Hefur áhyggjur af fordæminu þegar þingmenn neita að koma fyrir nefndir

Formaður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar vill að for­sætis­nefnd skoði hvort að breyta þurfi reglum þannig að t.d. þing­mönnum verði gert skylt að mæta fyrir þing­nefndir.

Helga Vala Helga­dóttir, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, seg­ist hafa miklar áhyggjur af því for­dæmi sem Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Gunnar Bragi Sveins­son, þing­menn Mið­flokks­ins, settu þegar þeir neit­uðu að koma fyrir nefnd­ina vegna sendi­herra­máls­ins svo­kall­aða. „Ég vona að þeir aðilar sem við þurfum að kalla fyrir nefnd­ina í hverri viku, mörgum sinnum á hverju þingi, ég vona að þeir horfi ekki á þessa tvo aðila, Sigmund Davíð Gunn­laugs­son og Gunnar Braga Sveins­son, og líti til þeirra sem for­dæm­is­gjafa.“

Sömu­leiðis seg­ist hún vona að almenn­ingur í land­inu, sem þing­nefndir þurfi oft að leita til, vegna álita eða svara við ein­hverjum störfum eða starfs­háttum, sem og emb­ætt­is­menn, ráð­herrar og for­stjórar rík­is­fyr­ir­tækja, finni til ábyrgðar sinnar gagn­vart sam­fé­lag­inu og mæti fyrir fasta­nefndir Alþingis þegar þess sé óskað.

[adspot]Þetta er meðal þess sem fram kemur í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, við Helgu Völu í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem frum­sýndur var á mið­viku­dags­kvöld. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Í upp­hafi opins fundar nefnd­ar­innar, sem haldin var á mið­viku­dags­morgun, las Helga Vala upp yfir­lýs­ingar frá Sigmundi Davíð og Gunnari Braga þar sem þeir gagn­rýndu málið allt og sér­stak­lega Helgu Völu sem for­mann stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar. Þetta var í annað sinn sem þeir neit­uðu að koma fyrir nefnd­ina til að ræða grun­semdir um póli­tísk hrossa­kaup með sendi­herra­stöður, sem þeir ræddu í frægu drykkju­sam­læti á Klaust­ur­bar í nóv­em­ber 2018.

[links]Aðspurð hvort að það komi til greina að boða Sigmund Davíð og Gunnar Braga aftur til fundar við nefnd­ina segir Helga Vala að þeir séu nú búnir að lýsa yfir sinni skoðun. „Ég las upp þeirra yfir­lýs­ingar eins og óskað var eftir. Þær voru nokkuð afger­andi. Þeim finnst sem þing­menn að þeim beri engin skylda til að mæta fyrir fasta­nefndir þings­ins. Ég held að þetta sé mál sem for­sætis­nefnd Alþingis þurfi að skoða. Það er auð­vitað þannig í lögum um þing­sköp Alþingis að það er hvergi minnst á skyldu for­stjóra rík­is­stofn­ana, ráð­herra eða þing­manna til að mæta. Það er ekki eins og er í lögum um með­ferð saka­mála þar sem þú getur látið hand­taka ein­stak­ling og færa hann í skýrslu­töku. Í gjald­þrota­lög­unum er það hægt líka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár