Flugstjóri stefnir Primera Air

Norskur flug­stjóri sem starf­aði hjá Primera Air flug­fé­lag­inu um tveggja ára skeið hyggst stefna félag­inu fyrir dóm í Danmörku. Flug­stjór­inn segir félagið hafa hlunn­farið sig og krefst hálfrar millj­ónar danskra króna.

Í maí­mán­uði árið 2015 réð norski flug­stjór­inn Michael Ingvard­sen sig til Primera Air. Í ráðn­ing­ar­samn­ingi hans stóð að hann myndi fljúga til og frá Danmörku. Ingvard­sen bjóst við að launa­kjör hans fylgdu kjara­samn­ingi sem félagið hafði geng­ist undir við dönsk sam­tök starfs­fólks í flug­rekstri (FPU). Þegar kom að und­ir­ritun samn­ings sá Ingvard­sen að hann var frá ráðn­ing­ar­skrif­stofu, Flight Crew Solutions, á bresku eyj­unni Guernsey á Ermar­sundi, en eyjan er þekkt sem skatta­skjól. Í samn­ingum stóð að Ingvard­sen væri ekki venju­legur launa­maður, sam­kvæmt samn­ingum skyldi hann vera eins­konar verk­taki sem sjálfur skyldi sjá um líf­eyris- og orlofs­greiðslur og fengi ein­ungis greidda tíu veik­inda­daga á ári. Ingvard­sen flug­stjóri ímynd­aði sér að þetta væri eins­konar byrj­un­ar­reitur og svona væri þetta í danskri vinnu­lög­gjöf. Fljót­lega rann upp fyrir Ingvard­sen að ýmis­legt væri öðru­vísi en hann hafði búist við. Skömmu eftir að hann hóf störf komst hann að raun um hann væri ekki að vinna sam­kvæmt dönskum samn­ingum. Vinnu­fé­lag­arnir sögðu honum að þetta væri venjan hjá þessu félagi og eftir eins árs starf yrði gerður samn­ingur um fast­ráðn­ingu. „Þetta hljóm­aði ágæt­lega, þá gæti ég samið um launin og líf­eyr­is­greiðslur, veik­inda­leyfi, ef til kæmi, yrði greitt og í fast­ráðn­ing­ar­samn­ingi yrði líka kveðið á um sum­ar­leyfi.“

Nei við dönskum kjarasamningi

Þegar Michael Ingvard­sen hafði starfað hjá Primera Air í um það bil ár fannst honum tími til kom­inn að ganga nánar frá sínum málum og óskaði eftir starfs­samn­ingi sem væri í sam­ræmi við danska vinnu­lög­gjöf. En það reynd­ist ekki auð­velt. Hjá flug­fé­lag­inu fékk hann alls kyns útskýr­ingar og afsak­anir, sem allar gengu út á að hann gæti ekki fengið danskan ráðn­ing­ar­samn­ing, hann ætti að vinna sam­kvæmt upp­haf­lega sam­ingnum, frá Guernsey. „Seinna árið sem ég vann hjá félag­inu hafði ég reyndar engan samn­ing, mætti bara i vinn­una og von­að­ist til að fá útborgað.“ Í maí á síð­asta ári hætti Ingvard­sen að vinna fyrir Primera Air, hafði þá starfað hjá félag­inu í slétt tvö ár.

Tilgangurinn er augljós; minni kostnaður

Í við­tali við danska útvarpið, DR, sagði Michael Ingvard­sen að til­gang­ur­inn með því að ráða fólk sem verk­taka væri aug­ljós. Semsé minni kostn­aður. Hann sagð­ist sjá eftir að hafa í upp­hafi sam­þykkt að vinna sem verk­taki því að það hefði fljót­lega runnið upp fyrir sér að verk­taka­launin væru mun lak­ari og þannig héldi Primera Air niðri kostn­aði. Hann sagð­ist því miður ekki vera eini mað­ur­inn sem hefur mátt búa við þetta fyr­ir­komu­lag. Margir kollegar hans hefðu miklar áhyggjur af „lausa­mennsk­unni“ eins og hann orð­aði það. Flestir eru með fjöl­skyldu og því fylgja alls konar skyldur.

Michael Ingvard­sen er ekki nýgræð­ingur í flug­inu. Hann hefur mikla reynslu og hefur unnið hjá þekktum flug­fé­lögum, meðal ann­ars Norwegian. Í áður­nefndu við­tali sagði hann að starfs­um­hverfið hefði á und­an­förnum árum breyst mjög, til hins verra. Sam­keppnin fer sífellt harðn­andi og flug­fé­lögin reyna að spara eins og þau geta og þá bitnar það á starfs­fólk­inu. Ingvard­sen sagð­ist áður hafa unnið sem verk­taki en þá setið við sama borð og þeir sem höfðu fastan samn­ing.

Vill fá niðurstöðu dómstóls

Í sam­vinnu við FPU hefur Michael Ingvard­sen nú krafið Primera Air um hálfa milljón danskra króna (8.6 millj­ónir íslenskar) vegna van­gold­inna launa á því tveggja ára tíma­bili sem hann vann hjá félag­inu. Hann hefur jafn­framt ákveðið að stefna Primera Air fyrir Félags­dóm í Danmörku (Arbejds­retten). Hann seg­ist von­ast til þess að með úrskurði Félags­dóms tak­ist að stöðva und­ir­boð á vinnu­mark­aðnum. FPU telur að flestir flug­menn sem starfa fyrir Primera Air séu á verk­taka­samn­ingi gegnum Flight Crew Solutions á Guernsey.

Primera Air vísar öllu á bug

Primera Air hefur í skrif­legu svari, með milli­göngu Dönsku Atvinnu­rek­enda­sam­tak­anna, vísað öllum kröfum Michael Ingvard­sen á bug. Í bréf­inu segir að flug­stjór­inn hafi með samn­ingi sínum við ráðn­ing­ar­skrif­stof­una á Guernsey sam­þykkt að hann væri ekki starfs­maður flug­fé­lags­ins. Primera Air segir enn­fremur í svar­bréfi sínu að vinna Michael Ingvard­sen á þessu tveggja ára tíma­bili sem um er deilt, einkum flogið fyrir Primera Air Nordic, syst­ur­fé­lag Primera Air. Primera Air Nordic er skráð í Lett­landi og heyrir þess vegna, að mati Primera Air, ekki undir danska vinnu­lög­gjöf og kjara­samn­inga.

Christian Højer Schøler, aðjúnkt í vinnu­rétti við háskól­ann Syddansk Uni­versitet telur, eftir að hafa skoðað gögn máls­ins, miklar líkur á að FPU og Michael Ingvard­sen vinni málið fyrir dóm­stólum. Aðjúnkt­inn nefnir tvennt í því sam­bandi. Í fyrsta lagi að Michael Ingvard­sen hafi ein­göngu unnið fyrir Primera Air á umræddu tveggja ára tíma­bili og að í samn­ingum stóð að hann skyldi sjálfur sitja í flug­stjórn­ar­klef­anum. Sjálf­stæður verk­taki getur falið öðrum verk­efni (til dæmis að fljúga) en það gat Michael Ingvard­sen ekki.

Samtök starfs­fólks í flug­rekstri (FPU) búast við að málið gegn Primera Air verði tekið fyrir í Félags­dómi í lok þessa ár, eða snemma á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár