um 55 millj­arðar króna, í lok árs í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár