Karolina Fund: Ljótu kartöflurnar

Viðar Reyn­is­son stofn­aði ljótu kart­öfl­urnar. Hann safnar nú fyrir pökk­un­ar­vél til að gera pakkað þeim í neyt­enda­vænni umbúðir.

Ljótu kart­öfl­urnar eru kart­öflu­flögur sem fram­leiddar eru úr kart­öflum sem bændur eiga erfitt með að koma í verð sökum þess að þær eru skrítnar í lag­inu, með litla útlits­galla eða ein­fald­lega vegna þess að þær þykja of stórar. Þetta eru kart­öflur sem vel er hægt að snyrta til ef þess þarf og nýta. Þegar fram­leiðslan fór af stað höfðu kart­öflu­flögur aldrei verið fram­leiddar á Íslandi og allt kart­öflu­snakk á mark­aðnum var annað hvort inn­flutt eða fram­leitt úr inn­fluttu hrá­efni. Kol­fefn­is­spor Ljótu kartafl­anna er því mun minna en hjá sam­bæri­legum vörum. Einnig var farið þá leið að nota ein­ungis plast í umbúð­irnar sem hægt er að end­ur­vinna nær enda­laust sé því skilað til end­ur­vinnslu, meðan flest annað snakk er pakkað inn í umbúðir sem eru úr blönd­uðum efnum t.d. plasti og áli eða pappa og áli sem erfitt er að end­ur­vinna. Það er því miður ekki hjá því kom­ist að nota plast í umbúðir fyrir snakk enn sem komið er ef geymslu­þolið á að vera meira en nokkrir dagar.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Hug­myndin vakn­aði í Horna­firði fyrir þó nokkrum árum síðan þar sem kart­öflu­bændur voru farnir að gera til­raunir við að rækja repju og fram­leiða úr henni repju­olíu. Þarna voru því komin saman tvö aðal hrá­efnin til kart­öflu­flögu­gerðar. Ég fór því að gera til­raunir í eld­hús­inu heima sem end­aði með því að ég sagði upp vinn­unni minni í árs­lok 2016 og ákvað að hella mér alfarið út í þetta. Síðan þá hefur varan og vöru­merkið verið í stöðugri þróun og nú í sumar fundum við fram­leiðsl­unni loks­ins var­an­legt hús­næði sem við erum að taka í gagnið.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Við erum komnir vel á veg með að stand­setja hús­næðið og höfum verið að end­ur­nýja helstu tæki til fram­leiðsl­unnar. Okkur vantar hins vegar aðeins upp á til þess að geta komið vör­unni í versl­anir og bæta þannig enn betur nýt­ingu á inn­lendum kart­öflum, þar sem okkur vantar pökk­un­ar­vél til þess að geta pakkað í neyt­enda­vænar stærri umbúðir eins og við sjáum gjarnan út í búð. Við ákváðum að fara þá leið að fara í hóp­fjár­mögnun á Karolina Fund til þess að hjálpa okkur við að fjár­magna vél­ina. Þeir sem sjá sér fært að styrkja okkur fá að sjálf­sögðu brak­andi ferskar kart­öflu­flögur sem við hand­pökkum fyrst um sinn.“

Vitið þið hversu mikið er sóað af inn­lendu græn­meti?

„Nei við eigum ekki tölur yfir það, en það er alveg ljóst að það er hægt að nýta það mun betur. Rann­sóknir sýna að um þriðj­ungur mat­væla sem fram­leidd eru í heim­inum enda í rusl­inu og stór partur af því fer ekki í versl­anir vegna útlits­galla. Það er mikil vakn­ing í sam­fé­lag­inu og flestir mat­væla­fram­leið­endur gera auð­vitað hvað þeir geta til að skapa sem mest verð­mæti úr því sem þeir hafa. Stórar og útlits­gall­aðar inn­lendar kart­öflur eru t.d. nýttar til að búa til franskar og for­soðnar kart­öflur. En til þess þarf að skræla kart­öfl­urnar mikið og þar er því tölu­verð sóun og hægt að gera enn betur t.d. búa til óskrældar kart­öflu­flögur.“

Þú getur fræðst meira um verk­efnið á síðu verk­efn­is­ins hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár