Icelandair Group kaupir WOW air

Stjórn Icelandair Group hefur gert kaup­samn­ing um kaup á öllu hlutafé í flug­fé­lag­inu WOW air.

Stjórn Icelandair Group hefur gert kaup­samn­ing um kaup á öllu hlutafé í flug­fé­lag­inu WOW air. Kaupin eru meðal ann­ars gerð með fyr­ir­vara um sam­þykki hlut­hafa­fundar Icelandair Group, sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­unar. Þetta kemur fram í frétt RÚV.

[links]Í til­kynn­ingu vegna kaupanna kemur fram að sem gagn­gjald fyrir hlutafé WOW Air muni hlut­hafar WOW air, að upp­fylltum skil­yrðum, eign­ast alls 272.341.867 hluti eða sem sam­svarar um 5,4 pró­sent hluta­fjár Icelandair Group eftir við­skiptin. Þar af séu 178.066.520 hlutir eða sem nemur 3,5 pró­sent hluta­fjár gagn­gjald fyrir hið selda hlutafé. Það gagn­gjald geti hækkað í 4,8 pró­sent og lækkað í 0,0 pró­sent út frá ákveðnum for­sendum í tengslum við áreið­an­leika­könnun. 94.275.347 hlutir eða sem sam­svarar 1,8 pró­sent hluta­fjár séu gefin út til selj­enda vegna breyt­ingar á víkj­andi láni í hlutafé. Selj­endur hafi skuld­bundið sig til að halda hlutum sínum í Icelandair Group í að minnsta kosti 6 mán­uði og helm­ing hlut­anna í að minnsta kosti 6 mán­uði til við­bótar.

Boðað verður til hlut­hafa­fundar Icelandair Group á næstu dögum þar sem tekin verður end­an­leg ákvörðun um kaupin.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni verða félögin áfram rekin undir sömu vöru­merkjum en sam­eig­in­leg mark­aðs­hlut­deild þeirra á mark­aðnum yfir Atl­ants­hafið er um 3,8 pró­sent. Með yfir­tök­unni skap­ist tæki­færi til sóknar á nýja mark­aði og auk þess sé gert ráð fyrir að ein­inga­kostn­aður Icelandair Group muni lækka. Félagið verði þannig enn betur í stakk búið til þess að veita erlendum flug­fé­lögum öfl­uga sam­keppni á hinum alþjóð­lega flug­mark­aði.

Bogi Nils Bogason, starf­andi for­stjóri Icelandair Group, segir við til­efnið að WOW air hafi á und­an­förnum árum byggt upp sterkt vöru­merki og náð miklum árangri á mörk­uðum félags­ins, til og frá Íslandi og yfir Atl­ants­hafið. Það séu mikil tæki­færi til hag­ræð­ingar en félögin verði áfram rekin á eigin for­sendum undir eigin vöru­merkjum og flug­rekstr­ar­leyfum. „Íslensk ferða­þjón­usta er grunn­stoð í íslensku hag­kerfi og það er mik­il­vægt að flug­sam­göngur til og frá land­inu séu í traustum skorðum,” segir hann. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár