Súrnun sjávar og áhrif þess á sjávardýr

Súrnun sjávar leiðir meðal ann­ars til þess að kuð­ungar snigla sem búa í sjónum verða þynnri, skemmd­ari og að á þá vanti oft felu­lit­ina sem ein­kennir þá.

Einn af alvar­legum fylgi­fiskum auk­ins styrks koltví­sýr­ings í and­rúms­lofti er súrnun sjávar. Flestir hafa senni­lega marg­sinnis heyrt þessa full­yrð­ingu án þess kannski að fá nokkra til­finn­ingu fyrir því hvaða áhrif það hefur.

Súrnun sjávar mun hafa áhrif á alla íbúa hafs­ins, í mis­miklu magni þó. Afleið­ing­arnar eru ekki enn að fullu þekktar, enda búa sjáv­ar­líf­verur nú við ákveðið sýru­stig í sínu vist­kerfi sem þær hafa aðlagað sig að. En hvað ger­ist þegar það breyt­ist?

Við strendur Shikine-jima í Japan er að finna líf­kerfi sem verða fyrir miklum áhrifum eld­fjalla. Áhrif nálægra eld­fjalla eru sömu og auk­inn styrkur koltví­sýr­ings í and­rúms­lofti munu vera, þar sem þau dæla koltví­sýr­ing í miklu magni útí hafið. Styrkur koltví­sýr­ings nálægt Shikine-jima er tal­inn vera í svip­uðu magni og við munum mæla hvar­vetna í haf­inu innan fárra ára, verði ekk­ert að gert.

Þessar aðstæður gera líf­kerfin nálægt Shikine-jima að full­komnu rann­sókn­ar­efni til að skoða hvaða áhrif súrn­unin getur haft. Í rann­sókn sem birt var í Fronti­ers in Marine Science eru birtar nið­ur­stöður rann­sókn­ar­hópa, frá Japan og Bret­landi, sem báru saman kuð­unga, sjáv­ar­snigla, af teg­und­inni Charonia lampas sem bjuggu ann­ars vegar við hefð­bundið sýru­stig sjávar og hins vegar í súru umhverfi Shikine-jima.

Við sam­an­burð­inn komu í ljós aug­ljós áhrif súr­ara umhverfis. Kuðungar snigl­anna sem bjuggu í súru umhverfi voru mun þynnri, sýndu fleiri skemmdir og skorti oft felu­lit­ina sem ein­kenndi snigl­ana úr hefð­bundn­ara umhverfi. Í stuttu máli voru snigl­arnir í súra umhverf­inu við­kvæm­ari fyrir öllu áreiti.

Þegar snigl­arnir mynda skel­ina úr kals­íum­kar­bónati losa þeir út koltví­sýr­ing. Með hækk­andi sýru­stigi sjávar verður þetta efna­hvarfi erf­ið­ara og telja vís­inda­hóp­arnir það megin ástæðu þess að kuð­ung­arnir sem mynd­ast í súru umhverfi eru við­kvæm­ari. Það kostar líf­ver­una ein­fald­lega of mikla orku að búa skel­ina til.

Súrnun sjávar má því líta á sem streitu­vald í lífi sjáv­ar­líf­vera, sam­kvæmt þessum nið­ur­stöðum. Streita í lífi sjáv­ar­líf­veru er ekki ósvipað þeirri streitu sem við upp­lifum, hún getur haft áhrif á alla þætti líf­ver­anna, m.a. getu þeirra til að nær­ast og fjölga sér.

Hér er ein­ungis talað um áhrifin sem súrnun sjávar getur haft á eina teg­und líf­vera, en það verður að telj­ast ólík­legt að nokkur teg­und kom­ist ósködduð frá þeim ham­förum sem vofa yfir okkur. Það er því um að gera að taka áskorun höf­unda lofts­lags­skýrslu Sam­ein­uðu þjóð­anna og draga strax úr losun koltví­sýr­ings út í and­rúms­loftið.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár