Skuldabréfaeigendur WOW air í betri stöðu en á horfðist

Skil­mála­breyt­ingar á skulda­bréfa­út­gáfu flug­fé­lags­ins WOW air virð­ast vera tölu­vert betri en talið var. Veiga­mestu atriðin í skil­mál­breyt­ing­unum er að ekki verður farið fram á neina lækkun á höf­uð­stól bréf­anna auk þess sem vaxta­kjör hald­ast óbreytt.

Staða skuldabréfaeigenda WOW air sem lögðu fé í flugfélagið í haust virðist nú betri en á horfðist. Það er vegna þess að skilmálabreytingar á skuldabréfaútgáfu flugfélagins þykja mun betri en við var búist í lok síðasta mánaðar. Ekki verður farið fram á neina lækkun höfuðstóll bréfanna og vaxtakjör haldast óbreytt. Á móti kemur að skuldabréfaeigendur þurfi að aflétta þeim veðum sem þeir áttu í WOW air og sú hagnaðarvon sem skuldabréfaeigendur höfðu er tengdist áformum um að skrá WOW air á markað er ekki lengur fyrir hendi. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag.

Fjárfesting Indigo Partners háð skilmálabreytingum bréfanna

[links]Í september 2018 fór fram skuldabréfaútgáfa hjá WOW til að tryggja langtímafjármögnun félagsins. Skuldabréfaeigendur WOW air fjárfestu fyrir samtals 60 milljónir evra í útboðinu en þar á meðal keypti Skúli Mogensen, eigandi WOW air, skuldabréf fyrir 5,5 milljónir evra. Í ljós kom síðar að fjárhagsstaða WOW air var mun þrengri en menn töldu áður skuldabréfaútboðið átti sér stað.

Í lok nóvember bárust svo fréttir af því að ef fyrirhuguð kaup Icelandair Group á WOW air ætti að ná fram að ganga gætu skuldabréfaeigendur þurft að samþykkja tugprósenta afskrifrit af höfuðstól sínum. Nokkrum dögum seinna var síðan tilkynnt að Icelandair hefði hætt við kaupin á WOW air.

Nú vinnur WOW air að því að ná sam­komu­lagi við banda­ríska fjár­fest­inga­fé­lagið Indigo Partners um að fjár­festa í flugfélaginu, og gæti sú fjár­fest­ing verið upp á allt að 75 millj­ónir dala, eða 9,4 millj­arða króna. Sú fjárfesting er þó háð ýmsum skilyrðum m.a. niðurstöðu áreiðanleikakönnunar. Fjárfestingin er þó einnig háð samþykki skuldabréfaeigenda WOW air á ýmsum skilmálabreytingum bréfanna.

Ekki farið fram á lækkun höfuðstóls

Í skilmálabreytingunum er ekki farið fram á neina lækkun á höfuðstól bréfanna samkvæmt heimildarmanni Morgunblaðsins. Fyrst að útlit er fyrir að Skúli Mogensen, stofnandi og forstjóri WOW air, verði áfram við stjórnartaumana hjá félaginu og í ljósi þess að Indigo Partners er ekki að kaupa félagið að fullu telja skuldabréfaeigendur félagsins að ekki þurfi að koma til afskrifta, segir í umfjöllun Morgunblaðsins.

Auk þess verði vaxtakjör skuldabréfaflokksins óbreytt eða um 9 prósent en það samsvarar um 14 prósent krónuvöxtum vegna vaxtamunar. Þetta þykja ansi góð kjör og endurspegla þá áhættu sem skuldabréfaeigendur tóku segir heimildarmaður Morgunblaðsins.

Vilja falla frá greiðslu álags

Aftur á móti þurfa skuldabréfaeigendur að aflétta þeim veðum sem þeir áttu í WOW air. Samkvæmt Morgunblaðinu er heldur ekki sú hagnaðarvon sem tengdist áformum Skúla um að setja WOW air á markað ekki lengur til staðar því nú er farið fram á að fallið verði frá öllum kauprétti sem samið var um í skuldabréfaútboðinu í september. Mögulegt hefði verið að tryggja skuldabréfaeigendunum ávinning hefði félagið hækkað í virði eftir skráningu á markað.

Einnig er krafist þess að fallið verði frá upphaflegum skilmálum skuldabréfaútgáfunnar sem kváðu á um að útgefandi skuldabréfsins þyrfti að greiða 20 prósent álag ofan á höfuðstól bréfsins yrði það ekki að veruleika að WOW air yrði skráð á markað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár