Drífa Snædal nýr forseti ASÍ

Drífa Snædal var kjörin fyrst kvenna nýr for­seti ASÍ á 43. þingi Alþýðu­sam­bands Íslands í dag.

Drífa Snædal var kjörin nýr for­seti ASÍ á 43. þingi sam­bands­ins í dag, fyrst kvenna. Tveir ein­stak­lingar buðu sig fram til emb­ætt­is­ins, þau Drífa Snædal fram­kvæmda­stjóri SGS og Sverrir Mar Alberts­son fram­kvæmda­stjóri og stjórn­ar­maður Afls.

[links]Drífa hlaut 192 atkvæði eða 65,8 pró­sent en Sverrir Mar fékk 100 atkvæði eða 34,2 pró­sent. Atkvæði greiddu 293 og var eitt atkvæði ógilt.

Drífa er 45 ára við­skipta­fræð­ingur frá Háskóla Íslands auk þess að vera með meist­ara­próf í vinnu­mark­aðs­fræðum og vinnu­rétti frá Háskól­anum í Lundi. Hún hefur starfað sem fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands Íslands frá árinu 2012 en áður var hún fram­kvæmda­stjóri Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs og Samtaka um Kvenna­at­hvarf. Hún er fyrsta konan sem er kjörin í emb­ætti for­seta ASÍ í 102 ára sögu Alþýðu­sam­bands Íslands.

Í kringum 300 full­trúar frá 48 stétt­ar­fé­lögum kjósa nýja for­ystu­menn Alþýðu­sam­band Íslands í dag. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá ASÍ gæti nið­ur­staða í kosn­ingum til vara­for­seta ASÍ dreg­ist fram yfir hádegi í dag. Til var­for­seta hafa þrír til­kynnt fram­boð, þeir Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands, Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR og Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness.

Gylfi Arn­björns­son, frá­far­andi for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, til­kynnti í júní síð­ast­liðnum á mið­stjórn­ar­fundi sam­bands­ins að hann hygð­ist ekki bjóða sig fram til end­ur­kjörs.

Á þing­inu var mótuð stefna sam­bands­ins til næstu tveggja ára en þingið er haldið annað hvert ár. Stefnt var á að ræða fimm mál­efni sér­stak­lega, tekju­skipt­ing og jöfn­uður, jafn­vægi atvinnu­þátt­töku og einka­lífs, tækni­þróun og skipu­lag vinn­unnar, heil­brigð­is­þjón­usta og vel­ferð­ar­kerfið og loks hús­næð­is­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár