Hvað mun Apple kynna í dag?

Atli Stefán Yngvason, einn ráð­enda Tækni­varps­ins, fer yfir þær nýju vörur sem búast má við að Apple kynni til leiks á kynn­ingu sinni síðar í dag, og þær sem ólík­legra er að líti dags­ins ljós.

Apple verður með kynn­ingu á í dag 12. sept­em­ber klukkan 17:00 íslenskum tíma og er það árlegur við­burður til að kynna iPhone. Ýmsar aðrar vörur hafa reyndar einnig verið kynntar sam­hliða nýjum iPhone. Boðskortið sem er sent út gefur alltaf ein­hverjar vís­bend­ingar, og fyrst hélt ég að hring­laga Apple Watch úr væri á leið­inni en svo er víst ekki. Hring­ur­inn á boðskort­inu vísar til Steve Jobs Theater bygg­ingar Apple sem er í miðjum Apple Park. Þessi kopar eða gullni litur gæti reyndar vísað til þess að nýr litur sé á leið­inni fyrir iPhone X og Watch series 4.Boðskortið sem fór út fyrir kynn­ingu Apple 12.9.2018.

Hvað hefur verið kynnt áður á haustin?

Áður en við förum að giska á hvað verður kynnt, þá skulum við skoða hvað hefur verið kynnt áður á sama við­burði síð­ustu árin. Síðasta boðskort vís­aði einnig til Steve Job Theater, sem var nýtt þá, og stóð á kort­inu „Let’s meet at our place”. Það var frekar stór kynn­ing, og kynnti Apple þar „fram­tíð snjall­sím­ans” eða iPhone X sím­ann með FaceID and­litsaflæs­ara í stað TouchID fingrafara­les­ara. Þetta gerði Apple kleift að stækka skjá á kostnað fram­hliðar og er skjár­inn þá 82,9% af fram­hlið sím­ans. Það sló reyndar engin met út og eru til símar með hærra hlut­fall en það (þá Samsung Galaxy S8 með 83,6%).

Í nær öllu mark­aðs­efni sím­ans var að finna hakið (e. notch) sem geymir FaceID og viti menn þá eltu flestir á mark­aði þá hönnun (eða var Apple að elta Essential?). Ásamt iPhone X voru tveir aðrir símar kynntir: iPhone 8 og 8 plus, sem eru eig­in­lega bara iPhone 7s og 7s plus símar. Þeir fengu þó alveg góða upp­færslu og var ég mjög ánægður með iPhone 8 plus (og það er sím­inn sem ég mæli með þessa dag­ana). Svo fengum við Watch series 3, TV 4K og Airpower (sem er enn ekki komið út).

Árið 2016 fengum við iPhone 7 og 7 plus, ásamt þeim vin­sælu Airpods. Í októ­ber sama ár var svo annar við­burður til að kynna Macbook Pro tölv­urnar (með Touch bar, sem ég er ekk­ert svak­lega hrif­inn af). Árið 2015 var þétt og þar fengum við iPhone 6s og 6s plus, iPad mini 4, iPad pro 12.9, Pencil og Smart key­bo­ard. En þá kom engin októ­ber kynn­ing. Árið 2014 þá stækk­aði Apple loks­ins iPhone og gaf út iPhone 6 og 6 plus sem margir höfðu beðið eftir. Einnig var kynnt Apple Watch og Apple Pay þjón­ustan. Í októ­ber sama ár var svo annar við­burður til að kynna iPad Air 2, iPad mini 3 og iMac 5K ret­ina.

Þannig með því að rekja okkur stutt aftur í tím­ann, sjáum við að Apple kynnt aðar vörur en iPhone á sept­em­ber við­burði og stundum bætt við öðrum við­burði í októ­ber til að kynna annað. Það er lík­lega gert til að taka ekki of mikla athygli af iPhone, sem er ábyrgur fyrir 60–70% tekjum Apple.

Hvað er verður líklega kynnt?

Byrjum á því að skoða hvað verður lík­lega kynnt, miðað við leka og orðróma.

Þrír iPhone símar

Það er nær öruggt að nýr iPhone X sími verði kynntur, eða „s” útgáfa hans með hrað­ari örgjörva, von­andi betra FaceID (TouchID seinni kyn­slóð kom reyndar ekki út fyrr en tveimur árum eftir fyrri) og nýjum lit (sem er búið leka mynd af). Svo kemur stærri iPhone X með 6,5” skjá sem er ekki víst að muni heita „plus”. Talið er að sím­arnir muni heita iPhone Xs (lík­legt) og iPhone Xs max (ólík­legt). 9TO5Mac.com náði víst að hnupla myndum frá Apple með ein­hverjum hætti (sem síðan vill ekki gefa upp) ásamt nafn­inu „Xs”. Á mynd­inni er nýtt vegg­fóður sem á víst að vera yfir­borð sápu­kúlu í nær­mynd. Símarnir koma í þriðja litnum sem virð­ist vera gull. Það verður áhuga­vert að sjá hvernig bak­hliðin kemur út í gulli. Orðrómur er um að iPhone Xs verði 100USD ódýr­ari en iPhone X (899USD) og að stærri sím­inn byrji í 999USD að minnsta kosti. Þá er mögu­leiki að stærri sím­inn muni kosta nálægt 170 þús­und hér á landi til að byrja.iPhone Xs og Xs max?

iPhone Xc

Svo er einnig orðrómur um þriðja iPhone X sím­ann: iPhone Xc. Það á að vera ódýr­ari iPhone X sími með LCD skjá, sem er aðeins lak­ari OLED skjár­inn á iPhone X. Hann á að vera með 6,1" skjá, FaceID, styður snerti­hleðslu (gler­bak) og með álramma (ekki stál­ramma). Hann á að vera verð­lagður fyrir neðan iPhone X, en verður þó með stærri skjá (5,8"). Margir segja að þetta sé sími fyrir Asíu­markað. Apple hefur áður reynt að vera með ódýr­ari iPhone fyrir Asíu­markað með iPhone SE sím­anum. Það gekk víst ekk­ert svo vel, því sá sími var ein­fald­lega of lít­ill (byggður á iPhone 5 með 4" skjá). Til að þessum síma gangi betur, verður lík­lega pláss fyrir tvö sím­kort sem er vin­sælt í Kína. iPhone Xc fer lík­lega EKKI í sölu á sama tíma, til að gefa iPhone Xs símunum smá for­skot á vest­rænum mörk­uðum.

iPhone Xs, iPhone Xc og iPhone Xs max?

Apple Watch Series 4

Það er einnig mjög lík­legt að Apple Watch Series 4 verði kynnt og er búið að leka einni mynd af því. Úrið verður víst aðeins þynnra (lægra), skjár­inn stækkar út í kanta, nýjan hljóð­nema og allir takkar verða snerti-hristi-takkar (solid state með force touch). Það er aðeins búið að tóna niður rauða blett­inn frá Series 3 LTE úrinu og nú situr eftir aðeins skárri rauð lína. Það er ekki víst hvort úrið á mynd­inni sé úr áli eða stáli, flestir giska að þetta sé mjög bónað ál. Þarna er líka hægt að sjá nýtt watch face, sem býður upp á níu „complications” sem er svaka­legt. Margir eru hrifnir af þess­ari nálgun að setja eins mikið af upp­lýs­ingum á skjá­inn frekar en að hafa hann lát­lausan. Ef þú ert á annað borð að setja tölvu á úln­liðin, þá er eins gott að nýta hana fyrir upp­lýs­ingar.

Apple Watch Series 4

Hvað verður líklega ekki kynnt?

Það er ótrú­lega mikið af orðrómum í gangi, en ekk­ert af svona sterkum lekum eins og þessum tveimur með iPhone Xs og Watch Series 4.

Airpods 2

Heyrst hefur af Airpods 2 heyrnatólum eða Airpods Plus heyrnatólum. Airpods 2 eiga að vera vatns­held og kannski með betri hleðslu. Airpods plus eiga að vera með noise cancellation, betri Hey Siri fídus og með mun betri heðslu. Airpods Plus eru lík­lega ekki kynnt í dag, en Airpods 2 eru ekk­ert út úr mynd­inni. Það hefur gengið illa að fram­leiða þau, þannig það kæmi mér ekki á óvart að þau fengu smá upp­færslu og með því myndi fylgja smá vatns­heldni. Svo á auð­vitað setja snerti­hleðslu í Airpods vögg­una og það gæti verið eina sem við fáum í ár í heyrnatólum.

Macbook Air

Það er þrá­látur orðrómur um nýja Macbook Air, eða ein­hvers konar arf­taka hennar. Sú tölva lifir enn góðu lífi þrátt fyrir lélegan skjá (ekki með ret­ina upp­lausn), mjög gamla hönnun, eldra lykla­borð Apple (sem er reyndar mjög gott) og Thund­er­bolt 2 (ekki Thund­er­bolt 3). En það er vegna þess að hún kostar 999USD og er „skóla­tölva” Apple. Macbook 12" far­tölvan hefur ekki enn tekið við af Macbook Air, og er enn þá of dýr (1.299USD). Svo finnst mörgum skjár­inn of lít­ill. Mjög lík­lega verður þessi nýja tölva verði geymd fyrir seinni við­burð í októ­ber. Líklegt er að Apple breyti Macbook Pro 13" án touch bar (Macbook Escape) og geri eitt­hvað við hana til að lækka hana í verði (USB-C en ekki Thund­er­bolt 3?).

iPad Pro

Svo er alveg kom­inn tími á iPad Pro spjald­tölvu­lín­una. Hún fékk síð­ast upp­færslu sum­arið 2017 og þá kom iPad Pro 10.5" á mark­að­inn (og 12.9" fékk nýjan örgjörva). Það lak út þrí­vídd­ar­mynd af mögu­legum iPad Pro og þar má sjá að TouchID er farið, smart connector tengið hefur færst, jack-tengið horfið og hönn­unin svipar til afkvæmis iPhone 4 og iPhone X í spjald­tölvu­stærð. Nokkuð góðir orðrómar segja að 10,5" skjár­inn verði 11" án þess að stækka sjálfa tölv­una, en að 12,9" skjár­inn haldi sér á meðan tölvan minnkar aðeins.

Hér smá sjá mynd­band af þrí­vídd­ar­mynd­inni.

Af þessu þrennu (Airpods 2, Macbook Air og iPad Pro) þá eru iPad Pro það sem kemur til greina að verði kynnt ásamt iPhone Xs, Xs max, Xc og Watch Series 4. Hitt er allt út úr mynd­inni.

Lokaorð

Þetta verður án efa mjög þétt og flott kynn­ing hjá Apple eins og vana­lega. Tveir glæ­nýir símar og úr er heill hell­ingur til að kynna og það verður erfitt að sjá Apple ná að koma fleiri vörum fyrir. Stærri iPhone Xs er eitt­hvað sem við vissum að væri á leið­inni og mun sá sími örugg­lega njóta mik­illa vin­sælda hér á landi. Á meðan úrið kemst ekki á far­síma­kerfi á Íslandi, mun það lík­lega ekki selj­ast nógu vel, þó mín kaup séu tryggð. Ef við fáum að sjá aðrar vörur þá er verður það bónus.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

tæknimál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár