Skýrsla Hannesar um hrunið væntanleg

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið segir að Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son hafi greint því frá að skýrslu hans um erlenda áhrifa­þætti hruns­ins verði skilað í októ­ber. Hún hefur hins vegar ekki borist enn.

Skýrsla Hannesar Hólm­steins Giss­ur­ar­sonar, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands, um rann­sókn­ar­verk­efni sem hann stýrir á vegum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um erlenda áhrifa­þætti hruns­ins hefur ekki enn verið skilað til ráðu­neyt­is­ins. Hannes hefur hins vegar greint ráðu­neyt­inu frá því að henni verði skilað í októ­ber. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur ekki skipu­lagt neina sér­staka kynn­ingu á skýrsl­unni og nið­ur­stöðum hennar þegar hún berst ráðu­neyt­inu. Þetta kemur fram í svari þess við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Hannesi var falið að stýra rann­sókn­ar­verk­efn­inu í júlí 2014 af þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­syni. Áætlaður kostn­aður við verk­efnið var tíu millj­ónir króna og áætluð verk­lok voru í byrjun sept­em­ber 2015. Í júní síð­ast­liðnum var greint frá því í fjöl­miðlum að til stæði að kynna skýrsl­una 8. októ­ber næst­kom­andi, á níu ára afmæli hruns­ins. Á sama tíma var greint frá því að skýrslan væri í yfir­lestri.

Ráðn­ing Hann­esar til verks­ins var afar umdeild og var víða gagn­rýnd sökum mik­illa tengsla hans við áhrifa­menn innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sér­stak­lega fyrr­ver­andi seðla­banka­stjór­ann Davíð Odds­son, sem nú stýrir Morg­un­blað­inu.

Fjallar meðal annars um FIH

Hannes skrif­aði grein í Morg­un­blaðið 21. apríl 2015 þar sem hann opin­ber­aði í fyrsta sinn hluta af því sem hann er að skrifa um í skýrslu sinni. Í grein­inn fjall­aði hann í löngu máli um söl­una á FIH-­bank­an­um, sem tekin var sem veð fyrir neyð­ar­láni Seðla­banka Íslands til Kaup­þings 6. októ­ber, þegar Davíð Odds­son stýrði enn Seðla­bank­an­um. Kjarn­inn greindi frá því 2. októ­ber 2014 að tap íslenskra skatt­greið­enda vegna FIH væri 35 millj­arðar króna.

Hannes komst að þeirri nið­ur­stöðu að FIH hafi verið gott veð. Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri hafi hins vegar verið plat­aður í mál­inu með þeim afleið­ingum að Ísland varð af 60 millj­arða króna ágóða vegna FIH, og sat þess í stað uppi með ofan­greint tap.

Már svar­aði grein Hannesar skömmu síðar. Hann sagði Hannes mis­skilja margt í mál­inu og full­yrti að ef Seðla­bank­inn hefði knúið FIH bank­ann í slita­með­ferð haustið 2010 hefði allt neyð­ar­lánið sem bank­inn veitti Kaup­þingi 6. októ­ber 2008 tap­ast. Með því að selja bank­ann tak­ist Seðla­bank­anum að inn­heimta lið­lega helm­ing láns­ins, sem var upp á 500 millj­ónir evra.

Seðlabankinn er líka að vinna að skýrslu

Um svipað leyti og skýrsla Hannesar verður kynnt ætlar Seðla­banki Íslands að kynna skýrslu sem hann hefur unnið um neyð­ar­lán­veit­ingu bank­ans til Kaup­þings í októ­ber 2008. Kjarninn greindi frá því í júlí að vinna við skýrsl­una væri langt á veg komin og að hún yrði kynnt í banka­ráði Seðla­bank­ans á haust­mán­uðum. Seðla­bank­inn vildi þó ekki gefa upp nákvæma dag­setn­ingu fyrir útgáfu skýrsl­unnar.

Hún hefur þó, líkt og skýrsla Hannesar, verið lengi á leið­inni. Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri greindi frá því í febr­úar 2015 að hann ætl­aði að láta taka saman skýrslu um til­drög þess að Kaupþing fékk neyð­ar­lán upp á 500 millj­ónir evra frá bank­anum 6. októ­ber 2008, sama dag og neyð­ar­lög voru sett og Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, bað guð að blessa Ísland í sjón­varps­ávarpi. Það eru því um tvö og hálft ár liðið frá því að skýrslan var boðuð.

Í svari við fyr­ir­spurn frá Kjarn­anum um afdrif skýrsl­unnar, sem send var í júlí, segir Seðla­banki Íslands að ákveðið hafi verið að bæta sölu­ferli FIH bank­ans – en sá danski banki var tek­inn sem veð fyrir lán­inu – við skýrsl­una. „Sá hluti er mjög umfangs­mik­ill og snertir m.a. þróun efna­hags- og banka­mála í Danmörku. Vegna mik­illa anna starfs­manna við önnur verk hefur verið erf­ið­leikum bundið að tryggja næga krafta í þetta verk – en það er sem sagt langt á veg komið,“ segir í svar­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár