Gylfi Arnbjörnsson kveður

Forseti ASÍ flutti setn­ing­ar­ræðu sína í morgun og bað hann félaga sam­bands­ins að hafa í huga að mesti árang­ur­inn og stærstu sigr­arnir hafi ekki ein­ungis unn­ist með verk­föllum heldur með átaka­lausum kjara­samn­ingum.

Gylfi Arnbjörnsson.
Gylfi Arn­björns­son. Mynd: Bára Huld Beck

„Á þessum bar­áttu­degi stendur íslenskt sam­fé­lag ekki ein­ungis frammi fyrir þeirri áskorun að jafna hlut kynj­anna í sam­fé­lagi okkar heldur stendur Alþýðu­sam­band Íslands og sam­fé­lagið allt einnig frammi fyrir miklum áskor­unum nú þegar und­ir­bún­ingur kjara­samn­inga stendur sem hæst og efna­hags­upp­sveiflan náð hámarki sínu,“ segir Gylfi Arn­björns­son, frá­far­andi for­seti ASÍ í setn­ing­ar­ræðu sinni á 43. þingi sam­bands­ins í dag.

„Reynslan kennir okkur að við slíkar aðstæður getur orðið vanda­samt að sam­ræma vænt­ingar félags­manna okkar um kjara­bætur við þær aðstæður sem fyr­ir­tækin í land­inu búa við,“ segir hann og bætir því við að Íslend­ingar lifi því á spenn­andi átaka­tímum.

[links]Í kringum 300 full­trúar frá 48 stétt­ar­fé­lögum munu kjósa nýja for­ystu­menn Alþýðu­sam­band Íslands í dag en á þing­inu verður jafn­framt mótuð stefna sam­bands­ins til næstu tveggja ára. Drífa Snædal og Sverrir Mar Alberts­son bjóða sig fram til for­seta ASÍ. 

Gylfi tók við sem for­seti Alþýðu­sam­bands­ins fyrir nákvæm­lega 10 árum síðan þann 24. októ­ber 2008, nokkru eftir að Geir Haarde hafði beðið Guð að blessa Ísland, sama dag og stjórn­völd sóttu um neyð­ar­að­stoð Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins og eld­arnir fóru að loga á Aust­ur­velli.

Hann segir að ljóst sé að deilur séu uppi um það hvort Alþýðu­sam­bandið hafi risið undir hlut­verki sínu síð­ast­liðin 10 ár og sitt kann hverjum að finn­ast um það. „En við skulum samt hafa það í huga að ekk­ert sam­fé­lag í hinum vest­ræna heimi og engin verka­lýðs­hreyf­ing hafði áður staðið frammi fyrir öðru eins.“

Gylfi er ekki sam­mála þeim sem haldið hafa því fram að þetta afl, sem Alþýðu­sam­bandið er, hafi ekki verið notað árin eftir hrun, vegna þess að með kjara­samn­ingum og þrí­hliða sam­starfi við stjórn­völd og atvinnu­rek­endur hafi þau ná að hrinda í fram­kvæmd mörgum sam­fé­lags­úr­bótum sem erlendir kollegar þeirra hafi öfundað þau af.

[adspot]

Gylfi segir að allan þann árangur sem náðst hefur í gegnum árin sé fyrst og síð­ast að þakka sam­stöðu fólks­ins og stefnu­festu sem byggi og hafi alltaf byggt á því að það beiti afli sínu í þágu þeirra þeirra félaga sem veikast standa, trú því sem ein­kennir fán­ann okkar þar sem óslitin keðja hverf­ist um nafnið okkar, keðja sem aldrei verður sterk­ari en veikasti hlekkur hennar.

„Staðan er ein­fald­lega sú, að þrátt fyrir að verka­lýðs­hreyf­ing­unni hafi með sam­stöðu sinni tek­ist að hækka lægstu laun langt umfram almenna launa­þróun, hefur það ekki leitt til þeirra bættu lífs­kjara þess­ara hópa sem að var stefnt. Ástæðan er sú að stjórn­völd hafa með aðgerðum sínum og aðgerð­ar­leysi á unda­förnum árum hirt lung­ann af þeim ávinn­ingi sem kjara­samn­ingar hafa tryggt þeim tekju­lægstu.

Við erum að tala um skerð­ingu skatt­leys­is­marka, lækkun barna­bóta, lækkun vaxta- og hús­næð­is­bóta á sama tíma og stjórn­völd hafa van­rækt hlut­verk sitt á hús­næð­is­mark­aði og fast­eigna­verð og húsa­leiga hækkar upp úr öllu valdi. Fólk veigrar sér við að leita læknis vegna hárrar gjald­töku í heil­brigð­is­kerf­inu. Skerð­ingar á greiðslum almanna­trygg­inga með miklum tekju­teng­ingum gagn­vart greiðslum líf­eyr­is­sjóð­anna eru enn eitt dæmið um hvernig ríkið hefur höggvið þar sem hlífa skyldi,“ segir Gylfi.

Hann nefnir einnig að til við­bótar komi síðan skefja­laus sjálf­taka ofur­launa­að­als­ins á svim­andi launa­hækk­unum sem magni hina rétt­látu reiði enn frekar. Hann segir að stjórn­mála­menn beri á þessu fulla ábyrgð. „Krafan um að þeir og dek­ur­börnin þeirra deili kjörum með þjóð­inni er krafa um rétt­læti og jöfnuð.“

Því miður er það svo, að í áætlun rík­is­stjórn­ar­innar til næstu fimm ára stendur ekki til að rétta hag þeirra lægst laun­uðu þegar kemur að vel­ferðar- og skatta­málum.

„Til þess að bíta höf­uðið af skömminni lét rík­is­stjórnin síðan ólög­legar nið­ur­stöður Kjara­ráðs standa og heykt­ist við að taka til baka ofur­hækk­anir stjórn­mála­manna og æðstu emb­ætt­is­manna. Tillaga ASÍ var sam­staða allra um nýjan þjóð­ar­sátt­mála, þar sem auknum tekjum ríkis og sveit­ar­fé­laga af hag­vexti yrði varið til efl­ingar vel­ferðar- og félags­mála. Því miður var rík­is­stjórnin, undir for­sæti Vinstri Grænna, ekki til­búin til þess þessa verks og því var mið­stjórn ASÍ nauð­ugur sá kostur að hafna þátt­töku í þjóð­hags­ráði sem átti að vera sam­ráðs­vett­vangur aðila til þess að tryggja hér efna­hags­legan og félags­legan stöð­ug­leika. Í allri þess­ari umræðu hefur það alltaf legið ljóst fyrir, að ASÍ myndi aldrei sætta sig við aukin ójöfnuð og mis­rétti,“ segir hann.

Gylfi telur að þetta vera rót þeirrar reiði sem birt­ist í sam­fé­lag­inu og segir hann hana ná inn í raðir ASÍ þrátt fyrir þann árangur sem Alþýðu­sam­bandið hafi náð á und­an­förnum árum.

„Ég geri þetta þvert á móti kæru félagar að umtals­efni til þess koma því skýrt til skila, að sam­staðan er það afl sem skilar okkur árangri og gerð kjara­samn­inga er sú leið og sú aðferð sem við höfum til þess að móta sam­fé­lag okkar og berj­ast gegn ójöfn­uði. En til þess að ná slíkum árangri verðum við bæði að vera praktísk og skyn­söm nestuð sterkri hug­sjón um jöfnuð og jöfn tæki­færi, en jafn­framt axla mikla ábyrgð á því að vera þátt­tak­andi í mótun hug­mynda og til­lagna,“ segir hann.

Að lokum segir Gylfi að bera þurfi að hafa í huga að mesti árang­ur­inn og stærstu sigr­arnir hafi ekki ein­ungis unn­ist með verk­föllum heldur með átaka­lausum kjara­samn­ingum, sem lokið sé á breiðum grund­velli í kjöl­far lýð­ræð­is­legs og ein­lægs sam­ráðs og sam­starfs við und­ir­bún­ing og gerð kjara­samn­inga.

[box]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár