Vaggað í svefn!

Marga full­orðna hefur dreymt um að láta keyra sig um í barna­vagni. Nú hefur verið gerð rann­sókn sem sýnir að rugg bætir svefn, og því hægt að und­ir­byggja slíka ákvörðun með vís­inda­legri til­vísun.

Margir kann­ast við að horfa öfund­ar­augum á barna­vagna sem rugga eftir göt­unum – hversu nota­legt hlýtur það að vera að liggja í svona vagni og láta vagga sér í svefn?

Þetta er ekki ósvipað þeirri til­finn­ingu sem hellist ein­hverra hluta yfir mann í strætó, marrið í vagn­inum, hit­inn og hið ómissandi rugg vagns­ins hefur þessi áhrif á mann.

Það eru a.m.k. nið­ur­stöður rann­sóknar sem fram­kvæmd var sem sam­vinnu­verk­efni háskól­anna í Genf og Lausanne í Sviss. Rann­sóknin var birt í Current Biology, en í henni voru 18 heil­brigðir ein­stak­lingar fengnir til að taka þátt í svefn­rann­sókn.

Sjálf­boða­lið­arnir voru ann­ars vegar látnir sofa í hefð­bundnu rúmi og hins vegar í rúmi sem bjó til temmi­lega rugg­hreyf­ingu. Allir sjálf­boða­lið­arnir próf­uðu báðar með­ferðir. Markmið rann­sókn­ar­innar var að skoða hvort það hefði áhrif á svefn sjálf­boða­lið­anna að vera vaggað í svefn.

Í ljós kom að ruggið hafði tölu­verð áhrif á svefn sjálf­boða­lið­anna. Í fyrsta lagi voru þeir mark­tækt fljót­ari að sofna þegar þeim var ruggað, sam­an­borið við þegar þeir sváfu í hefð­bundnum rúmum. Auk þess virt­ust sjálf­boða­lið­arnir fá betri næt­ur­svefn, með lengri tíma í djúpsvefni og færri til­fellum þar sem þeir vökn­uðu.

Þegar sjálf­boða­lið­arnir voru svo beðnir um að þreyta minnis­próf að morgni dags kom í ljós að það að vera vaggað í svefni bætti minni þeirra tölu­vert.

Hér að um mjög lítið úrtak að ræða og því erfitt að ákvarða hversu mikil þessi áhrif eru í raun og veru. Hins vegar rýma þessar nið­ur­stöður mjög vel við aðra rann­sókn, sömu vís­inda­hópa, sem fram­kvæmd var á músum. Mýsnar virt­ust reyndar ekki upp­lifa færri til­felli þar sem þær vökn­uðu. Þær voru þó mun fljót­ari að festa svefn meðan þeim var ruggað, á sama hátt og mennskir sjálf­boða­liðar.

Þessar nið­ur­stöður gefa að minnsta kosti vonir um mikla sölu á full­orð­ins barna­vögnum, svona ef ein­hver þarna úti hafði hugsað sér að setja slíkt snilld­ar­tæki í fram­leiðslu.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatinn.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár