Miðflokkurinn fellur í fylgi

Fylgi Mið­flokks­ins mælist nú átta pró­sent en fyrir birt­ingu klaust­urs­upp­tak­anna mæld­ist fylgi flokks­ins 13 pró­sent. Fylgi Flokks fólks­ins mælist hins vegar það sama og fyrir birt­ingu upp­tak­anna sam­kvæmt Þjóð­ar­púlsi Gallup.

Fylgi Mið­flokks­ins féll um fimm pró­sentu­stig eftir að klaust­urs­upp­tök­urnar voru gerðar opin­berar í fjöl­miðl­um. Fylgi Flokks fólks­ins stóð hins vegar í stað sam­kvæmt Þjóð­ar­púlsi Gallup. Könn­un­in var gerð 3. nóv­em­ber til 2. des­em­ber.

Fjórir þing­menn Mið­flokks­ins og tveir þing­menn Flokks fólks­ins urðu upp­vísir að því að sví­virða aðra þing­menn, einkum kon­ur, og minni­hluta­hópa á barnum Klaust­ur, þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Sam­ræð­urnar voru teknar upp og mikið hefur verið fjallað um málið í fjöl­miðlum að und­an­förnu.

Í síð­ustu viku, áður en upp­tök­urnar af Klaustri voru birtar, var fylgi Mið­flokks­ins 13 pró­sent en nú mælist það átta pró­sent. ­Flokkur fólks­ins mælist með sex pró­senta fylgi í könnun Gallups og er ekki mark­tækur munur á fylgi hans síðan Klaust­ur­s-­málið kom upp.[adspot]

Sjálfstæðisflokkurinn stærstur en stuðningur við ríkisstjórnina minnkar

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með mest fylgi, 24 pró­sent og Sam­fylk­ingin næst mest, 19 pró­sent. Vinstri græn mæl­ast með 11 pró­sent og Píratar rúm 10 pró­sent. Við­reisn er með tæp tíu pró­sent og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sjö.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina minnkar um fjögur pró­sentu­stig á milli mán­aða, sam­kvæmt könn­un­inni. Rúm­lega 46 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu segj­ast styðja hana. Litlar breyt­ingar hafa verið að fylgi flokka milli mán­aða og ekki töl­fræði­lega mark­tæk­ar.

Íslend­ingar eru hlynntir afsögn alþing­is­mann­anna sex

Á milli 74 pró­sent og 91 pró­sent Íslend­inga eru hlynnt afsögn alþing­is­mann­anna sex, sam­kvæmt nýrri könnun Mask­ín­u-­rann­sókna. Flestum finnst að Gunnar Bragi Sveins­son þing­maður Mið­flokks­ins eigi að segja af sér en næstum jafn háu hlut­falli finnst að Berg­þór Óla­son eigi einnig að gera það. Rétt innan við þremur af hverjum fjórum finnst að Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, einnig þing­maður Mið­flokks­ins, eigi að segja af sér þing­mennsku en það er lægsta hlut­fall­ið.

Í öllum til­vikum finnst miklum meiri­hluta lands­manna að allir þing­menn­irnir ættu að hverfa til ann­arra starfa. Konur voru hlynnt­ari afsögn þing­mann­anna en karlar. Þeir sem eru eldri en 50 ára eru umburð­ar­lynd­ari gagn­vart því að þing­menn­irnir séu áfram á þing­i. 

Af öllum flokkum þá voru þeir sem kusu í Mið­flokk­inn í síð­ustu alþing­is­kosn­ingu, þeir sem síst vildu kalla eftir afsögn sex­menn­ing­ana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár