Mögu­leg­ar laga- og reglu­breyt­ing­ar ræddar á fundi for­sæt­is­nefnd­ar

Samkvæmt for­seta Alþingis voru mögu­leg­ar laga- og reglu­breyt­ing­ar ræddar á fundi for­sæt­is­nefnd­ar í gær til þess að Klaust­ur­málið kom­ist í far­veg. Sú umræða verður tek­in áfram á fundi þing­flokks­for­manna í dag.

Stein­grím­ur J. Sig­fús­son, for­seti Alþing­is, fund­ar með for­mönn­um þing­flokka í dag en þar verður Klaust­ur­málið, og ráð­staf­an­ir vegna þess, meðal ann­ars á dag­skrá. Hann segir að við­fangs­efnið sé að koma mál­inu í réttan far­veg svo það geti gengið sína leið. Þetta kemur fram í frétt Mbl.is í dag.

Jafn­framt segir í frétt­inni að á fundi for­sæt­is­nefnd­ar í gær hafi mögu­leg­ar laga- og reglu­breyt­ing­ar verið rædd­ar til þess að málið kom­ist í far­veg og verði sú umræða tek­in áfram á fundi þing­flokks­for­manna í dag.

[adspot]

Stein­grím­ur seg­ir málið raun­ar ekki mjög flókið. Þetta snú­ist um að málið geti gengið rétta boð­leið til siða­nefnd­ar. „Það er lík­leg­asta leiðin og sú sem til stóð, en strand­aði á van­hæfi for­sæt­is­nefnd­ar. Verk­efnið er að leysa úr þessu,“ segir hann í sam­tali við Mbl.is.

Hann segir enn fremur að menn vilji lík­lega ræða þetta inn­an þing­flokk­anna, sem flest­ir funda á mið­viku­dög­um. Málið verði því í vinnslu í vik­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár