Telja ekki þörf á að lánastarfsemi verði gerð leyfisskyld

Starfs­hópur um end­ur­skoðun á starfs­um­hverfi smá­lána­fyr­ir­tækja hefur skilað 12 til­lögum til ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Hópurinn telur það mik­il­vægt að umræðan um smá­lán hafi ekki skað­leg áhrif á fram­boð á lög­legum neyt­enda­lánum.

Starfs­hópur um end­ur­skoðun á starfs­um­hverfi smá­lána­fyr­ir­tækja telur ekki þörf á að lána­starf­semi verði gerð leyf­is­skyld. Hópurinn segir að leyf­is­skyldu gæti hamlað nýsköpun og dregið úr sam­keppni og taldi starfs­hóp­ur­inn að unnt væri að ná mark­miðum um neyt­enda­vernd með öðrum úrræðum. Hópurinn hefur skilað skýrslu og tólf til­lögum að aðgerðum til Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttur, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, en hún fól hópnum síð­ast­liðið sumar að kort­leggja starfs­um­hverfi smá­lána­fyr­ir­tækja og leggja fram til­lögur til úrbóta.

Lög um neytendalán reynst vel

Í skýrsl­unni kemur fram að vöxtur lána í fjar­sölu hefur verið mik­ill síð­ustu ár og leitt til auk­innar sam­keppni en á sama tíma hafi lán­veit­endur öðl­ast meiri reynslu sem hefur í ákveðnum til­vikum leitt til breyt­inga á lána­starf­sem­inni, s.s. í formi hertra útlána­reglna. Hópurinn telur að ætla megi að vöxtur þess­arar teg­undar lána eigi eftir að aukast enn frekar og er því eðli­legt að huga að áhrifum þess­arar lána­starf­semi. Í skýrslu hóps­ins segir að íslenskir lög­að­ilar, sem bjóða neyt­endum lán í fjar­sölu, haga starf­semi sinni nán­ast und­an­tekn­ing­ar­laust í sam­ræmi við ákvæði laga um neyt­enda­lán.

Í fyrstu hafi smá­lána­fyr­ir­tæki, sem hófu starf­semi sína fyrir gild­is­töku laga um neyt­enda­lán, mark­visst reynt að snið­ganga ákvæði lag­ann, þó með tak­mörk­uðum árangri, enda hafi þau nú öll hætt starf­semi sinni. Vöru­merki þess­ara smá­lána­fyr­ir­tækja lifa þó enn og þjón­ustan stendur íslenskum neyt­endum enn þá til boða í gegnum erlenda lög­að­ila. Í skýrsl­unni segir að ætla verður að ástæðu umrædds fyr­ir­komu­lags megi rekja til ófrá­víkj­an­legra reglna um hámark árlegrar hlut­falls­tölu kostn­aðar og sé því enn ein leiðin, af mörgum, til að kom­ast fram hjá fyrr­greindu kostn­að­ar­þaki.

Starfs­hóp­ur­inn telur að lög um neyt­enda­lán hafi reynst vel hvað varðar þá við­leitni lög­gjafans að banna lána­starf­semi sem felst í því að neyt­and­inn er kraf­inn um greiðslu mjög hárra vaxta og kostn­aðar. Neyt­enda­stofa hefur meðal ann­ars brugð­ist við í þeim til­vikum og hafa slík mál komið til kasta dóm­stóla sem stað­festu ákvarð­anir stofn­un­ar­innar. Þannig hafi úrræði eft­ir­lits­að­il­ans skilað til­ætl­uðum árangri hvað varðar íslenska lög­að­ila.

Mikilvægt að gera greinarmun á ólöglegum smálánum og öðrum neytendalánum

Í skýrsl­unni segir að við vinnu starfs­hóps­ins hafi verið lagt til grund­vallar að gætt yrði að jafn­vægi milli neyt­enda­verndar, sam­keppni og nýsköp­unar á fjár­mála­mark­aði. Brýnt væri að tryggja betur lög­bundin rétt­indi neyt­enda og að tryggja að við­kvæmir neyt­endur séu vernd­aðir gagn­vart fyr­ir­tækjum sem beita órétt­mætum við­skipta­háttum í starf­semi sinni. Að sama skapi var lagt til grund­vallar að reglu­setn­ing eigi ekki að setja óþarfa hömlur á nýsköpun á fjár­mála­mark­aði eða draga úr sam­keppni milli fyr­ir­tækja.

Það er nið­ur­staða starfs­hóps­ins að hin ólög­legu smá­lán séu þau lán sem valdi hvað mestum vanda hjá neyt­endum. Á sama tíma segir hóp­ur­inn að mik­il­vægt sé að umræðan um smá­lán hafi ekki skað­leg áhrif á fram­boð á lög­legum neyt­enda­lánum sem veitt eru í fjar­sölu. Starfs­hóp­ur­inn telur því ekki þörf á að lána­starf­semi verði gerð leyf­is­skyld. Leyf­is­skylda gæti hamlað nýsköpun og dregið úr sam­keppni og taldi starfs­hóp­ur­inn að unnt væri að ná mark­miðum um neyt­enda­vernd með öðrum úrræðum.

Þórdís Kolbrún segir vinnu starfs­hóps­ins hafi verið góða og segir það mik­il­vægt að gerður verði grein­ar­munur á ólög­legum smá­lánum og öðrum neyt­enda­lánum. „Vinna starfs­hóps­ins var góð og ég er ánægð að sjá hvað tókst vel til að horfa á út í mörg horn á marg­þættu máli. Það er mik­il­vægt að gera grein­ar­mun á ólög­legum smá­lánum og öðrum neyt­enda­lánum sem snúa að nýsköpun í auk­inni fjár­tækni þegar við vinnum að reglu­verki slíkra lána. Ég tel að í þeirri vinnu eigi að ein­blína á að þrengt verði að þeim lán­veit­endum smá­lána sem stunda órétt­mæta við­skipta­hætti.“

Leggja til að skoðað verði að birta neytenda alltaf niðurstöðu lánhæfismats

Í heild­ina skil­aði starfs­hóp­ur­inn tólf til­lögum að aðgerðum sem miða að því að skýra betur rétt neyt­enda og að vernda neyt­endur vegna ólög­legri smá­lána­starf­semi. Meðal til­laga hjá starfs­hópnum er að gerðar verði kröfur um aukna upp­lýs­inga­gjöf lán­veit­enda sem ekki eru eft­ir­lit­skyldir til eft­ir­lits­að­ila. Hópurinn leggur jafn­framt til lögum verði breytt þannig að neyt­andi verði ekki kraf­inn um greiðslu vaxta og kostn­aðar af láni ef skil­málar láns­ins brjóta í bága við lög­bundið hámark á árlegri hlut­falls­tölu kostn­aðar.

Einnig er lagt til að skoðað verði að ástæða sé til að birta neyt­enda alltaf nið­ur­stöðu lán­hæf­is­mats áður en hann tekur lán þannig að hann geri sér betur grein fyrir áhætt­unni sem fylgir lán­tök­unni. Jafn­framt leggur hóp­ur­inn til að skoðað verði hvort að ástæða sé til að tak­marka beina og ágenga mark­aðs­setn­ingu á fjar­skipta­miðlum.

Í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu segir að af hálfu atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytis verður unnið áfram með til­lög­urnar, í sam­ráði við þar til bæra aðila og stofn­anir. Helstu nið­ur­stöður og til­lögur starfs­hóps­ins eru eft­ir­far­andi:

  • Skerpt verði á því hvers lands lög gildi þegar smá­lán eru veitt yfir landa­mæri.
  • Gerðar verði kröfur um aukna upp­lýs­inga­gjöf lán­veit­enda sem ekki eru eft­ir­lits­skyldir til eft­ir­lits­að­ila.
  • Lán­veit­endum, sem ekki eru leyf­is­skyldir verði óheim­ilt að veita neyt­enda­lán nema þeir hafi áður skráð starf­sem­ina með við­eig­andi hætti hjá eft­ir­lits­að­ila.
  • Kannað verði hvort unnt sé að koma í veg fyrir að bankar eða spari­sjóðir geti inn­heimt kostnað af lánum umfram lög­bundið hámark og hvort ástæða sé til að herða kröfur um áreið­an­leika­könnun á þeirra sem nýta sér greiðslu­þjón­ustu banka og spari­sjóða.
  • Lögum verði breytt þannig að neyt­andi verði ekki kraf­inn um greiðslu vaxta og kostn­aðar af láni ef skil­málar láns­ins brjóta í bága við lög­bundið hámark á árlegri hlut­falls­tölu kostn­aðar.
  • Skoðað verði hvort ástæða sé til að tak­marka afgreiðslu ákveð­inna neyt­enda­lána á til­teknum tíma sól­ar­hrings.
  • Skoðað verði hvort tak­marka eigi beina og ágenga mark­aðs­setn­ingu á fjar­skipta­miðlum.
  • Skoðað verði hvort ástæða sé til að birta neyt­anda alltaf nið­ur­stöðu láns­hæf­is­mats áður en hann tekur lán þannig að hann geri sér betur grein fyrir áhætt­unni sem fylgir lán­tök­unni.
  • Eft­ir­lits­að­ilar með inn­heimtu­fyr­ir­tækjum kanni sér­stak­lega hvort neyt­endum séu veittar rangar eða vill­andi upp­lýs­ingar sem eru mik­il­vægar til að unnt sé að taka afstöðu til krafna. Slík hátt­semi sam­ræm­ist ekki góðum inn­heimtu­háttum.
  • Skoðað verði hvort rétt sé að auka kröfur um auð­kenn­ingu neyt­anda þegar lán eru veitt í fjar­sölu.
  • Skoðað verði hvort breyt­inga sé þörf varð­andi aðgengi lán­veit­enda að upp­lýs­ingum um skuld­setn­ingu neyt­enda í tengslum við mat á láns­hæfi.
  • Aukin áhersla verði lögð á kennslu í fjár­mála­læsi í grunn­skólum og fram­halds­skólum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár