Katrín: Óheilbrigð viðhorf til stjórnmála

For­sæt­is­ráð­herra segir að þau orð sem komu úr munni þing­mann­anna séu ótrú­leg og dap­ur­leg. „Ég hélt satt að segja að við værum komin lengra á veg í raun­veru­legri við­horfs­breyt­ingu, núna ári eftir #églíka-bylt­ing­una.“

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að sam­ræður þing­mann­anna á drykkju­fundi í síð­ustu viku séu upp­fullar af for­dómum, kven­fyr­ir­litn­ingu og óheil­brigðum við­horfum til stjórn­mála. Þetta kemur fram á facebook-síðu hennar í dag.

„Þau orð sem komu úr munni þing­mann­ana eru ótrú­leg og dap­ur­leg. Ég hélt satt að segja að við værum komin lengra á veg í raun­veru­legri við­horfs­breyt­ingu, núna ári eftir #églíka-bylt­ing­una,“ segir hún.

Katrín imprar á því að for­sætis­nefnd Alþingis muni fara yfir málið. Það sé mik­il­vægt að Alþingi fari vel yfir málið og grípi til aðgerða. „Það er samt ekki nóg því við sem sam­fé­lag þurfum að taka sam­eig­in­lega á því meini sem svona orð­ræða skapar; þeim ótta og þeirri van­líðan sem hún veldur.“

„Nú þegar við fögnum hund­rað ára afmæli full­veld­is­ins eigum við að hugsa um þau gildi sem við viljum hafa að leið­ar­ljósi í sam­fé­lagi okkar. Þar hljótum við að vilja að hafa gildi á borð við jafn­rétti og virð­ingu í hávegum. Sú orð­ræða sem við höfum lesið um í fjöl­miðlum er því miður í full­kominni and­stöðu við slík gildi. Sem sam­fé­lag eigum við að hafna slíkri orð­ræðu,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár