Tilkynna ólögmæta notkun Önnu Kolbrúnar á starfsheitinu þroskaþjálfi til Landlæknis

Þroska­þjálfa­fé­lag Íslands hefur til­kynnt notkun Önnu Kol­brúnar Árna­dóttur, þing­manns Mið­flokks­ins, á starfs­heit­inu þroska­þjálfi til Land­læknis. Í ævi­á­gripi hennar á vef Alþingis stóð að hún hafi starfað sem þroska­þjálfi en ágrip­inu var breytt í gær.

Þroska­þjálfa­fé­lag Íslands segir Önnu Kolbrúnu Árna­dóttur, þing­mann Mið­flokks­ins, hafa rang­lega titlað sig sem þroska­þjálfa á vef Alþingis. Félagið seg­ist hafa stað­fest­ingu frá Land­lækn­is­emb­ætt­inu þess efnis að Anna Kolbrún hafi hvorki hlotið menntun sem þroska­þjálfi né fengið starfs­leyfi frá emb­ætt­inu. Brotið hefur verið til­kynnt til Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins.

„Þroska­þjálfa­fé­lagið harmar að starfs­heitið þroska­þjálfi hafi verið mis­notað með þessum hætti enda þótt starfs­heitið sé ekki lengur að finna í ævi­á­gripi þing­manns­ins,“ segir í til­kynn­ingu frá Þroska­þjálfa­fé­lagi Íslands.

Æviágripinu breytt í gær

Ævi­á­gripi Önnu Kol­brúnar á vef Alþingis var breytt í gær og starfs­heitið þroska­þjálfi tekið út. Anna Kolbrún var í hópi þeirra sex þing­manna, sem náð­ust á upp­töku, sví­virða aðra þing­menn, einkum konur, og minni­hluta­hópa á barnum Klaustri 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Þroska­þjálfa­fé­lag­inu segir að í ljósi umræðna síð­ustu daga telji félagið mik­il­vægt að koma því á fram­færi að Anna Kolbrún hafi ekki heim­ild til að titla sig þroska­þjálfa.

Félagið bendir á að starfs­heitið sé lög­verndað, þeir einir sem hlotið hafa til þess menntun og fengið starfs­leyfi frá Land­lækn­is­emb­ætt­inu mega nota þetta starfs­heiti. Þroska­þjálfa­fé­lagið hefur til­kynnt brotið til Land­lækna­emb­ætt­is­ins en brot gegn ákvæðum laga um heil­brigð­is­starfs­menn og reglna sem settar eru á grund­velli þeirra varða sektum eða fang­elsi allt að þremur árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár