Fjöldauppsagnir hjá WOW og flugvélum fækkað

Mörg hund­ruð manns verður sagt upp í dag hjá WOW air og mun félagið selja fjórar vélar.

Mörg hund­ruð manns verður sagt upp hjá WOW air í dag en Frétta­blaðið greindi fyrst frá upp­sögn­unum.

Stór hluti af end­ur­skipu­lagn­ingu WOW air felst í því að fækka flug­vélum úr tutt­ugu í ell­efu og verða ein­göngu flug­vélar að gerð­inni Airbus A321 og A320 í flota félags­ins. Félagið er í samn­inga­við­ræðum um skil á nokkrum flug­vélum til leigu­sala þar með talið öllum Airbus A330 breið­þotum. Verið er að ganga frá samn­ingi þess efnis að selja fjórar Airbus A321 flug­vélar sem verða afhentar í jan­úar 2019 og mun bæta lausafé félags­ins um 10 millj­ónir Banda­ríkja­dala. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá WOW air sem send var út rétt í þessu. 

Í henni kemur jafn­framt fram að í ljósi þess­ara breyt­inga á starf­semi félags­ins sé því óum­flýj­an­legt að fækka í starfs­manna­hópi WOW air. „Í dag var 111 fast­ráðnum starfs­mönnum sagt upp störfum og ná upp­sagnir starfs­manna þvert á fyr­ir­tækið. Að sama skapi munu samn­ingar við verk­taka og tíma­bundna starfs­menn ekki verða end­ur­nýj­aðir að svo stöddu. Vonir standa til að stór hluti þeirra sem fengu upp­sögn í dag fái tæki­færi hjá félag­inu að nýju,“ segir í til­kynn­ing­unni. 

Hætta Indlandsflugi

Engar breyt­ingar verða á flug­á­ætlun í des­em­ber og byrjun jan­úar, sam­kvæmt WOW air. Frá jan­úar næst­kom­andi mun félagið fljúga sam­kvæmt nýrri flug­á­ætlun. Síðasta flug frá Nýju Delí er 20. jan­úar og frá Los Angeles 14. jan­úar. WOW air mun hafa sam­band við þá far­þega sem verða fyrir áhrifum breyt­inga á leið­ar­kerfi félags­ins.

[links]Enn fremur segir í til­kynn­ing­unni að síð­ast­liðið ár hafi reynst WOW air mjög erfitt í rekstri og unnið hafi verið mark­visst að því und­an­farið að snúa rekstr­inum við til hins betra og fjár­magna félagið. „Eins og fram hefur komið er Indigo Partners að vinna með WOW air um að tryggja lang­tíma fjár­mögnun félags­ins. Liður í þeirri vinnu er að ein­falda rekstur WOW air og ná arð­semi á ný en félagið skil­aði hagn­aði árin 2015 og 2016.“

Erfiðasti dagurinn í sögu WOW air

Skúli Mogensen for­stjóri og stofn­andi WOW air segir þetta vera erf­ið­asta dag­inn í sögu WOW air. „Við erum með frá­bæran hóp af fólki sem hefur lagt hart að sér að gera WOW air að veru­leika og það er því sorg­legt að neyð­ast til að fara í þennan nið­ur­skurð. Ég vildi óska þess að það væri til önnur leið en stað­reyndin er sú að við verðum að snúa við rekstr­inum og koma honum aftur í gott horf áður en við getum hafið upp­bygg­ing­una að nýju,“ segir Skúli. 

Eftir þessar rekstr­ar­breyt­ingar munu áfram starfa hátt í þús­und manns hjá félag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár