Steingrímur segir að um mislestur hafi verið að ræða

Mál Önnu Kol­brúnar Árna­dóttur þing­manns Mið­flokks­ins hefur verið athugað og hefur hún í einu og öllu til­reitt réttar upp­lýs­ingar um sinn ævi­feril, sam­kvæmt for­seta Alþingis.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis. Mynd: Bára Huld Beck

Stein­gríms J. Sig­fús­sonar for­seti Alþingis sagði við upp­haf þing­fundar í dag að mál Önnu Kol­brúnar Árna­dóttur þing­manns Mið­flokks­ins hefði verið athugað og að hún hefði í einu og öllu til­reitt réttar upp­lýs­ingar um sinn ævi­feril.

[links]„Ef athugað er hvernig þar er skráð er um mis­lestur að ræða þar sem því hefur verið haldið fram að hv. þing­maður hafi rang­lega titlað sig þroska­þjálfa. Svo er ekki. Í þeim tölu­lið þar sem hv. þing­maður til­greinir náms­feril sinn kemur skýrt fram að hún hefur háskóla­próf og önnur sér­fræði- og loka­próf á náms­ferl­inum eins og þar er til­greint sem og próf í upp­eldis- og mennt­un­ar­fræðum með áherslu á sér­kennslu,“ sagði hann.

Anna Kolbrún hefði hins vegar starfað sem þroska­þjálfi og fag­stjóri.

„Varðandi annað atriði sem einnig hefur verið gert að umtals­efni, að hv. þing­maður hafi haldið því rang­lega fram að hún hafi verið rit­stjóri Glæða, fag­tíma­rits sér­kenn­ara, skráði hv. þing­maður það ekki inn heldur hefði inn­skrán­ing skrif­stof­unnar mátt vera skýr­ari varð­andi það atriði og rétt­ara hefði verið að skrá að hv. þing­maður hefði verið í rit­stjórn. Það er ekki við hv. þing­mann að sakast.

Vonar for­seti að þar með sé það mál af heimi,“ sagði Stein­grímur.

Í frétt Kjarnans frá því í morgun kemur fram að Þroska­þjálfa­fé­lag Íslands hafi sagt Önnu Kolbrúnu Árna­dóttur, þing­mann Mið­flokks­ins, hafa rang­lega titlað sig sem þroska­þjálfa á vef Alþingis. Félagið seg­ist hafa stað­fest­ingu frá Land­lækn­is­emb­ætt­inu þess efnis að Anna Kolbrún hafi hvorki hlotið menntun sem þroska­þjálfi né fengið starfs­leyfi frá emb­ætt­inu. Brotið hefur verið til­kynnt til Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins.

„Þroska­þjálfa­fé­lagið harmar að starfs­heitið þroska­þjálfi hafi verið mis­notað með þessum hætti enda þótt starfs­heitið sé ekki lengur að finna í ævi­á­gripi þing­manns­ins,“ segir í til­kynn­ingu frá Þroska­þjálfa­fé­lagi Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár