„Ekkert sem um mig hefur verið sagt í pólitík hefur sært mig eins mikið“

Þing­maður Mið­flokks­ins og for­maður flokks­ins seg­ist hafa verið kall­aður fleiri ljótum nöfnum en hann hafi tölu á. Hann minn­ist þess hins vegar ekki að hafa áður verið kall­aður ofbeld­is­maður.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Miðflokkurinn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins og þing­maður flokks­ins, segir að hann hafi verið kall­aður fleiri ljótum nöfnum en hann hafi tölu á. Hann minn­ist þess hins vegar ekki að hafa áður verið kall­aður ofbeld­is­maður. „Ekkert sem um mig hefur verið sagt í póli­tík hefur sært mig eins mikið.“ Þetta segir hann í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag. 

[links]Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra seg­ist hafa verið „ofboðs­lega“ ósátt við það tal þing­manna, sem gert var opin­bert með upp­tök­unum frá Klaustur bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. „Þetta er algjört ofbeldi,“ sagði Lilja í við­tali við Einar Þor­steins­son, frétta­mann RÚV og Kast­ljóss, í gær­kvöldi.

Hún seg­ist hafa bognað þegar allra gróf­ustu ummælin, um hana sjálfa, komu fram. „Ég svaf ekk­ert aðfar­arnótt þriðju­dags,“ sagði Lilja og sagði rík­is­stjórn­ar­fund, sem fram fór á þriðju­dags­morgun, hafa verið erf­iðan.

Sig­mundur Davíð seg­ist hafa tekið eftir Lilju Alfreðs­dóttur á mennta­skóla­ár­unum í MR og þótt þá strax mikið til hennar koma. Hann hafi þó ekki kynnst henni almenni­lega fyrr en árið 2009 þegar hún hafi reynst honum vel í for­manns­kjöri í Fram­sókn­ar­flokknum.

„Lilja er klár, hríf­andi og dug­leg mann­eskja og hef ég aldrei farið leynt með þá skoðun mína á henni við nokkurn mann. Við unnum náið og vel saman. Eitt af því sem gerði sam­starf okkar far­sælt er að við erum að mörgu leyti ólík. Hún er skipu­lögð, ég er það síður, hún hefur afburða­góða sam­skipta­hæfni á meðan ég er heldur feim­inn að eðl­is­fari og í hrein­skilni sagt, á köflum klaufa­legur í sam­skiptum.

Það að vera fyrrum for­sæt­is­ráð­herra og for­maður flokks á Alþingi gerir engan full­kom­inn, því fer fjarri. Ég er fyrst og fremst mann­legur og þarf að takast á að við eigin galla á hverjum degi með það að eilífð­ar­mark­miði að læra af reynsl­unni, draga úr göll­unum og auka við kost­ina,“ segir hann.

Sig­mundur Davíð tekur það fram að Lilja sé vinur hans og það sem hafi reynst honum erf­ið­ast við þau mál sem hafa verið til umræðu að und­an­förnu hafi verið að særa vini sína. Hann seg­ist því skilja vel reiði Lilju.

Vildi segja Lilju betur frá heildarmyndinni

„Mér þótti líka leitt að sjá Lilju halda því fram að ég hefði ekki haft sam­band við hana. Ég sendi henni skeyti með afsök­un­ar­beiðni til að reyna að koma á sam­skiptum. Þegar ekki barst svar við því bað ég aðra mann­eskju að láta hana vita hvernig mér liði vegna þess sem gerst hefði og að mig lang­aði að hitta hana. Hún afþakk­aði það boð að sinni.

Ég var vita­skuld miður mín yfir þessu öllu og vildi tala við Lilju um það beint, enda var mitt að gera það. Auk þess að ítreka afsök­un­ar­beiðni hefði ég viljað segja Lilju betur frá heild­ar­mynd sam­ræðn­anna þetta kvöld. Því miður hafa bútar verið klipptir úr upp­tök­unum á þann hátt að heild­ar­mynd og sam­hengi riðl­ast. Það á meðal ann­ars við um þann þátt sem snýr að Lilju,“ segir Sig­mundur Davíð í facebook-færslu sinni.

Orð um mannkostina ekki verið birt

Sig­mundur Davíð heldur áfram og segir að áður hafi hann verið búinn að hafa mörg orð um mann­kosti Lilju og kallað hana frá­bæra eins og alltaf þegar hann tali um hana. Þau orð hafi hins vegar ekki verið birt. Fram hafi farið löng umræða um Fram­sókn­ar­flokk­inn og að menn­irnir sem stjórn­uðu þeim flokki hafi látið Lilju ekki njóta sann­mælis, þeir hafi látið hana draga vagn­inn í kosn­inga­bar­átt­unni en ekki virt hana sem skyldi. Allir hafi verið með­vit­aðir um hversu mikið álit hann hafi á Lilju enda hafi hann leit­ast við að und­an­skilja hana í gagn­rýni á rík­is­stjórn­ina.

„Fyrir vikið hef ég verið sagður hlífa henni um of og að ég léti hana spila með mig um leið og hún spil­aði á fram­sókn­ar­menn­ina. Í einka­sam­tal­inu sem tekið var upp og dreift er sótt að mér fyrir að halda hlífi­skildi yfir Lilju. Þar tek ég undir að henni sé ekki treystandi póli­tískt. Nýlegir atburðir höfðu áhrif það. Ég nefni einnig að ég geti sjálfum mér um kennt sem vísar til þess að ég hafi með skipan hennar rétt Fram­sókn­ar­flokknum líf­línu,“ segir hann.

Skammast sín fyrir að hafa ekki atyrt mennina

„Því miður atyrti ég ekki menn sem not­uðu ljót orð í æsingi og skamm­ast mín mikið fyrir það. Ég vona þó að ein­hverjir hafi skiln­ing á því að þegar maður heyrir óþægi­lega eða grófa hluti eru nátt­úru­legu við­brögðin oft þau að láta eins og þeir hafi ekki verið sagðir eða hlægja vand­ræða­lega,“ segir Sig­mundur Davíð.

Hann segir enn fremur að það að hafa í einka­sam­tali sagt um annan stjórn­mála­mann í öðrum flokki að ekki væri hægt að treysta honum póli­tískt og við­ur­kenna að við­kom­andi hefði spilað með hann rétt­lætti von­andi ekki slíkan stimpil.

Með því seg­ist hann ekki vera að afsaka með neinum hætti þær umræður sem urðu þetta kvöld og geti hann ekki lýst því hversu miður sín hann sé yfir þeim og þeirri atburða­rás sem hefur orðið.

Lilju Alfreðs­dóttur óskar hann alls hins besta hér eftir sem hingað til. „Mér þykir mjög vænt um hana og ber mikla virð­ingu fyrir henni sem mann­eskju og stjórn­mála­manni,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár