Þingmenn Miðflokksins vilja banna upptökur í dómhúsum

Þingmenn Mið­flokks­ins hyggj­ast leggja fram frum­varp en ef það verður sam­þykkt þá verður óheim­ilt að hljóð­rita eða taka myndir í þing­haldi eða í dóm­húsum.

Héraðsdómur Reykjavíkur - Salur 201
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur - Salur 201 Mynd: Bára Huld Beck

Þingmenn Mið­flokks­ins hyggj­ast leggja fram frum­varp til laga um breyt­ingu á lögum um með­ferð saka­mála varð­andi bann við mynda­tökum og hljóð­upp­tökum í dóm­húsum. Málið er á dag­skrá þing­fundar Alþingis í dag.

Ef frum­varpið verður sam­þykkt þá verður óheim­ilt að hljóð­rita eða taka myndir í þing­haldi eða í dóm­húsum. Dómari gæti veitt und­an­þágu frá þessu banni ef sér­stak­lega stæði á, enda væri þess gætt að mynda­tökum og hljóð­upp­tökum yrði ekki beint að aðilum dóms­máls án sam­þykkis þeirra. „Ef tekið hefur verið upp hljóð eða teknar myndir í þing­haldi án leyfis dóm­ara er óheim­ilt að birta þær hljóð­upp­tökur eða myndir. Einnig eru óheim­ilar mynda­tökur og hljóð­upp­tökur af sak­born­ingum, brota­þolum eða vitnum á leið í dóm­hús eða frá því án sam­þykkis þeirra,“ segir í frum­varp­inu.

Fyrsti flutn­ings­maður er Þor­steinn Sæmunds­son en með honum eru Anna Kolbrún Árna­dóttir, Birgir Þór­ar­ins­son, Gunnar Bragi Sveins­son, Bergþór Ólason, Þor­grímur Sig­munds­son og Sigurður Páll Jónsson. Öll eru þau þing­menn eða vara­þing­menn Mið­flokks­ins.

Ákvæði að noskri og danskri fyrirmynd

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að í því sé gert ráð fyrir að víkka gild­is­svið laga um með­ferð saka­mála um bann við mynda­tökum og hljóð­ritun af aðilum að saka­málum, sem eru á leið í dóm­hús eða frá því, án sam­þykkis þeirra. Sé slíkt ákvæði að norskri og danskri fyr­ir­mynd. Ákvæðinu sé ekki ætlað að ná til mynda­töku og hljóð­rit­unar sem fram fer á vegum dóm­stóls­ins sjálfs, og séu þar hafðar í huga þær upp­tökur sem séu eðli­legar við rekstur dóm­stóls­ins, svo sem hljóð­ritun á fram­burði vitna og hefð­bundin notkun örygg­is­mynda­véla. Þá sé gert ráð fyrir því að dóm­ari geti heim­ilað mynda­töku og hljóð­ritun með sér­stöku leyfi og sé þar átt við upp­tökur sem ekki snerta aðila dóms­máls, sem eru í dóm­hús­inu vegna máls­ins. Megi hugsa sér í þessu sam­hengi mynda­töku vegna almennrar fréttar um dóm­stól­inn eða við­tals við dóm­ara.

Í grein­ar­gerð­inni kemur fram jafn­framt fram að í dönskum rétt­ar­fars­lögum sé meg­in­reglan sú að hljóð­ritun eða mynda­tökur séu bann­aðar. Enn fremur séu mynda­tökur í dóm­húsum bann­aðar, nema með sér­stöku leyfi. Sama gildi um mynda­tökur af grun­uðum mönnum, sak­born­ingum eða vitnum í saka­máli sem eru á leið til eða frá þing­haldi.

Ákvæðum í norskum dóm­stóla­lögum svipi nokkuð til dönsku regln­anna. Mynda­tökur og hljóð­rit­anir í þing­haldi í saka­málum séu bann­aðar og einnig sé bannað að hljóð­rita eða taka myndir af sak­born­ingi á leið til eða frá þing­haldi eða í dóm­húsi því þar sem þing­hald fer fram. Heimilt sé að víkja frá þessu ef veiga­mikil rök mæla með því.

Aðstæður trufla málsaðila

„Mjög hefur færst í vöxt að reynt sé að ná myndum af aðilum og vitnum í dóms­máli þegar þeir sinna erindum sínum í dóm­húsum. Einkum á þetta við í opin­berum málum. Und­an­farin ár hefur jafn­vel verið tíðkað að beina mynda­vélum inn í dóm­sali þegar dyr eru opn­aðar meðan á þing­haldi stendur, svo sem þegar nýtt vitni gengur í sal­inn. Leiðir það til þess að hinn ákærði og vitni þurfa jafnan að hafa vara á sér að þessu leyti meðan á þing­hald­inu stendur í stað þess að ein­beita sér að málsvörn sinni eða vitna­leiðslu.

Þykja þessar aðstæður vera til þess fallnar að trufla máls­að­ila, enda hafa þær slæm áhrif á bæði sak­born­inga og vitni. Dæmi eru um að vitni hafi viljað koma sér undan því að bera vitni vegna þessa. Einnig er ljóst að tækn­inni hefur fleygt fram hvað varðar far­síma, spjald­tölvur og mynda­vélar þannig að unnt er t.d. að taka myndir af skjölum í dóm­sal eða skjölum í fórum sak­born­inga eða vitna í dóm­húsi. Slíkar mynda­tökur geta haft óeðli­leg áhrif á gang mála,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Enn fremur kemur fram að meg­in­reglan sé sú að þing­höld skuli háð í heyranda hljóði. Sú regla sé ekki skert með því að banna mynda­tökur af aðilum máls inni í dóm­húsi eða nálægt því eins og tíðkast í Danmörku og Noregi. Sú tak­mörkun sem gert er ráð fyrir í frum­varp­inu gangi ekki of nærri meg­in­regl­unni um opin þing­höld að mati flutn­ings­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár