Indigo gæti fjárfest í WOW air fyrir 9,4 milljarða

Enn er unnið að því að ná samn­ingum við Indigo Partners um fjár­fest­ingu í félag­inu.

WOW air er á uppleið á ný.
WOW air er á upp­leið á ný. Mynd: Úr safni

WOW air vinnur nú að því að ná sam­komu­lagi við banda­ríska fjár­fest­inga­fé­lagið Indigo Partners um að fjár­festa í sér, og gæti sú fjár­fest­ing verið upp á allt að 75 millj­ónir dala, eða 9,4 millj­arða króna. 

Frá þessu er greint á vef WOW air, en vinn­unni er ekki lokið enn.

[adspot]Til að áformin gangi eftir þurfa eig­endur skulda­bréfa WOW air að sam­þykkja ákveðnar breyt­ingar á skil­málum þeirra útgáfa sem þeir hafa keypt.

Í gær var til­kynnt um mik­inn sam­drátt í rekstri WOW air. Vélum félags­ins, sem voru 24 fyrir nokkrum vikum síðan, verða ell­efu innan skamms. Leið­ar­kerfi WOW air mun taka breyt­ingum og áfanga­stöðum fækkað. Þá munu allt að 350 manns missa vinn­una. Þar ef eru 111 fast­ráðnir starfs­menn auk hluta­starfs­manna og verk­taka.

WOW air tap­aði alls 33,6 millj­­ónum dala, sem jafn­­­gildir um 4,2 millj­­arði króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Á sama tíma­bili í fyrra nam tap félags­­ins 13,5 millj­­ónum dala, jafn­­virði tæp­­lega 1,7 millj­­arða króna miðað við núver­andi gengi. EBITDA félags­­ins fór úr því að vera jákvæð um 8,8 millj­­ónir dala fyrstu níu mán­uði síð­­asta árs í að vera nei­­kvæð um 18,9 millj­­ónir dala nú, sem er um 2,3 millj­­arða íslenskra króna.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um stöðu WOW air í frétta­skýr­ingu sem birt­ist í gær. Hana má lesa hér.

Athuga­semd rit­stj.: Fréttin hefur verið upp­færð og leið­rétt, en í upp­haf­legri frétt kom fram að fjár­fest­ingin væri frá­gengin, en svo er ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár