Hannes segir Breta skulda Íslendingum afsökunarbeiðni

Beiting hryðju­verka­lag­anna bresku gegn Íslandi var rudda­leg og óþörf aðgerð og bresk stjórn­völd skulda þeim íslensku afsök­un­ar­beiðni vegna hennar. Þetta kemur fram í skýrslu Hannesar Hólm­steins Giss­ur­ar­sonar sem hann skil­aði til fjár­mála­ráð­herra í dag.

Beiting hryðju­verka­lag­anna bresku 8. októ­ber 2008 gegn Lands­bank­anum, Seðla­bank­anum og Fjár­mála­eft­ir­lit­inu var rudda­leg og óþörf aðgerð og bresk stjórn­völd skulda þeim íslensku afsök­un­ar­beiðni vegna hennar. Þetta kemur fram í skýrslu Félags­vís­inda­stofn­unar Háskóla Íslands um erlenda áhrifa­þætti banka­hrunsin, sem Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son pró­fessor hafði yfir­um­sjón með, og skilað var til fjár­mála­ráð­herra í dag.

[links]Í yfir­liti á heima­síðu ráðu­neyt­is­ins þar sem teknar eru saman helstu nið­ur­stöður skýrsl­unnar kemur fram að Mervyn King lávarður, hafi sagt við Hannes að beit­ing hryðju­verka­lag­anna hafi verið Bretum til skammar. Því mark­miði að koma í veg fyrir ólög­lega fjár­magns­flutn­inga hafi mátt ná með til­skipun, sem breska Fjár­mála­eft­ir­litið gaf út til úti­bús Lands­bank­ans í Lundúnum 3. októ­ber 2008.

Hannes segir bresk stjórn­völd hafa mis­munað þeim tveimur bresku bönkum sem voru í eigu Íslend­inga, Herita­ble og KSF, í októ­ber­byrjun 2008, með því að bjarga öllum breskum börnkum nema hinum íslensku. Þeim hafi verið neitað um fyr­ir­greiðslu og lokað með til­skip­unum. Mismunun á grund­velli þjónernis gangi gegn reglum um innri markað Evrópu en Hannes vekur athygli á því að það mál hafi samt ekki verið tekið upp af fram­kvæmda­stjórn ESB.

Þá segir Hannes að Íslend­ingar hafi ekki mis­munað á grund­velli þjóð­ernis, þegar þeir settu neyð­ar­lögin 6. októ­ber 2008. Þannig hafi breskir inni­stæðu­eig­endur notið sama for­gangs og íslenskir. Íslenska þjóðin hafi hvorki borið laga­lega né sið­ferði­lega ábygð á skuld­bind­ingum bank­anna. Hann segir mál­flutn­ing Breta í Icesave-deil­unni því ekki hafa verið á rökum reistur og að bresk stjórn­völd skuldi íslensku þjóð­inni afsök­un­ar­beiðni vegna beit­ingar hryðju­verka­lag­anna og fram­göng­unnar í Icesave-mál­inu.

Hannes segir að einn almennan lær­dóm fyrir Evrópu og raunar allan heim megi draga af við­brögðum íslenskra stjórn­valda við banka­hrun­inu: Með því að gera inn­stæðu­eig­endur að for­gangs­kröfu­höfum í bú banka verður óþarft að veita bönkum rík­is­á­byrgð, og þannig minnkar freistni­vandi (moral hazard) banka.

Tvær aðgerðir eru í skýrsl­unni sagðar hafa skipt miklu máli um þá keðju­verkun sem varð í banka­hrun­inu. Að Danske bank neit­aði Glitni um fyr­ir­greiðslu í sept­em­ber 2008, þegar hann ætl­aði að selja hinn norska banka sinn, með þeim afleið­ingum að Glitnir varð að leita til Seðla­bank­ans um neyð­ar­lán. „Það setti af stað banka­hrunið. Breska fjár­mála­eft­ir­litið lok­aði KSF 8. októ­ber með þeim afleið­ingum, að móð­ur­fé­lagið á Íslandi, Kaupþing, féll því að lána­línur voru háðar áfram­hald­andi rekstri KSF. Það olli falli síð­asta bank­ans, sem eftir stóð.

Hannes Hólm­steinn hefur unnið að skýrsl­unni í fjögur ár. Hann­esi var falið að stýra rann­sókn­ar­verk­efn­inu í júlí 2014 af þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­syni. Áætl­aður kostn­aður við verk­efnið var tíu millj­ónir króna og áætluð verk­lok voru í byrjun sept­em­ber 2015. Þau verk­lok frest­uð­ust ítrek­að. Til stóð að kynna skýrsl­una 8. októ­ber 2017, rúmum tveimur árum eftir áætluð verk­lok, en af því varð ekki. Þá stóð til að kynna skýrsl­una 20. nóv­em­ber 2017 en því var einnig frestað. Í pistli sem Hannes skrif­aði á vef­inn Press­una sagð­ist hann ætla að fresta skilum til að „gefa þeim, sem minnst er á í henni, kost á að skýra mál sitt, leið­rétta og gera athuga­­semd­­ir.“ Kynn­ingin átti þá að fara fram 16. jan­ú­ar 2018.

Í sam­tali mbl.is við Hannes kemur fram að stytt­ing skýrsl­unnar, sem er um 180 blað­síður að lengd en var áður meira en 300 blað­síður, sé meðal þess sem hafði áhrif á seinkun útgáfu hennar. Skýrslan er á ensku og má nálg­ast í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár