Arion banki gaf ekki út lánsloforð vegna Primera Air

Arion banki hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem gerðar eru athuga­semdir við rang­færslur Andra Más Ing­ólfs­sonar. Arion banki segir að þrátt fyrir að bank­inn hafi átt í við­ræðum við Primera Air þá hafi bank­inn ekki gefið fyr­ir­heit um lán­veit­ingu.

Í yfir­lýs­ingu frá Arion banki segir að þrátt fyrir að Arion banki hafi átt í við­ræðum við flug­fé­lagið Primera Air, áður en félagið var gjald­þrota, þá hafi bank­inn hvorki gefið út lánslof­orð né nokkur fyr­ir­heit um lán­veit­ing­una. Arion banki sendi frá sér yfir­lýs­ingu til fjöl­miðla þar sem gerðar eru athuga­semdir við rang­færslur Andra Más Ing­ólfs­sonar, fyrr­ver­andi eig­anda Primera Air, í við­tali við Við­skipta­blaðið í dag.

Þrýsti ekki á að ferðaskrifstofurnar yrðu færðar í nýtt félag

Arion banki segir að það sem Andri Már segir í við­tal­inu sé ekki í sam­ræmi við stað­reyndir máls­ins og gerir því athuga­semdir við þær rang­færslur sem þar koma fram. Í við­tal­inu segir Andri Már að Primera Air væri enn í rekstri ef Arion banki hefði verið reiðu­bú­inn að veita félag­inu brú­ar­fjár­mögnun líkt og staðið hafði til. „Það er ljóst að ef sú fjár­mögnun hefði kom­ið, væri Primera Air enn í rekstri,“ segir Andri Már. Arion banki greinir frá því í yfir­lýs­ing­unni að bank­inn hafi hvorki gefið út lánslof­orð né nokkur fyr­ir­heit um lán­veit­ingu vegna Primera air.

Andri Már segir einnig í við­tal­inu að í kjöl­far gjald­þrots Primera air hafi Arion banki þrýst á að ferða­skrif­stofur Primera Air Travel Group yrðu færðar í nýtt félag. Í athuga­semd­inni frá Arion banka segir að bank­inn hafi ekki þrýst á að rekstur ferða­skrif­stofu Primera Travel Group yrði færður á að nýtt félag en að bank­inn hafi hins vegar sam­þykkt að sú leið yrði farin. „Arion banki sam­þykkti hins vegar að sú leið yrði farin og mat það sem svo að með því væri hags­muna bank­ans, starfs­fólks ferða­skrif­stof­anna, við­skipta­vina þeirra, sem ann­ars hefðu endað sem stranda­glópar víða um heim, og ann­arra kröfu­hafa best gætt.“ segir í yfir­lýs­ing­unni frá bank­anum.

Travelco tapaði fimm milljörðum á falli Primera Air

[links]Mánu­dag­inn 1. októ­ber var greint frá því að flug­fé­lagið Primera Air væri á leið í þrot. Í til­­kynn­ing­unni um gjald­þrot Primera Air kom fram að ferða­­­skrif­­­stofur Primera Travel Group töp­uðu háum fjár­­­hæðum vegna fluga sem greidd höfðu verið til flug­­­­­fé­lags­ins en voru ekki flog­in. Í kjöl­farið var stofnað nýtt eign­ar­halds­fé­lag, Travelco sem byrj­aði með millj­arð í nýju hlutafé til að tryggja rekstur ferða­skrif­stof­unnar. Ferða­skrif­stofur Primera sam­stæð­urnar voru færðar yfir í Travelco sem tók þá yfir skuldir félags­ins við Arion Banka. Rekstur allra fyr­ir­tækj­anna var fluttur undir Travelco og ferða­skrif­stof­urnar héldu áfram óbreyttum rekstri. Í við­tal­inu við Við­skipta­blaðið í dag sagði Andri Már að Travelco hafi tapað fimm millj­örðum króna á falli Primera Air.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár