Gylfi gefur ekki aftur kost á sér sem forseti ASÍ

Gylfi Arn­björns­son, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, til­kynnti á mið­stjórn­ar­fundi sam­bands­ins í dag að hann hygð­ist ekki bjóða sig fram til end­ur­kjörs á næsta þingi ASÍ í októ­ber.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Gylfi Arn­björns­son, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, til­kynnti á mið­stjórn­ar­fundi sam­bands­ins í dag að hann hygð­ist ekki bjóða sig fram til end­ur­kjörs á 43. þingi ASÍ í októ­ber. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ASÍ.

Gylfi segir að þetta hafi ekki verið ein­föld ákvörðun en að hann sé engu að síður sann­færður um að hún sé rétt. „Ég tók við sem for­seti ASÍ þremur vikum eftir hrun og það var gríð­ar­leg áskorun sem beið okkar sem vorum í for­ystu á vinnu­mark­að­inum á þeim tíma. Nú 10 árum síðar erum við komin fyrir vind og vel það. Kaup­mátt­ar­aukn­ingin á síð­ustu þremur árum er sú mesta í Íslands­sög­unni, atvinnu­leysi er lítið, verð­bólga lág og vextir í sögu­legu lág­marki, þótt enn séu þeir alltof háir. Allir þessir þættir skipta launa­fólk miklu máli,“ segir Gylfi.

„Und­an­farið hafa deilur innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar hins vegar harðnað og menn tek­ist á um leiðir í kjara­bar­átt­unni. Í þeim deilum virð­ist því miður sem per­sóna mín, í stað skoð­ana minna, sé orðin aðal­at­riði og þá á kostnað mál­efna­legrar umræðu. Alþýðu­sam­bandið er meira en 100 ára gam­alt og gríð­ar­lega mik­il­vægt í allri rétt­inda- og kjara­bar­áttu launa­fólks á Íslandi. ASÍ er mun stærra en nokkur ein­stak­lingur, en ég við­ur­kenni að það er erfitt og lýj­andi að eiga í átökum við félaga sína. Ég hef ávalt verið reiðu­bú­inn til að berj­ast með félögum mínum og fyrir þá, en að berj­ast við þá gefur mér ekk­ert og skilar heldur engu fyrir hreyf­ing­una,“ segir Gylfi.

Í til­kynn­ing­unni kemur enn fremur fram að Gylfi hafi verið sann­færður um að sú sýn sem for­ysta Alþýðu­sam­bands­ins og aðild­ar­fé­lag­anna hefur haft að leið­ar­ljósi á síð­ustu ára­tugum hafi skilað miklum árangri og hann von­ast til að áhersla verði áfram lögð á að tryggja stöð­ug­leika og lang­tíma­ár­angur í kjara­bar­átt­unni. „Ef brott­hvarf mitt getur orðið til þess að auka lík­urnar á að áfram verði haldið á svip­uðum nótum ber mér að íhuga stöðu mína og hlut­verk. Það hef ég nú gert og nið­ur­staða mín er sú að ég mun ekki gefa kost á mér sem for­seti ASÍ á þing­inu okkar í haust. Ég tek þessa ákvörðun í þakk­læti og auð­mýkt fyrir að hafa fengið að starfa fyrir íslenska verka­lýðs­hreyf­ingu allan minn starfs­feril. Ég vona sann­ar­lega að hreyf­ingin nái vopnum sínum og sam­ein­ist í störfum sínum fyrir launa­fólk á Íslandi í kom­andi kjara­samn­ingum. Verka­lýðs­hreyf­ingin er nefni­lega svo miklu öfl­ugri þegar allir róa í sömu átt,“ segir hann.

Gylfi Arn­björns­son hefur verið for­seti ASÍ í 10 ár en hann var fyrst kjör­inn í októ­ber 2008 og end­ur­kjör­inn fjórum sinnum eftir það. Þar á undan var Gylfi fram­kvæmda­stjóri ASÍ frá 2001 en hann kom fyrst til starfa hjá verka­lýðs­hreyf­ing­unni árið 1989, þá sem hag­fræð­ingur ASÍ hjá Kjara­rann­sókn­ar­nefnd.

Drífa Snædal fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands­ins hafði ekk­ert að segja, þegar Kjarninn hafði sam­band við hana, en nafn hennar hefur helst verið nefnt sem arf­taki Gylfa í emb­ætti for­seta ASÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár