Meint pólitísk hrossakaup um sendiherrastöður til umfjöllunar

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og utan­rík­is­ráð­herra munu báðir koma fyrir stjórn­sýslu- og eft­ir­lits­nefnd í dag til að ræða sendi­herra­málið. Ekki liggur fyrir hvort for­maður og vara­for­maður Mið­flokks­ins, sem báðir voru boð­aðir, muni mæta.

Hvorki Sigmundur Davíð Gunnlaugsson né Gunnar Bragi Sveinsson hafa staðfest komu sína á fundinn.
Hvorki Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son né Gunnar Bragi Sveins­son hafa stað­fest komu sína á fund­inn. Mynd: Miðflokkurinn

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, koma báðir fyrir stjórn­sýslu- og eft­ir­lits­nefnd á fundi hennar sem hefst klukkan 10:30 í dag til að ræða um sendi­herra­málið svo­kall­aða.

Fund­ur­inn verið opinn og hægt verður að fylgj­ast með honum á for­síðu vefs Alþingis.

Bæði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Mið­flokks­ins, og Gunnar Bragi Sveins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra og vara­for­maður Mið­flokks­ins, hafa einnig verið boð­aðir á fund­inn en ekki liggur fyrir hvort að þeir muni mæta.

[adspot]Upp­haf­lega stóð til að fund­ur­inn færi fram 12. des­em­ber síð­ast­lið­inn en þeim fundi var frestað eftir að Sig­mundur Davíð og Gunnar Bragi svör­uðu ekki ítrek­uðum boðum um að mæta til fund­ar­ins. Í facebook-færslu sem birt­ist á síðu Mið­flokks­ins í kjöl­farið sagði að þeir hefðu enga skyldu til að mæta og sagði að það væri „afar fátítt að þing­nefndir séu not­aðar í jafn aug­ljósum póli­tískum til­gangi og átti að gera. Slíkt á ekki að við­gang­ast.“

Þá var Guð­laugur Þór staddur erlendis þegar fund­ur­inn átti að eiga sér stað og átti því ekki heim­an­gengt.

Segist hafa verið að segja ósatt

Sendi­herra­málið er angi af Klaust­ur­mál­inu. Eitt við­fangs­efna drykkju­sam­lætis sex þing­manna Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins á Klaust­ur­bar 20. nóv­em­ber 2018 voru póli­tísk hrossa­kaup um sendi­herra­stöður. Á upp­töku Báru Hall­dórs­dóttur af sam­tali þing­mann­anna heyr­ist Gunnar Bragi ræða hrossa­kaup um skipan Árna Þórs Sig­urðs­son­ar, fyrr­ver­andi þing­manns Vinstri grænna, og Geirs H. Haarde, fyrr­ver­andi for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem sendi­herra.

Á meðal þess sem Gunnar Bragi segir er: „Þegar ég ákvað það að skipa Geir H. Haarde sendi­herra í Washington […] þá ræddi ég við Sig­urð Inga. Honum var ekki skemmt enda hafði hann ákært Geir. Ég ræddi þetta auð­vitað við alla flokka. Ég sá það að ég gæti ekki skipað Geir einn. Það yrði of þungur biti fyrir þingið og alla. Það sem ég gerði var að skipa Árna Þór (Sig­urðs­son) sem sendi­herra. Hann er nátt­úru­lega bara […], þó hann sé frændi minn. VG hefðu getað orðið brjál­aðir en Katrín sagði ekki orð. Ég átti fund með henni. Geir slapp í gegnum þetta eins og smjör á smokknum hjá honum þarna Frið­riki Ómari.“

[links]Síðar bætti Gunnar Bragi við: „At­hyglin fór öll á Árna Þór. Ann­ars hefði Vinstri Græna liðið orðið brjál­að[...]Árni var nátt­úru­lega ekk­ert annað en sendi­tík Stein­gríms. Plottið mitt var að Geir yrði í skjól­inu hjá Árna og það virk­aði ekki bara 100 pró­sent heldur 170 pró­sent því að Árni fékk allan skít­inn. Svo sagði Geir við mig löngu seinna: „Þakka þér fyr­ir. Það var eng­inn sem gagn­rýndi mig.“ Ég lét Árna taka allan slag­inn.[...]Ég átti fund með Bjarna í fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Ég sagði við Bjarna: „Það er algjör­lega sjálf­sagt. Auð­vitað geri ég Geir að sendi­herra.“ Og ég sagði við hann: „Og mér finnst sann­gjarnt að þið horfið til svip­aðra hluta þegar ég þarf á því að halda.“ Það var ekki vegna þess að ég hafi verið að hugsa um að skipta um flokk. Ég var ekki kom­inn út þegar Þórólfur (Gísla­son) hringir og spyr: „Ætlar þú að verða sendi­herra?“ Ég var ekki kom­inn út úr ráðu­neyt­in­u.“

Á upp­tök­unum heyr­ist Sig­mundur Davíð stað­festa þessa frá­sögn Gunnars Braga. Eftir að upp­tök­urnar voru gerðar opin­berar hafi þeir þver­tekið fyrir að sagan um lof­orðið hafi verið sönn. Gunnar Bragi sagð­ist hafa verið að ljúga upp á Bjarna Bene­dikts­son.

Bjarni Bene­dikts­son hefur jafn­framt neitað því að hafa veitt slíkt lof­orð og Guð­laugur Þór seg­ist ekki vita til þess að til stæði að gera Gunnar Braga að sendi­herra þótt þeir hafi báðir stað­fest að fundir hafi átt sér stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár