Oft verið að ræða allt aðra hluti en þriðja orkupakkann

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son telur það afskap­lega óskyn­sam­legt ef Ísland myndi ganga út úr sam­starf­inu um EES-samn­ing­inn. Hann segir að útsend­arar frá norska Mið­flokknum, sem hafi þá stefnu að ganga út úr EES, séu eins og gráir kettir á Íslandi.

„Þegar það kemur gagn­rýni á eitt­hvað eins og þriðja orku­pakk­ann þá tek ég það mjög alvar­lega. Við sögðum að við ætl­uðum að skoða þetta jafn­vel og mögu­legt er. Það er það sem við erum að gera. Hins vegar liggur það alveg fyrir að það er alveg ljóst að menn eru oft að tala um allt aðra hluti heldur en þriðja orku­pakk­ann þegar menn eru að ræða þessa hluti[...]Þetta er eitt­hvað sem við erum að fá frá Noregi, enda eru norskir útsend­arar sem eru bara hér eins og gráir kettir frá norska Mið­flokknum sem að hafa það á stefnu­skrá sinni að ganga út úr EES.“

Þetta segir Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem frum­sýndur verður klukkan 21 í kvöld. Þar ræðir hann meðal ann­ars samn­ing­inn um Evrópska efna­hags­svæðið (EES), norð­ur­slóða­mál, þriðja orku­pakk­ann og Brexit, svo fátt eitt sé nefnt.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Guð­laugur Þór segir í þætti kvölds­ins að það sé kald­hæðn­is­legt að öfga­fylk­ingar úr báðum áttum í Evr­ópu­um­ræð­unni virð­ist nota sömu rökin fyrir afstöðu sinni. „Þeir sem vilja fara í ESB hafa sagt það að við tökum 90 pró­sent af gerð­unum og þess vegna ættum við að fara inn. Nú koma hinir sem vilja fara út úr EES og segja að við tökum upp 90 pró­sent af gerð­unum, þetta er algjör­lega óásætt­an­legt, við þurfum að fara út úr EES.

Þetta er nátt­úru­lega ekki rétt. Ef menn kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu, sem ég held að væri afskap­lega óskyn­sam­legt, að við vildum fara út úr EES, þá skulum við und­ir­byggja það mjög vel.“

[adspot]Utan­rík­is­ráð­herr­ann skip­aði starfs­hóp til að fara yfir aðild Íslands að EES í ágúst síð­ast­liðnum. Hópurinn, sem Björn Bjarna­son leiðir, hefur tólf mán­uði til að klára vinnu sína og á þá að skila ráðu­neyt­inu skýrslu.

Guð­laugur Þór segir það gríð­ar­lega mik­il­vægt fyrir Ísland að hafa aðgang að þeim stóra mark­aði sem innri mark­aður Evr­ópu­sam­bands­ins sé. Þá geti litlu fyr­ir­tækin á litla Íslandi keppt á jafn­rétt­is­grunni við fyr­ir­tækin á meg­in­land­inu. „Þau tæki­færi eru nokkuð sem við verðum þá að vera viss um að fá með öðrum hætti, ef við ætlum að fara út úr EES. En ég tel mjög mik­il­vægt að taka þessa umræðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár