Hefur verið rætt óformlega að skipa rannsóknarnefnd vegna sendiherramálsins

Formaður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar seg­ist telja að það verði að skoða hvort að skipa þurfi rann­sókn­ar­nefnd um sendi­herra­málið svo­kall­aða, sem snýst um meint póli­tísk hrossa­kaup um sendi­herra­stöður. Þetta kemur fram í sjón­varps­þætt­inum 21.

Helga Vala Helgadóttir stýrði fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í morgun.
Helga Vala Helga­dóttir stýrði fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í morgun. Mynd: Bára Huld Beck

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar þings­ins, segir að hún telji að skoða þurfi hvort að skipa þurfi rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um sendi­herra­málið svo­kall­aða. „Það hefur verið rætt við mig óform­lega bæði innan og utan þings frá lög­spek­ingum.“

[adspot]Þingið hafi vald til þess að skipa slíkar rann­sókn­ar­nefndir og ef slík yrði skipuð myndi koma í ljós hvort þeir þing­menn sem neit­uðu að mæta fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd geti sagst ekki ætla að mæta fyrir rann­sókn­ar­nefnd.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, við Helgu Völu í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem sýndur verður klukkan 21 í kvöld. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Fyrr í dag fór fram fundur stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd um sendi­herra­málið svo­kall­aða. Það er angi af Klaust­ur­mál­inu, sem snýst um orð­ræðu sem við­höfð var í drykkju­sam­læti sex þing­manna Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins á Klaust­ur­bar 20. nóv­em­ber 2018. Eitt þeirra við­fangs­efna sem þar voru rædd voru póli­tísk hrossa­kaup um sendi­herra­stöð­ur. Á upp­töku Báru Hall­dórs­dóttur af sam­tali þing­mann­anna heyr­ist Gunnar Bragi Sveins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra og vara­for­maður Mið­flokks­ins, ræða hrossa­­­kaup um skipan Árna Þórs Sig­­urðs­­son­­ar, fyrr­ver­andi þing­­manns Vinstri grænna, og Geirs H. Haar­de, fyrr­ver­andi for­­manns Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins, sem send­i­herra. Gunnar Bragi sagð­ist enn­fremur hafa sagt við Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í kjöl­farið að honum þætti „sann­­gjarnt að þið horfið til svip­aðra hluta þegar ég þarf á því að halda.“

Á upp­tök­unum heyr­ist Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, stað­festa þessa frá­sögn Gunn­ars Braga. Eftir að upp­­tök­­urnar voru gerðar opin­berar hafi þeir þver­­tekið fyrir að sagan um lof­orðið hafi verið sönn. Gunnar Bragi sagð­ist hafa verið að ljúga upp á Bjarna Bene­dikts­son.

Hvorki Gunnar Bragi né Sig­mundur Davíð mættu á fund nefnd­ar­innar í morgun þrátt fyrir að hafa verið boð­aðir á hann. Þess í stað sendu þeir yfir­lýs­ingar þar sem þeir gagn­rýndu málið allt og sér­stak­lega Helgu Völu sem for­mann stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar.

[adspot]Helga Vala segir að það að skipa sendi­herra sé ekki lög­brot, óháð því hvort hann komi úr póli­tík eða við­skipta­líf­inu. „Það bara má og þekk­ist bæði hér­lendis og erlendis. Það að gjalda slíkan greiða eða að fá emb­ætt­is­mann eða ráð­herra, í þessu til­viki Gunnar Braga, til þess að aðhaf­ast eitt­hvað gegn því að hann fái eitt­hvað síðar, það er lög­brotið.“

Hún segir að það liggi fyrir að Gunnar Bragi lýsi stöð­unni nákvæm­lega þannig á upp­tök­unni frá Klaust­ur­barnum. „Fyrst sögð­ust þeir ekki hafa sagt þetta. Í yfir­lýs­ingu Sig­mundar Davíðs kom fram að hann teldi að átt hefði verið við upp­tök­una, eða að það hefði ekki verið búið að rann­saka hvort að átt hefði verið við upp­tök­una þannig að vænt­an­lega hafi orð verið slitin ein­hvern veg­inn úr sam­hengi eða púsluð ein­hvern veg­inn saman til þess að fá þessa útkomu. Það var að minnsta kosti ekk­ert í orðum þeirra sem mættu í morgun sem benti til þess að þetta lög­brot hefði átt sér stað. Hvert fram­haldið verður veit ég ekki. Að minnsta kosti þeir sem þarna voru hafa verið mjög missaga um þetta allt saman.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár