Anna Sigurlaug: Ég bara skil ekki hvert íslenskt samfélag er komið

Eig­in­kona Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­manns Mið­flokks­ins tjáir sig um atburða­rás síð­ustu daga.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Anna Sigurlaug Pálsdóttir.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir.

Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­manns Mið­flokks­ins, seg­ist á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook ekki skilja hvert íslenskt sam­fé­lag sé komið. Hún þakkar jafnan fyrir þær fjöl­mörgu stuðn­ings­kveðjur sem þeim hjónum hafi borist. Stundin greinir frá í dag.

[links]Í frétt Stund­ar­innar kemur fram að vin­kona Önnu Sig­ur­laugar á Facebook fari fögrum orðum um Sigmund og hvetji þau hjónin til dáða í opnum skila­boðum sem hún birtir á vegg Önnu Sig­ur­laugar.

„Hann er best stjórn­mála­maður sem við höfum átt í seinni tíð. En þetta er ekk­ert annað en öfund og gaman þætti mér að vita hver eða hverjir hafa sent þennan skúnk með sím­ann. Mið­flokknum hefur gengið of vel að auka fylgi sitt og það ætla þeir að eyði­leggja,“ skrifar vin­konan.

Í frétt­inni kemur enn fremur fram að nokkrir taki undir þessi orð en Anna Sig­ur­laug svarar þeim. „Hjartans þakkir til ykkar allra. Stuðn­ingur ykkar er ómet­an­legur. Við erum nú búin að taka nokkra slag­ina síð­ustu árin en nú er ég kjaft­stopp.“

Anna Sig­ur­laug telur að íslenskt sam­fé­lag sé komið á villi­götur. „Hatrið og þörfin fyrir að smána aðra til upp­hefja sjálfan sig,“ skrifar hún. „Ég ætla ekki að segja ykkur hvað hefur gengið á í partýum meðal stjórn­mála­manna síð­ustu árin en það kannski segir allt að við SDG höfum gengið út. Þakka ykkur enn og aftur. Ég stend stolt með Sigmundi mínum enda veit ég hvaða mann hefur að geyma og veit hver líðan hans er núna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár