Skúli þrýstir á kröfuhafa

Mörg mál standa enn út af í við­ræðum Icelandair og WOW air. For­stjóri WOW setur þrýst­ing á kröfu­hafa að liðka fyrir kaupum Icelandair Group á öllu hlutafé félags­ins. Leigusalar WOW air sýna vax­andi óþreyju.

Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW air, sendi í gær bréf til þeirra fjár­festa sem tóku þátt í skulda­út­boði WOW air í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Í bréf­inu þrýstir hann á fjár­fest­anna að liðka fyrir kaupum Icelandair Group á öllu hlutafé félags­ins. Til þess að Icelandair Group geti keypt félagið og tekið eignir þess og skuldir inn á efna­hags­reikn­ing sam­stæðu sinnar þurfa kröfu­hafar WOW air og leigusalar þess að gefa eftir til­teknar kröfur og eftir atvikum liðka fyrir breyttum skil­málum í samn­ingum sínum við félagið. Að öðrum kosti er afar ósenni­legt að hlut­hafar Icelandair Group muni á hlut­hafa­fundi sem boð­aður hefur verið að morgni næst­kom­andi föstu­dags, sam­þykkja yfir­töku á félag­inu. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Fjórar ástæður fyrir verri stöðu félagsins

Í bréf­inu til fjár­fest­ana fór Skúli yfir þá stöðu sem félagið er nú í en ítrek­aði jafn­framt að með breyt­ingum á skil­málum hinna nýút­gefnu skulda­bréfa væru það ekki aðeins við­tak­endur bréfs­ins sem þyrftu að gefa eftir kröfur sínar, heldur einnig hann sjálfur. Í bréf­inu til­kynnir Skúli fjár­fest­unum að hann hafi sjálfur keypt skulda­bréf í útgáf­unni fyrir 5,5 millj­ónir evra eða um 770 millj­ónir króna en það eru um 11 pró­sent af þeim 50 millj­ónum evra sem söfn­uð­ust í útboð­inu. Það gefur til kynna að áhug­inn á þátt­töku á meðal ann­arra fjár­festa hafi verið enn minni en áður hafði verið upp­lýst um.

Í bréf­inu útlistar Skúli þá þröngu stöðu sem félagið er í og und­ir­strikar um leið að rekstr­ar­horfur þess hafi versnað til muna frá því að útboðið fór fram. Í umfjöllun Morg­un­blaðs­ins segir að í bréf­inu nefnir Skúli sér­stak­lega fjórar ástæður fyrir verri stöðu nú en í sept­em­ber. Í fyrsta lagi hafi nei­kvæð umræða um fjár­hags­stöðu félags­ins, meðan á skulda­bréfa­út­boð­inu stóð og í kjöl­far þess, haft nei­kvæð­ari áhrif á sölu félags­ins og skulda­stöðu en gert hafi verið ráð fyrir og að fjórði árs­fjórð­ungur komi verr út en áætl­anir voru byggðar á. Í öðru lagi hafi Primera air orðið gjald­þrota í októ­ber sem hafi leitt aukna nei­kvæðni yfir mark­að­inn. Þá hafi félagið verið að því komið að ganga frá sölu og end­ur­leigu á flug­vélum sem gengið hafi til baka en það bakslag hafi haft tæp­lega 3,2 millj­arða króna nei­kvæð áhrif á lausa­fjár­stöðu félags­ins. Í fjórða lagi hafi olíu­verð hækkað gríð­ar­lega á vik­unum og mán­uð­unum eftir útboðið sem hafi einnig sett þrýst­ing á fjár­hags­stöðu félags­ins.

Skúli segir í bréf­inu að þessar aðstæður hafi orðið þess vald­andi að nauð­syn­legt hafi reynst að leita frek­ari leiða til að tryggja fjár­mögnun félags­ins. „Það að skrifa þetta bréf er ekki gert af léttúð af neinu tagi og ég get full­vissað ykkur um að við erum að taka hvert það skref sem mögu­legt er til að tryggja áfram­hald­andi rekstur WOW air,“ segir Skúli í bréf­inu. Aldrei fyrr hefur Skúli birt jafn hisp­urs­laus lýs­ingu á raun­veru­legri stöðu félags­ins á opin­berum vett­vangi.

Mörg mál enn óleyst

[links]Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands í gær­morgun ítrek­aði Icelandair Group að enn hefði ekki tek­ist að upp­fylla alla fyr­ir­vara sem settir voru við kaup félags­ins á öllu hlutafé WOW air en samn­ingur þar að lút­andi var und­ir­rit­aður 5. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Aflétta verður öllum fyr­ir­vörum í tengslum við við­skiptin fyrir hlut­hafa­fund sem boð­aður hefur verið í Icelandair Group á föstu­dags­morg­unn, 30. Nóvember. Kaup Icelandair voru m.a. gerð með fyr­ir­vara um sam­þykki hlut­hafa­fundar Icelandair Group, sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­unar.

Í umfjöllun um málið í Mark­að­inum í dag er greint frá því að mikil óvissa sé um þau áform að greiða eig­endum skulda­bréfa WOW air höf­ul­stól bréfa sinna á gjald­daga, eftir þrjú ár, auk þókn­unar sem nemur 20 pró­sentum af höf­uð­stólnum gegn því að kaup­réttir þeirra í félag­inu verði felldir niður. Í bréfi WOW air til skulda­bréfa­eig­end­anna, dag­sett 9. nóv­em­ber, kom fram að það væri skil­yrði þess að yfir­taka Icelandair Group á félag­inu nái fram að ganga að kaup­rétt­irnir falli niður.

Aðrir fyr­ir­varar sem enn hefur ekki tek­ist að greiða úr tengj­ast samn­inga­við­ræðum við kröfu­hafa WOW air og leigu­sala félags­ins. Það eru átta félög, m.a. á Írlandi, Bermúda og í Delaware í Banda­ríkj­unum, sem leigja WOW air-vél­arnar 20 sem félagið hefur nú í förum milli Íslands og áfanga­staða í Evrópu og Banda­ríkj­unum.

Þannig miða samn­inga­við­ræður að því að kröfu­hafar, leigusalar, og eftir atvikum birgjar WOW air, sem eiga kröfur á hendur félag­inu, gefi eftir hluta skulda þess eða geri þær skil­mála­breyt­ingar sem greitt geta fyrir við­skipt­unum. Þannig mun ekki koma til greina af hálfu Icelandair Group að taka við skuld­bind­ingum WOW air í óbreyttri mynd. Ljóst er að skuld­setn­ing félags­ins, sem um mitt ár nam tugum millj­arða króna, mun hafa veru­leg áhrif á efna­hags­reikn­ing sam­stæðu Icelandair Group, verði af yfir­tök­unni. Enn sem komið er munu kröfu­hafar og leigusalar WOW air ekki hafa gefið skýrt svar um hvort orðið verði við beiðni um þær breyt­ingar sem liggja til grund­vallar fyrr­nefndum fyr­ir­vörum í kaupum Icelandair Group á félag­inu.

Mögulegar viðræður við aðra fjárfesta

Skúli Mogensen sendi tölvu­póst til starfs­manna í fyrra­dag þar sem hann full­yrti að WOW air ætti í við­ræðum við aðra fjár­festa en Icelandair um mögu­lega aðkomu að félag­inu. Það er í beinni and­stöðu við þær upp­lýs­ingar sem settar voru fram í til­kynn­ingu Icelandair til Kaup­hallar Íslands 5. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Samkvæmt umfjöllun Mark­að­ar­ins gæti þessi ummæli Skúla dregið dilk á eftir sér þar sem að til þess að Sam­keppn­is­eft­ir­litið fall­ist á að heim­ila kaup Icelandair á Wow þurfa félögin að sýna fram á að engir raun­hæfir mögu­leikar hafi verið á ann­ari sölu WOW air en til Icelandair Group. Samkvæmt heim­ildum Frétta­blaðs­ins gerði eft­ir­litið athuga­semdir við mála­til­búnað félag­anna að þessu leiti á fundum full­trúa flug­fé­lag­anna með Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu í lok síð­ustu viku, en ein athuga­semdin sneri að því að Skúli hefði aldrei sett WOW air í form­legt sölu­ferli.

Fækka í flotanum

WOW air til­kynnti í gær að félagið hyggð­ist fækka í flot­anum sínum um fjórar vélar í sam­ráði við leigu­sala sínu. WOW air hefur haft tutt­ugu vélar á leigu, þar af sextán sam­kvæmt rekstr­ar­leigu­samn­ingi og fjórar sam­kvæmt kaup­leigu­samn­ingi. Fyr­ir­tækið Air Lease Corporation á stærstan hluta vél­anna, eða alls sjö vélar, sam­kvæmt fjár­festa­kynn­ingu WOW air. Í til­kynn­ingu í gær kom fram að fækkun vél­ana væri aðgerð til að „auka hag­kvæmni, draga úr árs­tíða­sveiflu og hámarka arð­semi“.

Ekki hefur enn­feng­ist nið­ur­staða um hvort að krafa Icelandair um að for­gangs­rétt­ar­á­kvæði í samn­ingum félags­ins við Félag íslenskra atvinnu­flug­manna (FÍA) muni ekki gilda hjá lággjalda­flug­fé­lag­inu, í kjöl­far kaupanna nái þau fram að ganga segir í umfjöllun Mark­að­ar­ins. Félags­menn í FÍA sem starfa hjá Icelandair hafa for­gang í flugi á flug­vélum í eigu félags­ins og dótt­ur­fé­laga. Með kaupum Icelandair á WOW air yrðu því flug­menn síð­ar­nefnda félags­ins, að öðru óbreyttu, á sama kjara­samn­ingi og flug­menn Icelandair. Því gæti launa­kostn­aður lággjalda­flug­fé­lags­ins hækka umtals­vert.

Skoða sölu lendingarstæða

Í umfjöllun Mark­að­ar­ins í dag er greint frá því að WOW air leitar um þessar mundir allra leiða til þess að bæta lausa­fjár­stöðu sína og kanna í því sam­bandi ýmsa kosti, m.a. skoðar félagið að selja lend­ing­ar­stæði sín á Gatwick flug­vell. Sú stæði eru með þeim verð­mæt­ustu í eigu WOW air en ekki liggur þó fyrir hvað félagið getur fengið fyrir þau. Samkvæmt umfjöllun Mark­að­ar­ins ótt­ast leigusalar WOW air að sam­runi flug­fé­lags­ins og Icelandair gangi ekki eftir og að WOW air tak­ist ekki að standa í skilum um næstu mán­aða­mót. Skúli til­tók sér­stak­lega í bréf­inu til skulda­bréfa­eig­enda að umræddir leigusalar fylgd­ust náið með stöðu félags­ins og krefð­ust nú strang­ari greiðslu­skil­mála en áður með til­heyr­andi nei­kvæðum áhrifum á sjóðs­streymi félags­ins. Í bréf­inu greindi Skúli einnig frá því að flug­fé­lagið hefði verið nálægt því að ganga frá samn­ingi um sölu og end­ur­leigu á flug­vélum sem hefði tryggt félag­inu inn­spýt­ingu upp á 25 millj­ónir dala, jafn­virði um þriggja millj­arða króna en lokum hefði verið hætt við þau áform.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár