Steinunn Þóra og Haraldur kjörin varaforsetar forsætisnefndar Alþingis

Steinunn Þóra Árna­dóttir þing­maður Vinstri grænna og Haraldur Bendikts­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa verið kjörin vara­for­setar for­sætis­nefndar Alþingis.

Steinunn Þóra Árnadóttir þingmaður Vinstri grænna og Haraldur Bendiktsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Steinunn Þóra Árna­dóttir þing­maður Vinstri grænna og Haraldur Bendikts­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Samsett mynd

Steinunn Þóra Árna­dóttir þing­maður Vinstri grænna og Haraldur Bendikts­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins voru kjörin vara­for­setar for­sætis­nefndar Alþingis í dag. Þetta kemur fram í frétt Frétta­blaðs­ins.

[links]Þau munu nú að taka fyrir Klaust­ur­málið en kosið var um málið á Alþingi fyrr í dag. Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, og allir vara­for­setar úr hópi þing­manna, sögðu sig frá umfjöllun um Klaust­ur­málið, vegna van­hæfis þann 17. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

Steinunn Þóra og Haraldur voru útnefnd en farið var eftir því hvaða þing­menn væru óum­deil­an­lega hæf­ir til um­fjöll­un­ar um málið og hefðu hvorki tjáð sig um það í ræðu eða riti.

Kosið var, eins og áður segir, um hvort útnefna ætti vara­for­set­ana á Alþingi í dag og voru heitar umræður um málið á þingi, sam­kvæmt Frétta­blað­inu. Þótti þing­mönnum Mið­flokks­ins, og tveimur óháðum þing­mönnum, málið ekki stand­ast lög.

Tillagan var sam­þykkt með 45 atkvæðum gegn 9.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár