Bankaráð Seðlabanka Íslands biður aftur um frest vegna Samherjamáls

Bankaráð Seðla­banka Íslands von­ast til þess að geta svarað erindi for­sæt­is­ráð­herra um hið svo­kall­aða Sam­herj­a­mál „í upp­hafi nýs árs“. Upp­haf­lega fékk ráðið frest til 7. des­em­ber til að svara erind­inu.

Þorsteinn Már Baldvinsson er forstjóri Samherja. Hann hefur farið fram á að Már Guðmundsson seðlabankastjóri segi af sér vegna Samherjamálsins.
Þor­steinn Már Bald­vins­son er for­stjóri Samherja. Hann hefur farið fram á að Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri segi af sér vegna Sam­herj­a­máls­ins. Mynd: Skjáskot.

Bankaráð Seðla­banka Íslands hefur ritað Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og beðið um lengri frest til að svara erindi hennar vegna svo­kall­aðs Sam­herj­a­máls. Ákvörðun þess efnis var tekin á fundi þess síð­ast­lið­inn föstu­dag og for­manni ráðs­ins, Gylfa Magn­ús­syni, var falið að rita umrædda beiðni.

[links]Í frétt á vef Seðla­banka Íslands segir að vonir standi til „þess að hægt verði að ganga frá svari ráðs­ins til for­sæt­is­ráð­herra í upp­hafi nýs árs.“

Þann 8. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn kvað Hæsti­réttur Íslands upp dóm í máli Seðla­banka Íslands gegn Sam­herja hf. Í dómnum er stað­fest nið­ur­staða Hér­aðs­dóms Reykja­víkur um að fella úr gildi ákvörðun Seðla­banka Íslands frá 1. sept­em­ber 2016 um að Sam­herji hf. skuli greiða 15 millj­ónir króna í stjórn­valds­sekt til rík­is­sjóðs vegna brota gegn reglum um gjald­eyr­is­mál.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sendi í kjöl­farið for­manni banka­ráðs Seðla­banka Íslands bréf vegna umfjöll­unar um dóm Hæsta­réttar í máli Seðla­banka Íslands gegn Sam­herja hf. þar sem óskað er eftir grein­ar­gerð banka­ráðs um mál­ið.

[adspot]Í bréf­inu stóð meðal ann­ars: „„Hér með óska ég eftir grein­ar­gerð banka­ráðs um mál Sam­herja frá þeim tíma sem rann­sókn hófst á meintum brotum á reglum um gjald­eyr­is­mál. Sér­stak­lega er óskað eftir upp­lýs­ingum um það hvað lá að baki ákvörðun Seðla­banka Íslands um að end­ur­upp­taka málið sem til­kynnt var Sam­herja hf. 30 mars 2016. Þá óska ég einnig eftir útlistun á því hvort og þá með hvaða hætti Seðla­banki Íslands hygg­ist bregð­ast við dómnum og hvort dóms­nið­ur­staðan kalli á úrbætur á stjórn­sýslu bank­ans og þá hvaða.“

Óskað var eftir að grein­ar­gerðin ber­ist for­sæt­is­ráðu­neyt­inu eigi síðar en föstu­dag­inn 7. des­em­ber. Banka­ráðið óskaði eftir fresti þangað til síðar í des­em­ber þegar sú dag­setn­ing kom upp. Nú hefur það óskað eftir að fresta mál­inu aftur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár