„Við höldum okkar dampi“

Formaður Flug­freyju­fé­lags Íslands segir að tím­inn verði að leiða það í ljós hvort félags­menn þurfi að setj­ast að samn­inga­borð­inu með breyttar for­sendur eftir kaup Icelandair Group á WOW air.

Berglind Hafsteinsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands.
Berglind Haf­steins­dóttir, for­maður Flug­freyju­fé­lags Íslands. Mynd: Samsett mynd.

Berglind Haf­steins­dóttir, for­maður Flug­freyju­fé­lags Íslands, segir í sam­tali við Kjarnann að bein­ast liggi við að félags­menn stétt­ar­fé­lags­ins haldi sínum dampi eftir fréttir af kaupum Icelandair á WOW air. „Við vitum ekki meira en við höfum lesið í blöð­unum að félögin verða rekin með óbreyttu sniði,“ segir hún.

Fram kom í fréttum í dag að stjórn Icelandair Group hafi gert kaup­samn­ing um kaup á öllu hlutafé í flug­fé­lag­inu WOW air. Kaupin eru meðal ann­ars gerð með fyr­ir­vara um sam­þykki hlut­hafa­fundar Icelandair Group, sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­un­ar.

Nú þegar eru flug­freyjur og -þjónar Icelandair og Air Iceland Connect – sem eru bæði dótt­ur­fé­lög Icelandair Group – með mis­mun­andi kjara­samn­inga en þeir renna út um næstu ára­mót. Berglind segir að lík­leg­ast verði óbreytt snið hjá félag­inu varð­andi þá kjara­samn­inga.

Samn­ingar WOW air verða aftur á móti ekki lausir fyrr en árið 2020. „Tíminn mun leiða í ljós hvað ger­ist og hvernig þetta kemur til með að atvikast. Hvort við þurfum að setj­ast að samn­inga­borð­inu með breyttar for­sendur eða ekki,“ segir Berglind.

Sam­kvæmt til­kynn­ing­u vegna kaupanna verða félögin áfram rekin undir sömu vöru­merkjum en sam­eig­in­leg mark­aðs­hlut­deild þeirra á mark­aðnum yfir Atl­ants­hafið er um 3,8 pró­sent. „Með yfir­tök­unni skap­ast tæki­færi til sóknar á nýja mark­aði og auk þess er gert ráð fyrir að ein­inga­kostn­aður Icelandair Group muni lækka,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár