Már Guðmundsson segir margskonar misskilnings gæta hjá Hannesi Hólmsteini

Ef Seðla­bank­inn hefði knúið FIH bank­ann í slita­með­ferð haustið 2010 hefði allt neyð­ar­lánið sem bank­inn veitti Kaup­þingi 6. októ­ber 2008 tap­ast. Með því að selja bank­ann tak­ist Seðla­bank­anum að inn­heimta lið­lega helm­ing láns­ins, sem var upp á 500 millj­ónir evra. Þetta segir Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri við Morg­un­blaðið í dag.

Hann er þar að svara gagn­rýni sem kom fram í grein Hannesar Hólm­steins Giss­ur­ar­sonar, sem birt­ist í sama blaði á þriðju­dag. Í grein Hannesar var því haldið fram að mis­tök Seðla­bank­ans, undir stjórn Más, við sölu á danska bank­anum FIH hafi gert það að verkum að ríkið hafi tapað allt að 60 millj­örðum króna að óþörfu.

Hannesi var í fyrra falið að stýra rann­sókn­ar­verk­efni á vegum fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins á erlendum áhrifa­þáttum hruns­ins. Áætlaður kostn­aður verk­efn­is­ins var tíu millj­ónir króna og áætluð verk­lok eru í byrjun sept­em­ber næst­kom­andi. Ráðning Hannesar til verks­ins var afar umdeild sökum mik­illa tengsla hans við áhrifa­menn innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sér­stak­lega fyrrum seðla­banka­stjór­ann Davíð Oddsson, sem nú stýrir Morg­un­blað­inu.

Í grein sinni á þriðju­dag opin­ber­aði Hannes í fyrsta sinn hluta af nið­ur­stöðu sinni. Þar fjallar hann í löngu máli um söl­una á FIH-bank­anum, sem tekin var sem veð fyrir neyð­ar­láni Seðla­banka Íslands til Kaup­þings 6. októ­ber, þegar Davíð Oddsson stýrði enn Seðla­bank­anum.

Búist er við því að tap íslenskra skatt­greið­enda vegna neyð­ar­láns­ins til Kaup­þings verði um 35 millj­arðar króna. 

Már segir Hannes misskilja margt


Már segir við Morg­un­blaðið að margs­konar mis­kiln­ings gæti í grein Hannesar Hólm­steins. Hann horfi til að mynda á bók­fært virði FIH bank­ans þegar hann var seldur og taka það til við­mið­unar um hvers virði bank­inn væri í sölu eða sem fram­tíð­ar­eign. „Ég bara spyr: Hvert var bók­fært virði Kaup­þings í lok árs­ins 2007? Stað­reyndin er sú að bankar eru þeirrar gerðar að eigið fé þeirra getur gufað upp, þess vegna bara á nokkrum dögum, ef þeir lenda í miklum lausa­fjár­þreng­ingum og þurfa að selja eignir á bruna­út­sölu.“

Þegar salan hafi átt sér stað haustið 2010 hafi bankar í Evrópu verið með mark­aðs­verð á móti bók­færðu verði (e. Price to Book) í kringum hálfan. Það þýðir að mark­aðsvirði bank­ans hafi verið um helm­ingur af bók­færðu virði eigna hans á þeim tíma, og mögu­lega minna.

[caption id="attachment_5544" align="alignnone" width="730"] FIH bank­inn hefur leikið stórt hlut­verk í íslenskri umræðu eftir hrun. Sumir, þar á meðal Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, vilja meina að hann hafi verið frá­bært veð. Aðrir, þar á meðal Már Guð­munds­son, hafa bent á að það sé aldrei gott að taka veð í hlutafé banka. Það tap­ist fyrst ef bank­inn fari á höf­uðið.[/caption]

Allir seðlabankar segja sína banka í lagi


Már gefur lítið fyrir að dönsk stjórn­völd hafi full­yrt á sínum tíma að gott veð væri í FIH-bank­anum. Sú full­yrð­ing hafi feng­ist með því að spyrja vara­seðla­banka­stjóra danska seðla­bank­ans hvort FIH væri ekki í lagi. „Ef þú hringir í seðla­banka, hvar sem er í heim­inum, og spyrð hvort þessi eða hinn bank­inn sem er starf­andi án opin­berra athuga­semda eft­ir­lits­að­ila sé ekki í lagi, þá færðu bara eitt svar: Jú, þessi banki er í lagi,“ segir Már.

Hann bendir líka á að ef seðla­bankar séu að veita þraut­ar­vara­lán, sem neyð­ar­lánið til Kaup­þings sann­ar­lega var, þá sé það versta sem þeir geri að taka veð í hlutafé bank­ans, líkt og Seðla­banki Íslands ákvað að gera. „Það á að taka veð í efna­hags­reikn­ingi bank­ans og helst að gera það sem Norðmenn gerðu þegar þeir veittu sínum bönkum þrauta­vara­lán eða lausa­fjár­fyr­ir­greiðslu í doll­urum um svipað leyti og verið var að veita Kaup­þingi lánið og tóku veð í öllum efna­hags­reikn­ingi bank­anna, sem aldrei reyndi á, vegna þess að norsku bank­arnir voru bara í tíma­bund­inni lausa­fjár­krísu líkt og bankar úti um allan heim og komust að lokum í gegnum hana.“ Már segir við Morg­un­blaðið að það fyrsta sem þurrk­ist út ef banki fer í þrot sé hlutafé hans. Það yrði þá núll virði.

Auk þess hafi dönsk stjórn­völd beitt sér mjög í mál­inu og þann lær­dóm megi draga af því að það borgi sig ekki að taka veð í banka í öðru landi þar sem Seðla­bank­inn er ekki með stjórn á aðstæðum.

Dönsk yfirvöld vildu ekki lána FIH aftur


Kjarninn hefur greint frá því að þann 30. júní 2009 þurfti danska ríkið að veita FIH víkj­andi lán upp á 1,9 millj­arða danskra króna. Til við­bótar ábyrgð­ist danska ríkið mán­uði síðar skulda­bréfa­út­gáfu FIH upp á 50 millj­arða danskra króna, um eitt þús­und millj­arða íslenskra króna. Aðstoðin var veitt undir for­merkjum svo­kall­aðs „Bankapakka II“ sem danska ríkið hafði sett saman til að bjarga sínu banka­kerfi. Pakkinn sner­ist um að ábyrgj­ast inn­lán og skulda­bréfa­út­gáfu danskra fjár­mála­fyr­ir­ækja sem eftir því ósk­uðu. Þessi lausa­fjár­fyr­ir­greiðsla, sem gerði FIH starf­hæfan, var tíma­bundin.

Danska banka­sýslan (Fin­ansiel Stabilittet) og danska fjár­mála­eft­ir­litið (Fin­an­stil­sy­net) fylgd­ust náið með því hvernig FIH bragg­að­ist og þrýstu mikið á að leyst yrði úr eig­enda­málum bank­ans til að hann gæti fjár­magnað sig á mark­aði. Það væri enda and­stætt dönskum lögum að þrotabú fall­ins banka, Kaupþing, væri skráður eig­andi starf­andi banka.

Þegar leið á haustið 2010 kom að því að end­ur­nýja þurfti þennan lausa­fjár­stuðn­ing. Dönsk yfir­völd voru ekki til­búin til að gera það. Seðla­banki Íslands taldi, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, þá raun­veru­lega hættu á því að FIH yrði tek­inn yfir af dönskum stjórn­völdum ef ekki tæk­ist að selja bank­ann mjög hratt. Um miðjan sept­em­ber 2010 var þeim skila­boðum komið á fram­færi við Seðla­bank­ann að allt hlutafé í FIH yrði mögu­lega skrifað niður og hann tek­inn yfir af danska fjár­mála­eft­ir­lit­inu ef bank­inn yrði ekki seldur fyrir þriðju­dag­inn 21. sept­em­ber 2010. Ef það hefði verið gert hefði veð Seðla­bank­ans í FIH orðið verð­laust og krafa hans yrði almenn krafa í þrotabú Kaup­þings.

[caption id="attachment_14657" align="alignnone" width="1280"] Davíð Oddsson var for­maður banka­stjórnar Seðla­banka Íslands þegar neyð­ar­lánið var veitt og veð tekið í hlutafé FIH bank­ans.[/caption]

Samið í mjög þröngri stöðu


Már stað­festir þessa frá­sögn í sam­tali við Morg­un­blaðið og segir að FIH hafi verið við það að kom­ast í þrot vegna lausa­fjár­erf­ið­leika. Án lausa­fjár­stuðn­ings­ins frá dönskum yfir­völdum hefði hann gert það og hluta­féð þar með orðið verð­laust. Dönsku yfir­völd hafi neitað að end­ur­nýja lausa­fjár­stuðn­ing við FIH og kraf­ist traust­ara eign­ar­halds á bank­anum. „Þá komumst við auð­vitað í mjög þrönga stöðu því ef við hefðum ekki náð samn­ingum um sölu á bank­anum fyrir 1. októ­ber 2010 hefði gerst það sama með FIH bank­ann og gerð­ist hjá okkur, að hluta­féð væri fært niður í núll og við hefðum ekki fengið neitt. Þannig að við sömdum um þessa sölu í mjög þröngri stöðu.“

Már segir að það hafi bara verið þessir tveir kostir í boði: Selja bank­ann eins og gert var eða láta hann fara í þrot. Salan hafi þó alla vega gert það að verkum að um rúm­lega helm­ingur láns­ins hafi verið end­ur­heimtur en við þrot hefði ekk­ert feng­ist.

[caption id="attachment_26437" align="alignnone" width="1000"] Hannesi Hólm­steini Giss­ur­ar­syni var í fyrra falið að stýra rann­sókn­ar­verk­efni á vegum fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins á erlendum áhrifa­þáttum hruns­ins. Áætlaður kostn­aður verk­efn­is­ins var tíu millj­ónir króna og áætluð verk­lok eru í byrjun sept­em­ber næst­kom­andi. Ráðning Hannesar Hólm­steins til verks­ins var mjög umdeild, sér­stak­lega vegna tengsla hans við Davíð Oddsson.[/caption]

 

Settar inn tryggingar til að búa til þumalskrúfu


Í grein Hannesar Hólm­steins var bent á að eigið fé FIH um síð­ustu ára­mót hefði verið mjög hátt, um 5,7 millj­arðar danskra króna. Hann segir þá sem keyptu bank­ann, hóp sem leiddur var af danska fjár­fest­inum Christian Dyvig, hafi platað Má Guð­munds­son þegar þeir keyptu FIH og muni nú fá fjár­fest­ingu sína allt að fjór­falt til baka. Þetta hafi þeir meðal ann­ars gert með því að afskrifa eignir sem voru á efna­hags­reikn­ingi FIH og sam­hliða hafi sú upp­hæð sem Seðla­bank­inn átti að fá í sinn hlut rýrnað veru­lega.

Már segir að Seðla­bank­anum hafi alltaf verið ljóst að nýir eig­endur myndu reyna að skrifa niður efna­hags­reikn­ing­inn. Því hafi verið settar inn trygg­ingar í þá veru að ef þeir ætl­uðu að skrifa niður efna­hags­reikn­ing­inn þá væru settir inn skoð­un­ar­menn. Ef upp kæmi ágrein­ingur um nið­ur­skrift væri hægt að vísa mál­inu í gerð­ar­dóm. „Það reyndi á það síðar því það ákvæði varð að þeirri þum­al­skrúfu að við gátum sett bank­ann í þrot. Síðan gerð­ist það, út af efna­hags­á­stand­inu í Danmörku, að þessar eignir FIH rýrn­uðu veru­lega. Jafnvel þótt þeir hefðu ekk­ert reynt að svindla á okkur hefðu þær samt sem áður rýrnað veru­lega.[...]Við fáum eitt­hvað meira, en það er lítið, vegna þess að það hefur tap­ast svo mikið af þessum eignum sem voru á efna­hags­reikn­ingnum. Við erum búin að end­ur­semja þannig að við erum nán­ast með hluta­fjár­stöðu og þeir geta ekki svindlað á okkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár