Félagsvísindastofnun komin með drög að skýrslu Hannesar

Rúmlega 300 blað­síðna löng skýrsla Hannesar Hólm­steins Giss­ur­ar­sonar um erlenda áhrifa­þætti banka­hruns­ins hefur verið afhent Félags­vís­inda­stofnun. Skýrslan er á ensku. Enn liggur ekki fyrir hvenær sam­bæri­leg skýrsla Seðla­bank­ans verður birt.

Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands fékk drög að skýrslu Hannesar Hólm­steins Giss­ur­ar­sonar um erlenda áhrifa­þætti banka­hruns­ins afhent síð­ast­lið­inn föstu­dag. Hannesi var falið að stýra rann­sókn­ar­verk­efni um efni skýrsl­unnar í júlí 2014. Áætl­­aður kostn­aður verk­efn­is­ins var tíu millj­­ónir króna og áætluð verk­­lok voru í byrjun sept­­em­ber 2015.

Þau verk­lok frest­uð­ust ítrekað. Til stóð að kynna skýrsl­una 8. októ­ber 2017, rúmum tveimur árum eftir áætluð verk­lok, en af því varð ekki. Þá stóð til að kynna skýrsl­una 20. nóv­em­ber 2017 en því var einnig frestað. Í pistli sem Hannes skrif­aði á vef­inn Pressuna sagð­ist hann ætla að fresta skilum til að „gefa þeim, sem minnst er á í henni, kost á að skýra mál sitt, leið­rétta og gera athuga­semd­ir.“ Kynn­ingin átti þá að fara fram 16. jan­ú­ar 2018.

Af því varð heldur ekki.

Ekki hægt að svara hvenær skýrslan verður birt

Þótt Hannes stýri verk­inu þá er samn­ing­ur­inn sem gerður var um gerð þess milli fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins og Félags­vís­inda­stofn­unar. Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um afdrif skýrslu um verk­efnið segir Guðbjörg Andrea Jóns­dóttir, for­stöðu­maður stofn­un­ar­innar, að hún hafi fengið drög að skýrslu til yfir­lestrar síð­ast­lið­inn föstu­dag. Það væri hins vegar ekki hægt að svara því á þessu stigi hvenær skýrslan verði gerð opin­ber.

Komið hefur fram að skýrslan sé 315 blað­síður að lengd og að hún sé á ensku.

Hannes hefur þó að hluta til fjallað um inni­hald hennar á opin­berum vett­vangi á und­an­förnum árum. Hann skrif­aði grein í Morg­un­blaðið 21. apríl 2015 þar sem hann opin­ber­aði í fyrsta sinn hluta af því sem hann er að skrifa um í skýrslu sinni. Í grein­inn fjall­aði hann í löngu máli um söl­una á FIH-­­bank­an­um, sem tekin var sem veð fyrir neyð­­ar­láni Seðla­­banka Íslands til Kaup­­þings 6. októ­ber, þegar Davíð Odds­­son stýrði enn Seðla­­bank­an­­um.

Þá skrif­aði hann grein í Morg­un­blaðið í til­efni af sjö­tugs­af­mæli Davíðs Odds­sonar, rit­stjóra blaðs­ins, þann 17. jan­úar 2018. Greinin birt­ist einnig á vefnum Press­unni. Í henni fjallar Hannes einnig um mál sem tengj­ast erlendum áhrifa­þáttum banka­hruns­ins.

Seðlabankinn er líka að gera skýrslu

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri greindi frá því í febr­úar 2015 að hann ætl­aði að láta taka saman skýrslu um til­drög þess að Kaup­þing fékk neyð­ar­lán upp á 500 millj­ónir evra frá bank­anum 6. októ­ber 2008, sama dag og neyð­ar­lög voru sett og Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, bað guð að blessa Ísland í sjón­varps­ávarpi.

Sumarið 2017 greindi Kjarninn frá því að Seðla­bank­inn hefði ákveðið að bæta sölu­ferli FIH bank­ans – en sá danski banki var tek­inn sem veð fyrir lán­inu – við skýrsl­una. „Sá hluti er mjög umfangs­mik­ill og snertir m.a. þróun efna­hags- og banka­mála í Dan­mörku. Vegna mik­illa anna starfs­manna við önnur verk hefur verið erf­ið­leikum bundið að tryggja næga krafta í þetta verk – en það er sem sagt langt á veg kom­ið,“ sagði í svari bank­ans við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Til stóð að birta umrædda skýrslu í fyrra­haust, á svip­uðum tíma og skýrsla Hannesar um sam­bæri­legt efni átti að vera kynnt. Þeirri birt­ingu var þó frestað fram í jan­úar. Þegar Kjarninn spurð­ist fyrir um afdrif skýrsl­unnar um miðjan jan­úar sagði í svari bank­ans að ekk­ert væri nánar hægt að segja um tíma­setn­ingu á birt­ingu hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár