Kalla eftir tafarlausri afsögn þingmanna

Þrenn evr­ópsk sam­tök fatl­aðs fólks og kvenna kalla eftir taf­ar­lausri afsögn þing­mann­anna sex sem við­höfðu niðr­andi ummæli á Klaustur bar. Þau telja að það sé hið eina rétta í stöð­unni.

Þingmennirnir sex sem sátu við drykkju á Klaustur bar 20. nóvember 2018 og töluðu um samstarfsfólk sitt og aðra samfélagsþegna.
Þing­menn­irnir sex sem sátu við drykkju á Klaustur bar 20. nóv­em­ber 2018 og töl­uðu um sam­starfs­fólk sitt og aðra sam­fé­lags­þegna. Mynd: Samsett mynd

Ummælin sem sex þing­menn Alþingis við­höfðu á Klaustur bar þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn er óaf­sak­an­leg hat­urs­orð­ræða og eru þeir hvattir til að segja af sér undir eins. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá þrennum Evr­ópu­sam­tökum fatl­aðs fólks og kvenna sem send var út þann 11. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

[links]„Okkur hjá sam­tök­unum the European Disa­bility Forum (EDF), the European Network on Independent Living (ENIL) og the European Women’s Lobby (EWL) mis­býður þær athuga­semdir sem íslensku þing­menn­irnir við­höfðu. Á einu augna­bliki líktu þing­menn­irnir Freyju Har­alds­dóttur, fyrr­ver­andi þing­mann­eskju og með­limi ENIL, þekktri bar­áttu­konu fyrir rétt­indum kvenna og fatl­aðs fólk, við sel. Þessar athuga­semdir eru hat­urs­orð­ræða. Þær hlut­gera konur og svipta þær mann­gildi og stað­festa þá stað­reynd að konur með fatl­anir standa frammi fyrir tvö­faldri mis­munun vegna fötl­unar sinnar og kyns,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Atvik eru rakin í yfir­lýs­ing­unni en þar segir að eftir að málið kom fyrir augu almenn­ings hafi Freyja hlotið afsök­un­ar­beiðni frá hátt settum stjórn­mála­manni á Íslandi. Henni hafi sú afsök­un­ar­beiðni þó ekki þótt vera ein­læg. Athuga­semd­irnar hafi verið útskýrðar með til­vísun í bar­áttu Freyju Har­alds­dóttur fyrir rétt­indum fatl­aðs fólks. Þetta sé dæmi­gerð til­raun til að færa sök ger­and­ans yfir á þol­and­ann og til að grafa undan virkni kvenna í stjórn­málum.

Ber vott um algjöra kvenfyrirlitningu

Haft er eftir Freyju að hún telji að hið versta í þessu sé það að fólk líti ekki svo á að í þess­ari árás skarist kyn og fötlun – heldur að um sé að ræða háð í garð fatl­aðs fólks. En þetta sé marg­slungn­ara en svo og beri vott um algjöra kven­fyr­ir­litn­ingu.

Einnig er vitnað í Þuríði Hörpu Sig­urð­ar­dóttur, stjórn­ar­með­lim í the European Disa­bility Forum og for­mann Öryrkja­banda­lags Íslands. „Það er sorg­legur vitn­is­burður um þessa þing­menn að þeir skuli atyrða fatlað fólk. Freyja Har­alds­dóttir er ein af virt­ustu frum­kvöðlum okkar og bar­áttu­mann­eskjum fyrir rétt­indum fatl­aðs fólks og kvenna, og þau hrak­yrði sem hún hefur mátt upp­lifa vekja sorg og sýna hvaða menn þing­menn­irnir sem um ræðir hafa að geyma,“ sagði Þuríður.

Hún bætti því við að þing­menn hafi umboð þjóð­ar­innar, þeir séu fyr­ir­myndir og þeim sé ætlað að iðka umboð sitt af heil­indum og virð­ingu fyrir öllum. Orð þeirra sýni hugs­un­ar­hátt sem ein­fald­lega leiðir af sér hindr­anir fyrir því að fatlað fólk geti notið sjálf­sagðra mann­rétt­inda, og útskýri eig­in­lega hvers vegna fram­farir í þeim efnum ger­ast of hægt hér á Íslandi.

Ofbeldi gegn konum gegnsýrir enn heimsbyggðina alla

Forseti European Women’s Lobby, Gwendoline Lefebvre, segir í yfir­lýs­ing­unni það vera morg­un­ljóst að hund­rað árum eftir að konur fengu kosn­inga­rétt sé enn langt í land með að konur fái notið jafn­réttis á við menn og með að karl­menn hætti að kom­ast upp með ofbeldi sitt gegn konum. „Það sem fr. Har­alds­dóttir hefur mátt þola er óvið­un­andi og færir heim sann­inn um það hvernig ofbeldi gegn konum og stúlkum gegn­sýrir enn Evrópu og heims­byggð­ina alla. EWL for­dæmir harð­lega allar birt­ing­ar­myndir ofbeldis gegn konum á vett­vangi einka­lífs, á opin­berum vett­vangi og í netheimum.“

Þau kalla því eftir taf­ar­lausri afsögn þing­mann­anna frá Alþingi Íslend­inga. Það sé hið rétta í stöð­unni.

Hér fyrir neðan má lesa yfir­lýs­ing­una í heild sinni.

[box]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár