Karolina Fund: Lifum lengi - betur

Safnað fyrir bók og fyr­ir­lestri fyrir þá sem vilja lengja og bæta líf sitt.

Hjónin Guðjón Svansson og Vala Mörk eru ásamt tveimur yngstu sonum sínum á leið í fimm mán­aða rann­sókn­ar­leið­angur um heim­inn. Þau ætla að heim­sækja fimm sam­fé­lög þar sem fólk lifir óvenju lengi og við mjög góða heilsu. Fyrsti áfanga­staður þeirra er Loma Linda í Banda­ríkj­unum, þaðan fara þau til Kosta Ríka, svo Okinawa í Japan og enda á því að dvelja á Ikaría og Sardiníu í Evrópu.

Guðjón og Vala ætla að skrifa bók um lang­lífi og góða heilsu byggða á því sem þau læra í ferð­inni. Þau stefna einnig að því að ferð­ast um allt Ísland haustið 2019 og halda fyr­ir­lestur um sama efni. Þau eru nú að safna fyrir kostn­aði við gerð bók­ar­innar og und­ir­bún­ings á fyr­ir­lestr­inum á Karolina Fund.

Hvernig kvikn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Ég var á afmæl­is­ráð­stefnu VIRK í vor og sá á skjánum kort af Blue Zones í kynn­ingu hjá hol­lenskri konu, Dr. Machteld Huber, sem heill­aði mig upp úr skónum með pæl­ingum sínum um jákvæða heilsu­efl­ingu.

[adspot]Ég sat þarna í salnum, horfði á skjá­inn og hugs­aði, við verðum að heim­sækja þessa staði og læra meira um hvernig fólk fer að því að lifa svona lengi við svona góða heilsu. Ég sagði Völu frá þessu þegar ég kom heim og stuttu síðar höfðum við tekið ákvörðun um að kýla á þetta.“

Hver eru þemu verk­efn­is­ins?

„Þema verk­efn­is­ins er lang­lífi og góð heilsa í sam­fé­lögum. Við Íslend­ingar eigum marga ein­stak­linga sem hafa lifað lengi, en það sem er sér­stakt við þessa staði er að lang­lífi er ekki und­an­tekn­ing, heldur regla. Það finnst okkur heill­andi. Við viljum kom­ast að því hvað þessi sam­fé­lög eru að gera betur en við Íslend­ingar og svo miðla af þeirri þekk­ingu þegar við komum aftur heim. Við stefnum að því að gefa út bók og draum­ur­inn er að halda fyr­ir­lestra í öllum sveit­ar­fé­lögum á Íslandi þar sem við segjum frá því sem við höfum lært, ræðum við heima­menn og spáum saman í hvað við getum nýtt okkur til þess að lifa lengur og betur.“

Er ekki flókið að stökkva út í heim í marga mán­uði með heila fjöl­skyldu?

„Jú, en samt ekki. Við fórum í árs ferða­lag með syni okkar þrjá fyrir 10 árum, þá var sá yngsti ekki fæddur. Sú ferð var frá­bær og kenndi okkur margt, ekki síst að það er virki­lega gaman að láta drauma sína ræt­ast. Sér­stak­lega þegar maður þarf að hafa aðeins fyrir þeim. Núna erum við að láta tvo drauma ræt­ast í einu, ann­ars vegar þann draum að fá að læra meira um jákvæða heilsu­efl­ingu og lang­lífi, en það er eitt­hvað sem við hjónin brennum fyrir, og hins vegar að sýna sjálfum okkur og strák­unum okkar í verki að maður getur gert það sem maður vill ef maður þorir og trúir.“

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár