Skúli keypti sjálfur í skuldabréfaútboði WOW fyrir 770 milljónir

Eigandi og for­stjóri WOW air keypti sjálfur fyrir háar fjár­hæðir í skulda­bréfa­ú­boði sem félagið fór í , og lok­aði um miðjan sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Hann segir ýmsa aðila hafa áhuga á WOW air.

Skúli Mogensen, aðal­eig­andi og for­stjóri WOW air, keypti sjálfur fyrir um 770 millj­ónir króna í skulda­bréfa­út­boði félags­ins sem lauk um miðjan sept­em­ber. Frá þessu greinir hann í bréfi til ann­arra skulda­bréfa­eig­enda sem hann sendi fyrr í dag og greint er frá í Markaði Frétta­blaðs­ins.

Í bréf­inu segir hann enn fremur að hann hafði verið sann­færður um að útboðið myndi duga WOW air til að halda út þar til að hægt yrði að skrá félagið á markað en að nokkrir aðilar hafi sýnt WOW air áhuga, þar á meðal Icelandair.

Í Mark­aðnum segir að kröfu­hafar og stjórn­völd hafi fylgst náið með stöðu mála og kraf­ist strang­ari greiðslu­skil­mála en áður auk þess sem olíu­verð hafi náð nýjum hæðum eftir skulda­bréfa­út­boðið.

18. sept­em­ber var til­kynnt um að skulda­bréfa­út­boð­inu hefði verið lokað og að WOW air hefði náð í allt að 60 millj­ónir evra. Ekki var greint frá því hverjir hefðu tekið þátt í skulda­bréfa­út­boð­inu að öðru leyti en að það væri bæði inn­lendir og erlendir fjár­festar. Við­mæl­endur Kjarnans sögðu að á meðal erlendu fjár­fest­anna séu vog­un­ar­sjóðir sem átt hafa stöður á Íslandi.

Alls kyns fyr­ir­varar voru settir inn í end­an­lega skil­mála sem fólu meðal ann­ars í sér að WOW air þyrfti að stand­ast reglu­leg álags­próf sem þurftu að sýna að eigið fé félags­ins ekki lægra en 25 millj­ónir dala fyrstu tólf mán­uð­ina eftir útgáf­una og 30-35 millj­ónir dala eftir það. Auk þess kom fram að vaxta­greiðslum sem féllu til vegna skulda­bréfa­út­boðs­ins yrðu færðar á fjár­vörslu­reikn­ing.

Í byrjun nóv­em­ber var svo til­kynnt um að Icelandair ætl­aði að kaupa WOW air ef ákveðnir fyr­ir­varar yrðu upp­fylltir. Uppgefið kaup­verð á WOW air , sem átti að greiða með hlutum í Icelandair, var um tveir millj­arðar króna miðað gengi Icelandair þegar til­kynnt var um kaupin. Þau kaup virð­ast nú í upp­námi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár