Þolendur eiga ekki að þurfa að sitja undir Klausturmönnum

Helga Vala Helga­dóttir, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, segir að Ágúst Ólafur Ágústs­son muni ekki koma aftur til starfa í næstu viku. Hún veit ekk­ert um hvort Bergþór Ólason eða Gunnar Bragi Sveins­son ætli að gera það.

Helga Vala Helga­dóttir, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, segir að þær konur sem urðu fyrir barð­inu á tali þing­manna sem voru á Klaust­ur­bar 20. nóv­em­ber 2018 eigi ekki að þurfa að sitja undir þeim í þing­störfum.

Þingið hafi ríku eft­ir­lits­hlut­verki að gegna, sem birt­ist meðal ann­ars í sam­skiptum milli ráð­herra og þing­manna vegna óund­ir­bú­inna fyr­ir­spurna. „Maður veltir fyrir sér til dæmis í stöðu Lilju Alfreðs­dóttur sem heldur betur varð fyrir barð­inu á orðum þessa hóps. Að mínu áliti á hún ekki að þurfa að sitja undir fyr­ir­spurnum frá þessu fólki. Mér finnst það bara hennar réttur að þurfa það ekki.

[adspot]Ég get nefnt fleiri. Flokks­systir mín, Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir, sem líka fékk yfir sig svo­leiðis dríf­una frá tveimur þarna sem nú eru í leyfi, á mjög meið­andi og niðr­andi hátt. Mér finnst henni ekki bera nein skylda til að vera í nokkru ein­asta sam­starfi við þessa menn. Þetta er bara mín skoðun. Mér finnst ein­hvern veg­inn að þessir ein­stak­lingar, og þau öll, verði að hugsa þetta svona.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, við Helgu Völu í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem frum­sýndur var á mið­viku­dags­kvöld. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Helga Vala sagð­ist lítið vita um hvort og hvenær þeir þrír þing­menn sem eru í leyfi, þar á meðal einn sam­flokks­maður hennar í Sam­fylk­ing­unni, muni snúa aftur. Ágúst Ólafur Ágústs­son til­kynnti 7. des­em­ber að hann myndi fara í tveggja mán­aða leyfi eftir að trún­að­ar­nefnd Sam­fylk­ing­ar­innar veitti honum áminn­ingu fyrir áreitni í garð konu. Hann er því ekki vænt­an­legur aftur til þing­starfa fyrr en í fyrsta lagi 7. febr­úar.

[links]Helga Vala seg­ist halda að ekk­ert liggi fyrir um hina tvo, Mið­flokks­menn­ina Gunnar Braga Sveins­son og Bergþór Ólason. „Ég hef heyrt því fleygt að það náist ekki í þá. Ég set það fram án ábyrgðar og ég veit það ekki hvort það er rétt. Það gæti alveg eins verið kjafta­saga eins og hvað annað. Ég kem alltaf að sömu nið­ur­stöðu. Sá sem tekur sæti á Alþingi hann þarf alltaf að kanna það hjá sjálfum sér hvort hann geti sinnt sínu starfi. Starfið okkar er mjög fjöl­breytt. Við bæði tökum á móti fólki fyrir fasta­nefnd­unum og fáum alls­konar fólk þangað til þess að svara spurn­ingum og upp­lýsa okkur. Líka hags­muna­að­ila sem eru þá að biðja okkur um eitt­hvað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár