Skattgreiðendur tapa 35 milljörðum á láni til Kaupþings

Íslenskir skatt­greið­endur munu tapa ríf­lega 35 millj­örðum króna á lán­inu sem Seðla­banki Íslands veitti Kaup­þingi dag­inn örlaga­ríka 6. októ­ber 2008, þegar íslenska fjár­mála­kerfið rið­aði til falls og Alþingi sam­þykkti neyð­ar­lög til að þess að bregð­ast við stöðu mála. Kaupþing fékk þá 500 millj­ónir evra að láni, eða sem nemur 76 millj­örðum króna á núver­andi gengi. Nú hefur end­an­lega verið stað­fest að Seðla­banki Íslands mun ekki fá meira en 100 millj­ónir danskra króna, ríf­lega tvo millj­arða króna, til baka til við­bótar við 1,9 millj­arða danskra króna, um 40 millj­arða króna, sem þegar höfðu skilað sér. Stefán Jóhann Stef­áns­son, rit­stjóri Seðla­bank­ans, stað­festi þetta við Kjarnann. „Þetta er vissu­lega minna en vonir stóðu til um,“ sagði Stefán Jóhann. End­ur­heimtur af 500 millj­óna evra lán­inu verða því að hámarki 270 millj­ónir evra.


FIH bankinn allur


Lánið var veitt með veði í FIH Erhvers­bank bank­anum danska sem nú hefur lagður niður sem við­skipta- og fjár­fest­inga­banki og er aðeins fyr­ir­tækja­ráð­gjöf eftir af upp­haf­legri starf­semi. Bankinn var lagður niður í maí síð­ast­liðnum þegar 2/3 að við­skiptum bank­ans voru seld til Spar Nord. Um þessa stöðu er getið í hálfs­árs­upp­gjöri FIH, það er að hámarks­heimtur Seðla­banka Íslands af lán­inu til við­bótar verði 100 millj­ónir danskra króna.

Danska blaða­konan Heidi Birgitte Nielsen, hjá fjár­mála­vefnum FinansWatch.dk, greindi frá því í lok ágúst að ljóst væri nú að Seðla­banki Íslands gæti ekki fengið meira en 100 millj­ónir danskra til við­bótar. Var þetta meðal ann­ars haft eftir Bjarna Graven hjá FIH, og vitnað í upp­lýs­ingar um upp­skiptin á bank­anum og ákvörðun um að leggja hann niður.

Seðla­banki Íslands tók alls­herj­ar­veð í FIH þegar hann lán­aði Kaup­þingi 500 millj­ónir evra í miðju efna­hags­hrun­inu.

„Seðlabankinn er öruggur um að fá þessa peninga til baka“


Stjórn­endur seðla­bank­ans og stjórn­endur Kaup­þings full­yrtu þegar lánið var veitt, að pen­ing­arnir myndu ekki tap­ast. FIH væri traustur banki sem myndi standa undir 500 millj­óna evra lán­inu ef Kaup­þingi gæti ekki greitt lánið til baka. Sigurður Ein­ars­son, þáver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, full­yrti í Kast­ljósi þann 6. októ­ber 2008, sama dag og lánið var veitt, að hann gæti kinn­roða­laust sagt að lánið væri öruggt. „Seðla­bank­inn er öruggur um að fá þessa pen­inga til baka,“ sagði Sigurður enn­fremur. Davíð Oddsson, sem þá var for­maður banka­stjórnar Seðla­bank­ans, sagði í sama þætti að hann hefði engar áhyggjur ef lánið feng­ist ekki end­ur­greitt. Þá myndi „Seðla­bank­inn eign­ast mjög góðan banka í Danmörku, FIH.“ Eftir að Kaupþing féll nokkrum dögum síðar, 9. októ­ber, gerð­ist þetta og aðkoma seðla­bank­ans að FIH hófst form­lega, þó seðla­bank­inn hafi ekki tekið bank­ann yfir sem eig­andi. Slita­stjórn Kaup­þings var með stjórn á bank­anum, beint og óbeint, og átti Steinar Þór Guð­geirs­son hrl., þáver­andi for­maður skila­nefndar Kaup­þings, meðal ann­ars sæti í stjórn bank­ans um tíma.

Bankinn þurfti mikla hjálp


Það kom fljót­lega í ljós að FIH, sem var á þessum tíma sjötti stærsti banki Dan­merkur, var ekki sá happa­fengur sem bæði lán­veit­endur og lán­tak­endur stórs hluta gjald­eyr­is­forða íslensku þjóð­ar­innar á þeim tíma þegar lánið var veitt vildu meina. Staða bank­ans var verri en haldið hafði verið fram.

Þann 30. júní 2009 þurfti danska ríkið að veita FIH víkj­andi lán upp á 1,9 millj­arða danskra króna. Til við­bótar ábyrgð­ist danska ríkið mán­uði síðar skulda­bréfa­út­gáfu FIH upp á 50 millj­arða danskra króna, um eitt þús­und millj­arða íslenskra króna. Aðstoðin var veitt undir for­merkjum svo­kall­aðs „Bankapakka II“ sem danska ríkið hafði sett saman til að bjarga sínu banka­kerfi. Pakkinn sner­ist um að ábyrgj­ast inn­lán og skulda­bréfa­út­gáfu danskra fjár­mála­fyr­ir­ækja sem eftir því ósk­uðu. Danska ríkið var því í reynd búið að bjarga eign íslenska Seðla­bank­ans.

Danska banka­sýslan (Fin­ansiel Stabilittet) og danska fjár­mála­eft­ir­litið (Fin­an­stil­sy­net) fylgd­ust náið með því hvernig FIH bragg­að­ist og þrýstu mikið á að leyst yrði úr eig­enda­málum bank­ans til að hann gæti fjár­magnað sig á mark­aði.

Tilkynning um hagnað reyndist villandi


Í sept­em­ber 2010 var sagt frá því að FIH hefði verið seldur. Í til­kynn­ingu frá Seðla­banka Íslands var sagt að kaup­verðið á FIH væri 103 millj­arðar króna, eða 670 millj­ónir evra. Því virt­ist sem Seðla­bank­inn hefði hagn­ast veru­lega á þess­ari „fjár­fest­ingu“. Það átti eftir að reyn­ast blekk­ing.

Nýir eig­endur stað­greiddu ein­ungis um helm­ing þeirra upp­hæðar sem Kaupþing hafði fengið lán­aða, 39 millj­arða króna eða um 255 millj­ónir evra. Afgang­ur­inn var selj­enda­lán sem Seðla­bank­inn veitti nýjum eig­endum og átti að end­ur­greið­ast að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum fram til loka árs­ins 2014.

Selj­enda­lánið bar enga vexti. Auk þess var sam­þykkt að afskriftir allra eigna sem voru á efna­hags­reikn­ingi FIH þegar hann var seldur myndu drag­ast frá lán­inu. Á hinn bóg­inn myndi virði þess aukast ef helm­ings­hlutur sem FIH átti óbeint í skart­gripa­fram­leið­and­anum Pandoru myndi hækka. Að lokum var sett inn ákvæði um að end­ur­heimt Seðla­bank­ans yrði meiri ef kaup­enda­hóp­ur­inn næði fjár­fest­ingu sinni til baka fyrir árs­lok 2015.

Peningabaukur áhættufjárfesta


Síðan kaup­samn­ing­ur­inn var gerður hefur FIH afskrifað upp­hæð sem sam­svarar upp­hæð selj­enda­láns­ins. Í ljós kom að útlán bank­ans voru fjarri því að vera jafn trygg og af var látið. Það átti sér­sta­lega við um lán til félaga í fast­eigna­rekstri og bygg­inga­iðn­aði. Berl­ingske Tidende greindi frá því árið 2011 að FIH hefði verið pen­inga­baukur fyrir áhættu­fjár­festa í þessum geirum, sem gengu undir nafn­inu Millj­arða­mær­inga­klúbb­ur­inn, á meðan bank­inn var í eigu Kaup­þings. Flestallir með­limir þess klúbbs eru gjald­þrota í dag og greiddu ekki lán sín til baka.

Og nú hefur FIH hætt banka­starf­semi, eins og áður segir.

Lánuðu út neyðarlánið


Lánið sem Kaupþing fékk frá Seðla­bank­anum þegar FIH var lagður að veði hefur verið ítrekað til umfjöll­unar í opin­berri umræðu á und­an­förnum árum. Alþingi hefur í nokkur skipti reynt að kom­ast til botns í því hvers vegna lánið var veitt, og hefur afrit af sím­tali Davíðs Odds­sonar og Geirs H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, verið meðal þess sem borið hefur á góma. Þó síma­talið hafi á sínum tíma verið tekið upp, og afrit af því til, þá hefur það ekki verið gert opin­bert.

Lánið hefur einnig komið inn á borð yfir­valda sem rann­saka ýmis mál tengd hruni fjár­mála­kerf­is­ins. Í ákæru­skjali emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara í máli hans gegn Hreiðari Má Sig­urðs­syni, Sigurði Ein­ars­syni og Magnúsi Guð­munds­syni vegna umboðs­svika, sem birt var í byrjun maí, kemur fram að þær lán­veit­ingar sem emb­ættið telur ólög­legar hafi meðal ann­ars átt sér stað eftir veit­ingu Seðla­bank­ans á 500 milljón evra lán­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár