Bjarni kannast ekki við pólitísk hrossakaup um sendiherraskipan

Bjarni Bene­dikts­son segir að áhugi Gunnars Braga Sveins­sonar á sendi­herra­stöðu hafi aldrei verið rædd í því sam­hengi að til stæði að upp­fylla ein­hver gefin lof­orð eða meint sam­komu­lag. Utan­rík­is­ráð­herra segir Bjarna aldrei hafa skipað sér að gera nokkuð.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að hann kann­ist ekki við að póli­tísk hrossa­kaup hafi átt að eiga sér stað vegna skipan sendi­herra sem leiða ætti til þess að Gunnar Bragi Sveins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra og þing­maður Mið­flokks­ins, fengi slíka stöðu.

[links]Þetta kom fram í máli hans þegar Bjarni kom fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd á opnum fundi í dag.

Bjarni sagð­ist kann­ast við að Gunnar Bragi hefði komið fram áhuga sínum um að starfa í utan­rík­is­þjón­ust­unni. Hann kann­að­ist líka við að hafa setið fund með Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­manni Mið­flokks­ins, og Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni utan­rík­is­ráð­herra síðla hausts 2018 þar sem Sig­mundur Davíð kom á fram­færi áhuga Gunnars Braga. Á fund­inum hafi Guð­laugur Þór komið fram þeirri skoðun sinni að hann vildi frekar fækka sendi­herrum en fjölga þeim.

Gæti vel verið að Bjarni hafi lagt til fundinn

Bjarni sagði að hann og Sig­mundur Davíð hefðu átt í ein­hverjum sam­skiptum áður en að fund­ur­inn með Guðlaugi Þór fór fram. Hann man ekki hvor þeirra lagði til að þeir myndu hitt­ast með utan­rík­is­ráð­herra, og það gæti vel verið að það hafi verið hann. Til­gang­ur­inn hafi verið að fá það beint frá utan­rík­is­ráð­herr­anum hver staðan varð­andi sendi­herra­stöður væri og hans hlut­verk hafi verið að leiða menn saman.

[adspot]Á fund­inum eða í aðdrag­anda hans hafi hins vegar, að sögn Bjarna, málin aldrei verið rædd í því sam­hengi að upp­fylla ein­hver gefin lof­orð eða meint sam­komu­lag. Fund­ur­inn hafi ein­ungis að koma á fram­færi áhuga Gunnars Braga á að starfa í utan­rík­is­þjón­ust­unni.

Bjarni var einnig spurður hvort það væri algengt að sam­töl af þessu tagi ættu sér stað. Hann sagði að hann grun­aði að það væri mjög algengt að utan­rík­is­ráð­herrar fái beiðnir af þessu tagi. „Ég hef sjálfur ein­hverja reynslu af því.“

Bjarni sagði að það mætti alveg velta því fyrir sér hvort að auka þyrfti form­kröfur til sendi­herra sem skip­aðir væru. Hann væri þó sjálfur þeirrar skoð­unar að margir fyrr­ver­andi þing­menn sem skip­aðir hefðu verið sendi­herrar væri „mjög vel til þess fallnir að taka að sér verk­efnin sem fel­ast í sendi­herra­stöð­unum.“

Bjarni taldi það þó ekki til bæt­ingar að fella skipan sendi­herra inn í umsókn­ar­ferli með aðkomu hæf­is­nefnda. Það væri meira unnið með því að utan­rík­is­ráð­herra mætti í þingið og gerði grein fyrir skipun sendi­herra þegar slík yrði gerð og að þingið þyrfti jafn­vel að sam­þykkja hana, líkt og gert er víða ann­ars staðar.

Enginn þrýsti á utanríkisráðherra

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra kom einnig fyrir nefnd­ina og svar­aði að öllu leyti efn­is­lega með sama hætti og Bjarni um til­drög fund­ar­ins með Sigmundi Davíð og það sem fram fór á honum. Guð­laugur Þór benti á að hann hefði ekki skipað einn ein­asta sendi­herra frá því að hann tók við ráðu­neyt­inu.

Í sam­tölum Gunnars Braga og Sig­mundar Davíð á Klaust­ur­bar var ýjað að því að Guðlaugi Þór bæri að gjalda þeim greiða þegar hann tók við sem utan­rík­is­ráð­herra. „Það var bara ekki þannig,“ sagði utan­rík­is­ráð­herra.

Guð­laugur Þór sagði enn fremur að engin hafi þrýst á hann að skipa Gunnar Braga sem sendi­herra. Bjarni Bene­dikts­son hafi aldrei skipað honum að gera nokkurn skap­aðan hlut á meðan að sam­skiptum þeirra hefur staðið, en þau teygja sig aftur um ára­tugi.

Mættu hvorugir

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Gunnar Bragi Sveins­son mættu hvor­ugir á fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar. Í upp­hafi fundar voru lesnar yfir­lýs­ingar frá þeim báðum. Gunnar Bragi sagði í henni að til­efni fund­ar­ins væri ólög­mælt hljóð­ritun af ummælum sem hann hefði látið falla í trún­að­ar­spjalli á veit­inga­stað í borg­inni.

[adspot]Hann hafi þegar á opin­berum vett­vangi sagt að þar hafi hann farið með rangt mál og við það væru engu að bæta. Gunnar Bragi sagði enn fremur að til fund­ar­ins væri boðað í þeim „ann­ar­lega til­gangi“ að koma höggi á póli­tíska and­stæð­inga.

yfir­lýs­ingu Sig­mundar Davíðs sagði hann ófor­svar­an­legt hjá for­manni nefnd­ar­innar að halda fund um óljósar ásak­anir. Hann sagði enga við­hlít­andi rann­sókn hafa farið fram á því af hverju farið var í hljóð­upp­tök­urnar af við­ræð­unum á Klaust­ur­bar 20. nóv­em­ber og hvort þær hafi verið klipptar til.

Því væri eng­inn sið­ferð­is­legur grund­völlur fyrir þeirri umræðu sem for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, Helga Vala Helga­dóttir, boðað til. Þess vegna myndi hann ekki mæta á fund­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár