Ekkert gefið upp um viðræður Indigo og WOW air

Í sam­tali við vef­inn Turista.is sagði Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW air, að ekk­ert yrði gefið upp um gang við­ræðna við Indigo.

Hvorki aðilar á vegum Indigo Partners eða WOW air munu tjá sig um þær við­ræður sem eiga sér stað núna á milli félag­anna, umfram það sem þegar hefur komið fram í frétta­til­kynn­ingum.

Þetta kemur fram í frétt á vefnum Túristi.is, en eins og kunn­ugt er þá kom stofn­andi og stærsti eig­andi Indigo Partners, hinn 81 árs gamli Bill Franke, til lands­ins á dög­unum og átti fundi með Skúla Mogensen, for­stjóra og eig­anda WOW air.

Í til­kynn­ingu sem send var út eftir tveggja daga fund­ar­höld, kom fram að góður gangur hefði verið í við­ræð­unum.

Á vef Túrista var greint frá því á mið­viku­dags­kvöld að Indigo Partners gæti eign­ast ríf­legan meiri­hluta í WOW air jafn­vel þó íslensk og evr­ópsk lög tak­marki fjár­fest­ingu aðila utan EES-svæð­is­ins við minni­hluta í íslenskum flug­fé­lögum. „Indigo Partners gætu nefni­lega búið þannig um hlut­ina að eign­ar­hald þeirra í WOW air yrði að mestu leyti í breyt­an­legum skulda- og hluta­bréfum. Félagið hefði þó ekki meiri­hluta atkvæða í stjórn flug­fé­lags­ins,“ segir í frétt Túrista.

Indigo Partners er með höf­uð­stöðvar í Arizona í Banda­ríkj­unum og hefur vaxið hratt frá stofnun 2003. Félagið er hlut­hafi í lággjalda­flug­fé­lögum, og er meðal ann­ars meðal eig­anda Wizz Air.

WOW air tap­aði 33,6 millj­ónum dala, sem jafn­gildir um 4,2 millj­arði króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Á sama tíma­bili í fyrra nam tap félags­ins 13,5 millj­ónum dala, jafn­virði tæp­lega 1,7 millj­arða króna miðað við núver­andi gengi. Þetta kemur fram í nýbirtu upp­gjöri flug­fé­lags­ins.

Tekjur WOW air námu 501,4 millj­ónum dala, um 61,5 millj­örðum króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og juk­ust um 31 pró­sent frá sama tíma­bili í fyrra þegar þær voru 371,8 millj­ónir dala.

EBITDA félags­ins fór úr því að vera jákvæð um 8,8 millj­ónir doll­ara fyrstu níu mán­uði síð­asta árs í að vera nei­kvæð um 18,9 millj­ónir nú, um 2,3 millj­arða íslenskra króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár