Hannes Hólmsteinn: FIH var gott veð en klúður Más kostaði Ísland 60 milljarða ágóða

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor og umsjón­ar­maður með rann­sókn­ar­verk­efni Félags­vís­inda­stofn­unar fyrir fjár­mála­ráðu­neytið um erlenda áhrifa­þætti íslenska banka­hruns­ins, segir að mis­tök Seðla­bank­ans, undir stjórn Más Guð­munds­sonar seðla­banka­stjóra, við sölu á danska bank­anum FIH hafi gert það að verkum að ríkið hafi tapað allt að 60 millj­örðum króna að óþörfu. Enn­fremur hafi segir hann að verð­matið á Arion banka og Íslands­banka þegar þeir voru seldir kröfu­höfum sínum hafi verið 307 millj­örðum króna of lág og að með þving­uðum flýt­isölum á erlendum eignum fall­inna íslenskra banka hafi tap­ast 210 millj­arðar króna sem hefðu átt að renna óskipt til rík­is­ins. Þetta kemur fram í grein eftir Hannes sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag.

Umdeild ráðning


Hannesi var í fyrra falið að stýra rann­sókn­ar­verk­efni á vegum fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins á erlendum áhrifa­þáttum hruns­ins. Áætlaður kostn­aður verk­efn­is­ins var tíu millj­ónir króna og áætluð verk­lok eru í byrjun sept­em­ber næst­kom­andi. Ráðning Hannesar til verks­ins var afar umdeild sökum mik­illa tengsla hans við áhrifa­menn innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sér­stak­lega fyrrum seðla­banka­stjór­ann Davíð Oddsson, sem nú stýrir Morg­un­blað­inu.

Í grein sinni í dag opin­berar Hannes í fyrsta sinn hluta af nið­ur­stöðu sinni. Þar fjallar hann í löngu máli um söl­una á FIH-bank­anum, sem tekin var sem veð fyrir neyð­ar­láni Seðla­banka Íslands til Kaup­þings 6. októ­ber, þegar Davíð Oddsson stýrði enn Seðla­bank­anum. Kjarninn greindi frá því 2. októ­ber 2014 að tap íslenskra skatt­greið­enda vegna FIH væri 35 millj­arðar króna.

[caption id="attachment_9379" align="alignnone" width="624"] Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og fyrrum seðla­banka­stjóri. Hannes segir að Davíð hafi tekið ákvörðun um að taka veð í FIH.[/caption]

FIH gott veð sem Davíð bar ábyrgð á


Hannes kemst hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu að FIH hafi verið gott veð. Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri hafi hins vegar verið plat­aður í mál­inu með þeim afleið­ingum að Ísland varð af 60 millj­arða króna ágóða vegna FIH, og sat þess í stað uppi með ofan­greint tap. Í grein Hannesar segir: „Að til­hlutan Davíðs Odds­sonar seðla­banka­stjóra tók Seðla­bank­inn alls­herj­ar­veð í danska bank­anum, svo að veðið átti að geta gengið upp í frek­ari kröfur seðla­bank­ans á Kaupþing, þyrfti þess með. Þegar Kaupþing komst í þrot, fékk Seðla­bank­inn for­ræði á bank­anum ásamt skila­nefnd Kaup­þings.

Dönsk stjórn­völd veittu í upp­hafi FIH banka sömu lausa­fjár­fyr­ir­greiðslu og öðrum dönskum bönkum. En haustið 2010 knúðu þau á um sölu bank­ans, en þá var að renna út lána­lína til hans. Hótuðu þau því, að lána­línan yrði ekki end­ur­nýjuð, yrði bank­inn ekki seldur. Tvö til­boð bár­ust í bank­ann, og var öðru þeirra tekið. Það var frá hópi danskra og sænskra líf­eyr­is­sjóða og fjár­fest­inum Christian Dyvig. Hljóðaði það upp á fimm millj­arða danskra króna, sem var tals­vert lægra en bók­fært eigið fé, en þó ekki smán­ar­verð. Greiða skyldi út 1,9 millj­arða danskra króna í upp­hafi, en frá afgang­inum skyldi draga tap frá miðju ári 2010 og til árs­loka 2012. Strax og hinir nýju eig­endur öðl­uð­ust yfir­ráð yfir bank­anum, hófust þeir handa við að færa allt hugs­an­legt tap á þetta tíma­bil (í stað þess að venju­lega dreif­ist slíkt tap á mörg ár, en með því má lág­marka það).

Stjórn­endur bank­ans og hinn kunni fjár­mála­maður Fritz Schur, einka­vinur dönsku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar, fengu að kaupa hluta­bréf í bank­anum á sér­kjörum. Eigendur FIH banka gengu svo hart fram í fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu hans, að afgang­ur­inn af verð­inu til íslenska seðla­bank­ans hvarf í tapi, 3,1 millj­arður danskra króna. Jafn­framt seldu þeir fast­eigna­lána­söfn bank­ans til danskrar rík­is­stofn­unar og önnur útlána­söfn til einka­að­ila og til­kynntu 2014, að bank­inn yrði lagður niður. Lítt hafði gengið á eigið fé við þessar aðgerðir, og var það í árs­lok 2014 5,7 millj­arðar danskra króna. Talið er, að kaup­endur bank­ans muni fá fjár­fest­ingu sína fjór­falda til baka. Christian Dyvig, sem keypti hluta­bréf fyrir 190 millj­ónir danskra króna, geti búist við að fá 570 millj­ónir, þegar bank­inn verði loks gerður upp. Fritz Schur, sem keypti hluta­bréf fyrir tíu millj­ónir danskra króna, geti búist við að fá um þrjá­tíu millj­ónir, og hafi hann þá hagn­ast um 20 millj­ónir {mdash} 400 millj­ónir íslenskra króna.“

[caption id="attachment_25769" align="alignnone" width="623"] Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son segir að leikið hafi verið á Má Guð­munds­son við söl­una á FIH.[/caption]

Davíð hrakinn burt og Már lætur leika á sig


Líkt og áður sagði telur Hannes að Már Guð­munds­son hafi látið plata sig þegar samið var um sölu á FIH og hann gagn­rýnir einnig vinstri stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna fyrir að láta undan hót­unum danskra stjórn­valda haustið 2010.

[quote font="0" align="right"]Á önd­verðu ári 2009 var Davíð Oddsson hrak­inn úr stöðu seðla­banka­stjóra, en Már Guð­munds­son skip­aður eftir skamma hríð í hans stað. Már hafði fyrir hönd Seðla­bank­ans umsjón með sölu FIH banka haustið 2010 og sagði þá opin­ber­lega, að hún væri "hag­stæð". Svo virð­ist sem Már hafi ekki séð fyrir, hvað hinir nýju eig­endur hlytu að gera, strax og þeir eign­uð­ust bank­ann. Þeir léku á hann.[/quote]

Í grein sinni í Morg­un­blað­inu segir Hannes: „Á önd­verðu ári 2009 var Davíð Oddsson hrak­inn úr stöðu seðla­banka­stjóra, en Már Guð­munds­son skip­aður eftir skamma hríð í hans stað. Már hafði fyrir hönd Seðla­bank­ans umsjón með sölu FIH banka haustið 2010 og sagði þá opin­ber­lega, að hún væri "hag­stæð". Svo virð­ist sem Már hafi ekki séð fyrir, hvað hinir nýju eig­endur hlytu að gera, strax og þeir eign­uð­ust bank­ann. Þeir léku á hann.

Margar spurn­ingar vakna því. Hvers vegna lét vinstri stjórnin undan hót­unum danskra stjórn­valda haustið 2010? Hefði for­sæt­is­ráð­herra ekki átt að gera sér ferð til Kaup­manna­hafnar, ræða málið við starfs­bróður sinn og fá frest til að selja bank­ann við betri aðstæður? Hefði vinstri stjórnin ekki átt að nota eitt­hvað af því lánsfé frá Alþjóða­bank­anum, sem lá óhreyft á reikn­ingi í New York á háum vöxtum, til að kaupa bank­ann eða að minnsta kosti hluta hans? Hefði Már seðla­banka­stjóri ekki átt að setja það skil­yrði við söl­una, að full­trúar Seðla­bank­ans sætu áfram í stjórn bank­ans til að fylgj­ast með því, hvernig tapið, sem draga átti frá kaup­verð­inu, mynd­að­ist?

Til dæmis veittu dönsk stjórn­völd bank­anum eftir kaupin fyr­ir­greiðslu, sem fram­kvæmda­nefnd Evr­ópu­sam­bands­ins mat jafn­virði mörg hund­ruð milljón danskra króna. Hefði ekki átt að draga það fé frá tap­inu, svo að það hefði runnið óskipt til Seðla­bank­ans? Hefði Seðla­bank­inn ekki fengið meira fé út úr bank­anum, hefði hann verið settur í skipta­með­ferð, eins og hinir nýju eig­endur gerðu í raun? Hvers vegna áttu fjár­mála­menn­irnir Christian Dyvig og Fritz Schur að græða offjár á þessum kaupum, en Seðla­bank­inn að tapa á þeim tug­millj­örðum íslenskra króna? Full ástæða er til að rann­saka þessi við­skipti, eins og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son alþing­is­maður hefur lagt til. Líklega nemur óþarft tap Seðla­bank­ans í þessu dæmi um sex­tíu millj­örðum íslenskra króna. Fer sú upp­hæð hátt upp í kostnað af smíði fyr­ir­hug­aðs hátækni­sjúkra­húss.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár