Stefnir allt í sögulegt Alþýðusambandsþing

Í dag hefst þing Alþýðu­sam­bands Íslands þar sem um 300 full­trúar frá 48 stétt­ar­fé­lögum móta stefnu sam­bands­ins til næstu tveggja ára. Nýr for­seti sam­bands­ins verður kjör­inn á föstu­dag.

ASÍ - Kröfuganga 1. maí 2018
ASÍ - Kröfu­ganga 1. maí 2018 Mynd: Bára Huld Beck

Í kringum 300 full­trúar frá 48 stétt­ar­fé­lögum munu kjósa nýja for­ystu­menn Alþýðu­sam­band Íslands á 43. þingi ASÍ í dag. Á þing­inu verður mótuð stefna sam­bands­ins til næstu tveggja ára en þingið er haldið annað hvert ár. Stefnt er að ræða fimm mál­efni sér­stak­lega, tekju­skipt­ing og jöfn­uður, jafn­vægi atvinnu­þátt­töku og einka­lífs, tækni­þróun og skipu­lag vinn­unnar, heil­brigð­is­þjón­usta og vel­ferð­ar­kerfið og loks hús­næð­is­mál. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Drífa Snædal, fram­kvæmda­stjóri SGS, og Sverrir Már Alberts­son, fram­kvæmd­ar­stjóri og stjórn­ar­maður Afls, eru í fram­boði til for­seta ASÍ. Kristján Þórður Snæ­björns­son, for­maður RSÍ, Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, og Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður VLFA, bjóða sig fram í emb­ætti vara­for­seta.

Þetta verður ákveðið tíma­móta þing ASÍ, að mati Sum­ar­liði Ísleifs­sonar, lekt­ors við sagn­fræði og heim­speki­deild Háskóla Íslands. Sum­ar­liði hefur skrifað mikið um sögu ASÍ og þekkir því vel sögu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. Hann segir í sam­talið við Morg­un­blaðið að svo miklar breyt­ingar á for­ystu ASÍ í einu hafi ekki gerst lengi. Hann segir ástandið í verka­lýðs­hreyf­ing­unni nú minna að sumu leyti á stöð­una um og eftir miðja 20. öld­ina. Greini­legt sé að tónn­inn sé harð­ari nú en hann hafi verið mörg und­an­farin ár. Svo virð­ist sem and­staðan við ríkj­andi öfl sé að taka yfir..

Félagslegu þáttunum ekki verið sinnt nóg

Sum­ar­liði segir gagn­rýnin og rót­tækan minni­hluta sam­bands­ins vera taka yfir. Má þar nefnda full­trúa Verka­lýðs­fé­lags Akraness, Fram­sýnar á Húsavík, VR og nú for­ysta Eflingar. Hann telur að ástæðan fyrir því að and­staðan við ríkj­andi öfl innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar virð­ist vera að ná í gegn nú sé fyrst og fremst að félags­legu þátt­unum hafi ekki verið sinnt nægi­lega vel und­an­farin ár. 

Gert hafi verið átak í hús­næð­is­málum en það hafi komið of seint og verið of lítið. „Fólki er mis­boðið og það sættir sig ekki við þetta lengur,“ segir Sum­ar­liði. „Svo eru það launa­kröf­urnar. Áhersl­urnar nú eru greini­lega á að það þurfi að hækka laun hinna lægst­laun­uðu sér­stak­lega. Um það er lík­lega nokkuð mikil sam­staða en gæti verið mein­ing­ar­munur innan hreyf­ing­ar­innar um það hversu langt skuli ganga.“

Framboð til forseta

Fram­bjóð­end­urnir tveir til forsta ASÍ, Drífa Snædal og Sverrir Mar Alberts­son, sögðu í Kast­ljósi í gær að þau eru sam­mála um mik­il­vægi þess að safna lið og skipa í fylk­ingar. Eins sé það mik­il­vægt að end­ur­vinna traust Alþýðu­sam­bands­ins sem hafi legið undir ámæli síð­ustu ár. „Alþýðu­sam­bandið er breið fylk­ing, úr öllum stjórn­mála­flokkum og mörg lífs­við­horf og annað slíkt. Það er mik­il­vægt að það sé ein­hver sam­eig­in­legur tónn hjá okkur, að menn finni sinn sann­leika, menn finni eign­ar­hald á þeirri kröfu­gerð sem verið er að gera.“ sagði Sverrir Mar

[links] Kröfu­gerðar Starfs­greina­sam­bands­ins og VR hafa vakið tölu­verða athygli og verið gagn­rýndar af and­stöð­unni fyrir að vera óraun­hæfar. Drífa segir kröf­urnar ábyrgar og unnar út frá kostn­að­ar­mati og segir „Ég segi að það er frekar óábyrgt af verka­lýðs­hreyf­ingu að fara fram með kröfur sem duga ekki fyrir fram­færslu. Þar liggur okkar ábyrgð.“

Drífa segir að eðli­legt að kraum­andi ólga sé á vinnu­mark­aði og í verka­lýðs­hreyf­ing­unni því þær kjara­bætur sem ASÍ hafi samið um hafi ekki skilað sér í umslagið. „Það er alveg ljóst að það eru miklar vænt­ingar og háar kröfur og það er gott, þetta verður vanda­samt verk­efni og spjót­unum verður mjög mikið beint að stjórn­völdum því að ef að þau hefðu staðið við sitt að þá værum við í annarri stöðu í dag, “ segir Drífa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjarabarátta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár