Samherji: Sjö ára aðför Seðlabankans lokið og bankinn beðið afhroð

Hæsti­réttur stað­festi í dag dóm Hér­aðs­dóms Reykja­víkur þar sem ákvörðun Seðla­bank­ans um að sekta Samherja var dæmd ógild.

Hæsti­réttur stað­festi í dag dóm Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, þar sem sú ákvörðun Seðla­banka Íslands að sekta útgerð­ar­fyr­ir­tækið Samherja, upp á 15 millj­ónir króna, var dæmd ógild.

Í til­efni af þessum dómi skrifa Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri og Kristján Vil­helms­son útgerð­ar­stjóri, sem jafn­framt eru stærstu eig­endur fyr­ir­tæk­is­ins, bréf til starfs­manna, sem birt hefur verið á vef fyr­ir­tæk­is­ins. Þar þakka þeir starfs­mönnum fyrir tryggð­ina og sam­heldn­ina.

„Með dómi Hæsta­réttar Íslands í dag lauk máli Seðla­banka Íslands á hendur Samherja. Með þessum dómi lýkur end­an­lega tæp­lega sjö ára aðför Seðla­bank­ans á hendur Samherja. Öllum full­yrð­ingum og ásök­unum Seðla­bank­ans á hendur Samherja og starfs­fólki okkar hefur verið hnekkt og bank­inn beðið afhroð.

Okkur er efst í huga þakk­læti til ykkar kæru starfs­menn. Þið sem hafið staðið þétt við bakið á okkur í gegn um árin. Það er þung­bært að sitja undir ásök­unum jafn valda­mik­illar stofn­unar og Seðla­banka Íslands. Með slíkum þunga getur verið auð­velt að brjóta niður sam­stöðu fólks. Takk kæru starfs­menn fyrir stuðn­ing­inn og alla vinn­una sem þið hafið lagt á ykkur. Við viljum líka þakka fyrir að þið mis­stuð aldrei trúna á okkur og að við höfum lagt okkur fram um að vinna störf okkar í sam­ræmi við lög og reglur. Við unnum ásamt ykkur heið­ar­lega og sam­visku­sam­lega að rekstri okkar fyr­ir­tækis á tímum sem eiga sér ekki hlið­stæðu á Íslandi. Samstaða ykkar hjálpar okkur að halda áfram þegar að okkur er sótt. Takk fyrir.“

Málið hófst með hús­leit í höf­uð­stöðvum Samherja 27. mars 2012, en um 25 starfs­menn gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands og emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara tóku þátt í aðgerð­unum.

Dómarar í mál­inu voru Þorgeir Örlygs­son, Greta Bald­urs­dóttir, Markús Sig­ur­björns­son, Ólafur Börkur Þor­valds­son og Viðar Már Matth­í­as­son.

Lögmaður Seðla­banka Íslands var Steinar Þór Guð­geirs­son og fyrir Samherja Garðar G. Gíslason.

Seðla­banki Íslands var dæmdur til að greiða Samherja 1,2 millj­ónir í máls­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár