Karolina Fund: Upptökur og útgáfa á breiðskífu!

Linda Hart­manns safnar fyrir fyrstu breið­skífu sinni með frum­sömdum lögum.

Linda Hart­manns er nú að taka upp sína fyrstu breið­skífu með frum­sömdum lögum
og inn­blást­ur­inn kemur úr öllum áttum, enda hefur hún mikla reynslu að baki. Hún
útsetur lögin sjálf ásamt því að pródúsera þau en hún hefur fengið heila hljóm­sveit til
að taka breið­skíf­una upp með sér. Lögin eru hljóð­rituð í Stúdíó Hljómi og sér Birgir
Sæv­ars­son um upp­tökur og eft­ir­vinnslu lag­anna. Linda er með heima­síðu og aðdá­enda­síðu á Facebook þar sem hægt er að fylgj­ast með fram­vindu
ferl­is­ins, svo sem upp­tökur í hljóð­veri og æfingar með hljóm­sveit­inni.

Hvernig vaknaði hugmyndin að verkefninu?

Hug­myndin hefur alltaf verið til staðar í raun­inni. Mér hefur bara aldrei fund­ist ég vera

til­búin og ég vissi ekki hvers vegna fyrr en nýlega. Ástæðan var sú að mér fannst ég

ekki nógu góð. Ekki með nógu góð lög. Ekki nógu góð á píanóið. Ekki nógu góð í

söng­tækni. Mér fannst ég alltaf þurfa að æfa mig meira og semja betri lög. Bar mig

alltaf saman við söng­konur í kringum mig sem mér fannst vera betri en ég. Síðan

fatt­aði ég hvað það var sem ég þurfti – laga­smíðar sem komu frá hjart­anu án þess að

vera svo upp­tekin af hvað öðrum fynd­ist. Um leið og ég átt­aði mig á því þá breytt­ist

mín sýn á eigin laga­smíðar. Ég fór að semja texta um mjög per­sónu­lega hluti og í

kjöl­farið fannst mér lögin verða betri; ég fann það strax. Þegar ég byrj­aði að tjá mig

um hluti sem skiptu mig máli þá fylgdi ýmis­legt með s.s. nýir hljóma­gangar, nýir taktar

og píanó sóló sem ég hafði ekki spilað áður. Ég hafði verið voða föst í „fjög­urra

hljóma“ þem­anu og reyndi semja það sem ég hélt að aðrir vildu heyra. Reyndi að

semja lög sem mögu­lega yrðu nógu „útvarps­væn“. Ég gleymdi því hrein­lega hvers

vegna ég var að þessu og var hvorki með hug­ann né hjartað á réttum stað.

Þegar ég var svo komin af stað og farin að semja beint frá hjart­anu var ég á

örskömmum tíma komin með yfir 10 lög sem ég var sjálf ánægð með. Þá fór ég að

vinna í að láta draum­inn ræt­ast og stíga fyrstu skrefin í átt að upp­töku á breið­skífu.

Segðu okkur frá þema verkefnisins

Lögin sem verða á þess­ari plötu inni­halda öll texta sem eru mjög per­sónu­legir. Að
leyfa öðrum að hlusta á lögin er fyrir mér svo­lítið eins og að leyfa ein­hverjum að lesa
upp úr dag­bók­inni minni. Ég er í fyrsta sinn að opna hjarta mitt fyrir fólki í gegnum
tón­list­ina og það á við um öll lögin á þess­ari plötu, nema eitt þeirra sem ég samdi
ekki. Það lag er rokklag samið af Birgi Sæv­ars­syni (Bigga Sævars) og Haf­steini Þór
Guð­jóns­syni (Haffa Haff) sem ég hef unnið með síð­ast­liðið ár.
Ég sé fram á að það verði ekki vanda­samt að taka upp góða plötu með sterka teymið
mitt á bak­við mig, þá hæfi­leik­a­rík­ustu tón­list­ar­menn sem ég hef unnið með.

Hvernig semurðu lög?

Ferlið við semja lög hefur breyst mikið hjá mér síð­ast­liðið ár. Ég hef prófað að nýta
hug­leiðslu og hreinsun hug­ans í laga­smíðar sem virkar mis­vel. Ég hef reynt að semja
lag með því að spila lög fyrst eftir aðra en ekk­ert af þessu hefur virkað fyrir mig. Það
var ekki fyrr en ég fór að semja frá hjart­anu sem eitt­hvað fór að ger­ast.
Það sem ég geri er að ég sest við píanóið þegar það er eitt­hvað að ger­ast innra með
mér; þegar ég er ofur glöð, ham­ingju­söm, reið, sár eða með hnút í mag­anum vegna
ein­hvers. Þá leyfi ég til­finn­ingum mínum að mestu að ráða för í laga­smíð­unum sem
virkar fyrir mig. Ég þarf alltaf að banna hug­anum að vera með því um leið og ég byrja
að hugsa of mikið hættir hjartað að ráða för og það verður ekk­ert úr lag­inu. Text­arnir
sem ég sem fylgja þessum til­finn­ingum og koma að sjálfu sér en eftir að inn­tak
text­ans er komið ásamt lag­línu fer ég yfir text­ann og laga rím og flæði eftir á (þá leyfi
ég hug­anum aðeins að vera með).

Hvaðan kemur innblásturinn?

Inn­blást­ur­inn af lög­unum kemur úr öllum áttum.

Ég á eig­in­mann sem ég hef verið með í tæp­lega 11 ár og gift í að verða 7 ár og við

eigum fjögur börn. Við byrj­uðum saman eftir að ég varð óvænt þunguð þegar ég var

18 ára og hann með 4 mán­aða barn sjálfur á þeim tíma. Þegar ég var yngri bjó ég í

Suður-Afríku í 5 ár og for­eldrar mínir ætt­leiddu systur mína þar og hún er ein af

mínum nán­ustu vin­konum í dag. Ég tók þátt í The Voice 2016 og komst í topp 12

úrslitin og beint í kjöl­farið tók ég þátt í Söngvakeppni sjón­varps­ins 2017 eftir að hafa

kom­ist inn með eigið frum­samið lag. Ég á nokkrar nánar vin­konur í dag sem styðja

mig í einu og öllu og for­eldra sem myndu allt fyrir mig gera. Þessir hlutir veita mér

mik­inn inn­blástur.

Fjöl­skyldu­líf­inu fylgja þó ýmsar til­finn­ingar eins og flestir vita og þetta hefur ekki alltaf

verið auð­velt. Ég nýti mér allar þær til­finn­ingar í tón­list minni en ég hef þó minnst nýtt

mér jákvæðu til­finn­ing­arnar hingað til. Hef svo­lítið verið að losa um nei­kvæðu

til­finn­ing­arnar í gegnum laga­smíðar til að byrja með.

Þegar ég var 9 ára skildu for­eldrar mínir eftir erfitt hjóna­band. Þegar ég byrj­aði í

mennta­skóla 16 ára gömul átti ég enga vini. Þegar ég var 17 ára varð ég fyrir

alvar­legri árás á mennta­skóla­balli sem ég hef aldrei þorað að tala um, varla við

eig­in­mann minn, hvað þá neinn annan.

Neikvæða reynslan gefur mér líka drif­kraft í laga­smíðar og meðal ann­ars hafa þessir

atburðir komið mér á þann stað sem ég er í dag, sem ég er þakk­lát fyrir.

Annars er gaman að segja frá því að ég hélt tón­leika sl. föstu­dag (9. nóv.) á Dillon og

frum­flutti nokkur lög af þess­ari vænt­an­legu plötu með hljóm­sveit minni. Við­tök­urnar

voru væg­ast sagt góðar og húsið fyllt­ist á meðan á tón­leik­unum stóð. Ég var klöppuð

upp og tók óund­ir­búið auka­lag sem virð­ist hafa togað fram nokkur tár hjá

áhorf­endum. Þessir tón­leikar ýttu undir trú á sjálfri mér og lögin mín enda not­ast ég

við aðferð­ina „fake it til you make it“ í gríð og erg í dag. Það gerði ég einnig á

tón­leik­unum og hik­aði ekki við að vera með heil­mikið „attitude“, sem virt­ist falla í

frjóan jarð­veg meðal áhorf­enda – enda kom það fólki á óvart sem þekkja mig vel þar

sem það er ólíkt mér að vera með stæla. Kannski heldur fólk að ég sé orð­inn mik­ill

egóisti sem lítur of stórt á sig...

Og hvað með það?

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efni Lindu.

https://www.karolinafund.com/project/view/2258

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár