Sigmundur Davíð: Er það á minni ábyrgð það sem þingmenn segja um aðra þingmenn?

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins tjáði sig í beinni útsend­ingu um Klaust­urs­málið svo­nefnda við Stöð 2.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Mynd: Bára Huld Beck

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, sagði í við­tali við Stöð 2 í kvöld, í beinni útsend­ingu, að honum fynd­ist miður að sak­laust fólk hefði dreg­ist inn í umræðu um sam­töl hans og fimm ann­arra þing­manna á Klaustur bar, 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Hann end­ur­tók það sem hann hefur sagt til þessa, að honum þætti miður að hafa ekki beitt sér með þeim hætti, að sam­ræð­urnar myndu stöðvast.

Nefndi hann enn fremur, að hann hefði orðið vitni að svip­uðum sam­tölum hjá öðrum þing­mönnum kollegga sína á þingi, og spurði hvort hann ætti að bera ábyrgð á því hvað aðrir þing­menn segðu um aðra þing­menn. Nefndi hann að það hefði verið talað mjög illa um marga þing­menn, meðal ann­ars hann sjálfan.

Aðspurður, sagð­ist hann telja að þetta hefðu verið umhverf­is­hljóð sem í sam­tal­inu milli þing­mann­anna hafa verið nefnda sela­hljóð, þegar Freyja Har­alds­sonar barst í tal.

Sig­mundur Davíð sagði að engin hefði gert grín að fötlun hennar í þessu sam­tali, og varð­ist hann spurn­ingum frétta­manns um þau mál, og sagði að þetta gæti þess vegna hafa verið hjól að bremsa.

Þeir sex þing­menn sem sátu á Klaustur bar 20. nóv­em­ber voru Gunnar Bragi Sveins­son, Bergþór Ólason, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Anna Kolbrún Árna­dóttir, Mið­flokki, og Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son Flokki fólks­ins. Bergþór og Gunnar Bragi eru farnir í leyfi og Karl Gauti og Ólafur hafa verið reknir úr Flokki fólks­ins. Enginn hefur sagt af sér þing­mennsku, og stendur það ekki til, sam­kvæmt svörum þing­mann­anna til þessa.

Freyja Har­alds­dóttir, segir í grein, sem hún skrif­aði á vef Kjarnans, að hún hefði ekki fengið neina form­lega afsök­un­ar­beiðni vegna þess­arar umræðu. „Ég frá­bið mér frek­ari sím­töl þar sem ófatl­aður karl­maður í valda­stöðu talar niður til mín og reynir að útskýra fyrir mér hvað eru fötl­un­ar­for­dómar og hvað ekki. Eina eðli­lega sím­talið í stöð­unni væri að biðj­ast ein­læg­lega afsök­un­ar, án nokk­urra útskýr­inga eða mála­leng­inga, og segj­ast í ljósi gjörða sinna ætla að axla ábyrgð á ofbeld­inu sem við vorum beittar og segja af sér,“ sagði Freyja í grein sinni.

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, baðst í dag, við upp­haf þing­fundar, afsök­unar á fram­ferði þing­mann­anna, en siða­nefnd Alþingis hefur nú verið virkjuð og mun hún fjalla um fram­göngu þing­mann­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár