WOW Air biðlar til bankanna

Stjórn WOW Air fund­aði í gær. Skúli Mogensen, eig­andi og for­stjóri, reyndi nú til þrautar að tryggja félag­inu nægi­legt fjár­magn til áfram­hald­andi starf­semi.

Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW Air, ásamt stjórn félags­ins og ráð­gjöfum, reyna nú að fá bank­ana, Arion banka, Íslands­banka og Lands­bank­ann, til að koma að fjár­mögnun félags­ins og tryggja þar með rekstur félags­ins.

Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag. Þá segir enn fremur að Skúli hafi fundað með Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu ásamt lög­manni sínum í gær.

Á und­an­förnum vikum hefur WOW Air reynt að tryggja fjár­mögnun upp á 50 til 100 millj­ónir evra, eða sem nemur allt að ríf­lega 13 millj­örðum króna.

Norska verð­bréfa­fyr­ir­tækið Pareto hefur yfir­um­sjón með ferl­inu, og hefur WOW Air kynnt áform og rekstur sinn fyrir erlendum fjár­festum. Ferlið hófst í lok mán­að­ar­ins, eins og fram hefur komið í fréttum og frétta­skýr­ingum á vef Kjarnans. 

Grein­endur Pareto spá því að tap WOW Air í ár verði 3,3 millj­arðar króna, en rekstr­ar­um­hverfi flug­fé­laga hefur versnað tölu­vert að und­an­förnu, ekki síst vegna harðn­andi sam­keppni og vax­andi olíu­kostn­aðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár