„Við líðum ekki lengur að konur séu smánaðar í skjóli valdamismunar“

Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem kemur fram að jafn­rétti felist ekki síst í því að fólk beri virð­ingu hvert fyrir öðru, óháð kyni, kyn­hneigð, fötlun og öðrum þeim breytum sem hafa áhrif á fólk.

Það er ekki nóg að á Íslandi ríki laga­legt og – næstum því – töl­fræði­legt jafn­rétti sem mælist efst á alþjóð­legum listum. Jafn­rétti felst ekki síst í því að fólk beri virð­ingu hvert fyrir öðru, óháð kyni, kyn­hneigð, fötlun og öðrum þeim breytum sem hafa áhrif á fólk, hvort sem það er í opin­berum störfum eða í einka­líf­inu.

[links]Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá stjórn Kven­rétt­inda­fé­lags Íslands sem send var út í dag. Tilefnið er drykkju­kvöld sex þing­manna úr Mið­flokknum og Flokki fólks­ins í síð­ustu viku þar sem þeir létu falla niðr­andi ummæli um aðra þing­menn, konur, fatl­aða og sam­kyn­hneigða. 

„Við búum í sam­fé­lagi sem breyt­ist ört í átt til jafn­réttis. #MeToo bylt­ingin hefur eflt kraft okkar til að takast á við ójafn­rétti á öllum sviðum sam­fé­lags­ins og í kjöl­far hennar hafa öll við­mið um sam­þykkta hegðun færst til. Við líðum ekki lengur að konur, og raunar allt fólk, sé smánað í skjóli valda­mis­munar,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Þá segir að í sam­tali þing­mann­anna hafi komið fram djúp kven­fyr­ir­litn­ing, fatlað og hinsegin fólk verið smánað og nið­ur­lægt og kyn­þátta­for­dómar afhjúpaðir. Þó hafi verið þarna á meðal ein­stak­lingar sem í trún­að­ar­störfum sínum hafi staðið í fylk­ing­ar­brjósti sem kyndil­berar jafn­réttis á lands­vísu og á heims­vísu.

„Siða­reglur alþing­is­manna kveða skýrt á um að þing­menn skuli „ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með fram­komu sinni“. Auk þess skulu þeir „leggja sig fram um að skapa í störfum sínum heil­brigt starfs­um­hverfi innan þings sem utan og hvar­vetna þar sem þeir sinna störfum sínum þar sem hafnað er hvers konar kyn­ferð­is­legri eða kyn­bund­inni áreitni, ein­elti eða annarri van­virð­andi fram­komu.“ Þá skulu þeir „í öllu hátt­erni sínu sýna Alþingi, stöðu þess og störfum virð­ingu“ og „ekki sýna öðrum þing­mönnum, starfs­mönnum þings­ins eða gestum kyn­ferð­is­lega eða kyn­bundna áreitni, leggja þá í ein­elti eða koma fram við þá á van­virð­andi hátt.“

Ljóst er að þing­menn­irnir sex hafa brotið gegn öllu þessu og við blasir að mál­efni þeirra hljóta að fara í þann far­veg sem kveðið er á um í siða­regl­unum. Stjórn Kven­rétt­inda­fé­lags­ins krefst þess að þing­menn­irnir axli ábyrgð, horf­ist í augu við að þeir eru rúnir trausti og segi taf­ar­laust af sér þing­mennsku.

Í upp­hafi ann­arar aldar full­veld­is­ins brýnir Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands Alþingi og önnur stjórn­völd, kjós­endur og þjóð­ina alla að kvika ekki frá bar­átt­unni fyrir jafn­ara og sann­gjarn­ara þjóð­fé­lagi þar sem ekki hallar á neinn. Sköpum saman Ísland þar sem jafn­rétti ríkir, fyrir okkur öll,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár