Segir frumvarpshöfunda slá upp jafnréttisskikkju

Í umsögn Heið­veigar Maríu Ein­ars­dóttur um nýtt frum­varp um breyt­ingar á veiði­gjöldum gagn­rýnir hún jafn­réttiskafl­inn, sem og frum­varpið í heild sinni.

Heiðveig María Einarsdóttir.
Heiðveig María Ein­ars­dóttir. Mynd: Samsett mynd.

„Á sama tíma og sjó­manna­for­ystan telur hag sjó­manna hafa tekið stakka­skiptum eftir síð­ustu samn­inga með fríu fæði og vinnu­fötum sem þeir sjálfir og hjálp­ar­laust, að eigin mati, komu inn í okkar kjör líður mér eins og þeim finn­ist þeir getað tekið sér pásu frá þeim málum sem okkur varða - félaga þess­ara stétt­ar­fé­laga.“ Þetta segir Heiðveig María Ein­ars­dóttir sjó­maður og við­skipta­lög­fræð­ingur í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni í morgun.

Hún gagn­rýnir þar harð­lega nýtt frum­varp um breyt­ingar á veiði­gjöldum sem kynnt var í síð­ustu viku og af þeim sökum hefur hún nú tekið saman athuga­semdir og umsögn um frum­varpið og komið þeim á fram­færi við Atvinnu­vega­nefnd Alþingis sem fer með málið.

Heiðveig fer hörðum orðum yfir það sem kemur fram í frum­varp­inu varð­andi jafn­rétt­is­mál. Hún segir í umsögn sinni að frum­varps­höf­undar slái upp jafn­rétt­is­skikkj­unni og í raun leggi fram ein­ungis ein rök fyrir því að stofn til útreikn­ings veiði­gjalds skuli ekki byggður á fisk­vinnslu.

Hún vísar í kafla úr frum­varp­inu þar sem fram kemur að ástæða sé til að víkja sér­stak­lega að jafn­rétt­is­málum. „Vinnu­mark­að­ur­inn hér á landi er kynja­skiptur eins og víða í hinum vest­ræna heimi. Konur eru að miklu leyti laun­þegar í ýmis konar þjón­ustu­greinum. Fram hefur komið það sjón­ar­mið að á lands­byggð­inni séu víða ríkj­andi karllæg við­mið og gildi þar sem störf sem karl­menn gegna séu meira metin, svo sem í frum­at­vinnu­grein­unum, sjáv­ar­út­vegi, land­bún­aði og iðn­aði. Störf í land­vinnslu hafa jafnan verið að meiri­hluta á hendi kvenna. Þá má geta þess að konur hafa á síð­ustu árum verið mun sýni­legri í sjáv­ar­út­vegi en áður. Nefna má að með frum­varpi þessu er ekki lagt til að vinnsla á sjáv­ar­afla verði hluti af reikni­stofni veiði­gjalds sem mundi fremur, sam­kvæmt þessu, koma við störf kvenna en karla,“ segir í frum­varp­inu.

Heiðveig telur að með þess­ari fram­setn­ingu séu frum­varps­höf­undar að varpa fram þeirri spurn­ingu að veiði­gjaldið komi til með að verða greitt af þeim sem við grein­ina starfa frekar en þeim er hagn­ast af henni og stingi það algjör­lega í stúf við mark­mið, umfjöllun og „lof­orð“ þar um.

„Að sama skapi má lesa út úr þess­ari máls­grein að frum­varps­höf­undar telji störf kvenna mik­il­væg­ari en störf karla, þá sjó­manna sem eru að meiri­hluta karl­menn, þá að því gefnu að frum­varps­höf­undar séu sam­kvæmir sjálfum sér í skrifum þessum. Að fórna og ógna afkomu sjó­manna og fjöl­skyldna þeirra og þá tekjum rík­is­sjóðs með röklausri jafn­rétt­is­skikkju er því algjör tíma­skekkja og í besta falli algjör­lega á skjön við allt það sem frum­varp þetta á að byggja á,“ segir hún í umsögn sinni.

Heiðveig segir jafn­framt í sam­tali við Kjarnann þetta vera fárán­legt fram­lag inn í frum­varpið, þetta sé mis­munun og yfir­klór.

Illa unnið frumvarp

Heiðveig telur frum­varpið illa unnið að miklu leyti. Hún bendir á að í frum­varp­inu sé margt sagt kannað og að ekki hafi gef­ist tími til að skoða ýmsa hluti. Margt sé einnig látið liggja milli hluta. Frum­varpið sé langt í frá boð­legt sem grunnur að ein­hvers konar sátt um póli­tískt hita­mál. Heiðveig segir að miðað við gagn­rýn­ina sem kom fram á síð­asta frum­varp séu þetta von­brigði.

„Ég hlust­aði á umræð­urnar á Alþingi og maður getur ekki sleppt því að spyrja sig hverra hags­muna sé verið að gæta þarna,“ segir hún og bætir því að útfærsl­urnar komi til með að koma niður á sjó­mönn­unum sjálfum, verði frum­varpið óbreytt að lögum. Hún gagn­rýnir jafn­framt for­ystu sjó­manna en hún er sjálf í Sjó­manna­fé­lagi Íslands. „Enginn segir neitt frá for­yst­unni,“ segir hún og telur hún enn fremur að umsagnir eigi að koma frá stétt­ar­fé­lög­unum sem eigi að leita til við­eig­andi fag­að­ila eftir við­fangs­efni hverju sinni ef þurfa þykir.

Veiðigjöldin klipin af hlut sjómanna

Í stöðu­upp­færslu sinni seg­ist hún hafa bent á hvernig sjó­menn fengu einir stétta ekki aukið mót­fram­lag launa­greið­anda í líf­eyr­is­sjóði, gagn­rýnt fram­göngu for­yst­unnar varð­andi mynda­véla­eft­ir­lit og nú síð­ast varð­andi frum­varp um breyt­ingar á veiði­gjald­inu. „Miðað við mína reynslu af sam­skiptum við okkar verka­lýðs­for­ystu gerði ég ekki ráð fyrir að okkar hags­muna væri gætt hér frekar en fyrri dag­inn þegar nýtt veiði­gjalda­frum­varp var kynnt nú í síð­ustu viku.

Við sjó­menn ræðum það okkar á milli að lík­lega verði veiði­gjöldin að ein­hverju leyti klipin af okkar hlut,“ segir hún og af þeirri ástæðu tók hún saman athuga­semdir og umsögn um frum­varpið og kom þeim á fram­færi við Atvinnu­vega­nefnd Alþingis sem fer með málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjarabarátta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár